Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1982, Blaðsíða 36
36
DV. MIÐVDCUDAGUR15. SEPTEMBER1982.
DÆGRADVÖL DÆGRADVÖL DÆGRADVÖL
Félagar í JC Reykjavik fara með einkunnarorð hreyfingarinnar á fyrsta fundi starfsársins fyrir skömmu.
JC félagar eru eftirsóttir
r
— rabbað við Arna Þór Arnason
landsforseta JC
„Það er skoöun vor: aö trú á guö
veiti lifinu tilgang og takmark, aö
bræöralag manna sé þjóöarstolti
æðra, og skipting gæöanna veröi rétt-
látust viö einstaklingsfrelsi og frjálst
framtak, aö lög skuli ráða fremur en
menn, aö manngildið sé mesti fjár-
sjóöur jaröar, aö efling mannsand-
ans sé æösta athöfn lífsins. ”
Þetta eru einkunnarorð JC hreyf-
ingarinnar og voru samin árið 1951 af
Bandarikjamanni. Hreyfingin starf-
ar af miklum þrótti hér á landi og er
félagatalan nú um 1500 yfir landiö.
Aöildarfélögin eru 35. JC Island er
aðili aö alþjóðahreyfingunni JC
Intemational sem starfrækt er í fjöl-
mörgum löndum.
Núverandi landsforseti JC hreyf-
ingarinnar á Islandi er Árni Þór
Ámason. Við fengum hann til aö
ræða viö okkur um JC.
Háskóli í
mannlegum samskiptum
- Hvaðer JC?
, ,1 raun er J C háskóli í mannlegum
samskiptum. Hreyfingin er fyrir þá
sem áhuga hafa á félagsmálum,
ræðumennsku og mannlegum sam-
skiptum. Viö emm meö ræðunám-
skeiö — sennilegu þau allra bestu
sem tíðkast hér á landi.
Þaö er óhætt aö kalla JC skóla því
hreyfingin bætir upp ýmsar gloppur
sem eru í menntakerfinu hjá okkur
Islendingum.”
Hægt er aö taka undir þaö meö
Árna aö menntakerfið hafi algjör-
lega brugöist hvaö snertir aö kenna
mönnum aö tjá sig. Flestum er þetta
kunnugt og mikið hefur verið um
þetta skrafaö, en lítið sem ekkert
hefur orðið úr framkvæmdinni.
— Hvers konar fólk sækir í félags-
skapinn og af hvaöa ástæöum?
Arni Þór Árnason, landsforseti JC, býður fjóra nýja meðlimi velkomna ■ hreyfinguna.
„Það er alls konar fólk í JC og úr
öllum stéttum. Lengi vel vom þar
einungis karlmenn. Fyrsta konan
gekk í JC árið 1976 og síöan hefur
þeim fariö sífellt fjölgandi. Þær
gegna margvíslegum trúnaöarstörf-
um innan hreyfingarinnar og eru til
dæmis fimm húsmæöur forsetar
aöildarfélaga.
I upphafi var JC félagsskapur fyr-
ir unga bissnesmenn en það er nú
gjörbreytt. Hreyfingin opnaöist og
félagsskapurinn varö fjölbreyttur.
Flestir held ég að gangi í JC vegna
þess aö þeir vilja öölast reynslu í
ræðumennsku. Einnig koma menn til
Sighvati Björgvinssyni var boðið á fyrsta fund JC Reykjavik. Aðrir við
borðið eru stjórnarmenn í félaginu.
okkar sem vilja kynnast nýju fólki og
öðlast nýja félaga. Félagar í JC
halda mikið saman og maöur eignast
marga góöa og trausta vini í gegnum
félagsskapinn.
A meöan menn eru í skóla eignast
þeir félaga. En aö loknu námi vill oft
fara svo aö upp úr vinskapnum slitn-
ar — menn fara hver í sína áttina. Þá
er gott aö ganga í félagsskap á borö
viö JC og afla sér nýrra vina.
Menn verða að
taka þátt í starfinu
— Erhreyfinginpólitísk?
, Jíei, það er hún ekki. Innan henn-
arstarfamenn úröllumstjómmála-
flokkum. Hitt er annaö mál að hreyf-
ingin þrífst einungis þar sem mál-
frelsi og fundafrelsi ríkir. Hún starf-
ar því ekki í neinu austantjaldsríki
og er illa séö af ráöamönnum þar.
Sömu sögu er að segja af ýmsum
löndum í Suður-Ameríku.”
— Geta menn sjálfir leitaö eftir
inngöngu í JC félag eöa þurfa þeir
meömæli?
„Oftast er þaö þannig aö mönnum
er boðin innganga í hreyfinguna.
Einnig tíökast þaö aö menn hafi sam-
band viö einhvern félaga og óski eftir
inngöngu.”
— Hvíla einhverjar skyldur á
þeim sem ganga í JC?
„Menn verða aö taka þátt í starf-
inu. Þó er tekið tillit til sérstakra aö-
stæöna eins og þegar menn eru aö
byggja og eru af þeim sökum mjög
uppteknir.
Þaö er reyndar mjög misjafnt
hversu mikiö menn starfa í hreyfing-
unni. Margir veröa helteknir af
þessu og sjá ekkert annaö. Aörir eru
svo rólegri ítíöinni.”
— Hvaö starfa menn yfirleitt lengi
af fullum þrótti?
,,Ég held ég megi segja aö flestir
endist í svona fjögur ár. Sumir gefast
upp fljótlega og hætta. Þaö er ósköp
skiljanlegt enda er félagsstarf ekki
f yrir alla. Svo eru enn aörir sem end-