Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1982, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1982, Blaðsíða 33
DV. MIÐVIKUDAGUR15. SEPTEMBER1982. 33 Sandkorn Sandkorn Sandkorn «#*-»;___ Knstinn Finnbogason í gæsarækt Kristinn Finnbogason fé- sýslumaöur er fyrir nokkru fluttur upp á Kjalarnes. Sem kunnugt er, keypti hanc Fitj- ar af Hilmari Helgasyni. Margir hafa sjálfsagt velt því fyrir sér hvort Kristinn hyggist ekki nýta sér þá kosti að búa uppi í sveit. Svarið viö þeirri spumingu er jákvætt. Kristinn hefur nú í hyggju að stofna gæsabú á Kjalamesi með fimm þúsund gæsum. Það era því ekki bara flug- félög sem Kristinn vængstýf- ir. Nú verða það gæsir. Konur á frama- braut í Félag starfandi kvenna Flesta rámar sjálfsagt i að hafa einhvera tima heyrt minnst á félagsskapinn Kon- ur á framabraut. Það félag tilheyrir alþjóðasamtökunum Bulssness and professional women. Þetta eru samtök útivinn- andi kvenna sem berjast fyr- ir jafnrétti á vinnumarkaði. Voru þau stofnuð í Bandarikj- unum um siðustu aidamót. Nafni tslandsfélagsins hef- ur nú verið breytt úr Konur á framabraut í Félag starfandi kvenna í Reykjavík. Nafninu var breytt meðal annars vegna tilmæla frá alþjóða- samtökunum sem töldu að þýðingin væri ekki rétt. Einn- ig var talið að nafníð „Konur á framabraut” skapaði for- dóma. Öskukallar á Breiódalsvík gefa tann- læknastól Frá því var skýrt í Sand- korai i síðustu viku að nýj- asta fjáröflunarleið áhugafé- laga væri sorphirðing. Var sagt frá því að Ungmennafé- lag Svarfdæla hefði óskað eft- ir því aö taka að sér sorphirö- ingu fyrir Dalvíkurbæ. Ekki er fjáröflunarleið þessi alveg nýtUkomin. A Breiðdalsvik era það félagar í Lionsklúbbnum Svani sem annast sorphirðingu. Hefur slikt viðgengist í f jögur ár. Lionsmenn hreinsa einu sinni i viku og breyta þannig sorpinu í f jármuni. Þeir fá að sjálfsögðu greitt fyrir starfið. Fjármunina nota þeir tU þjóð- þrifamála. Meðal annars hafa þeir keypt tannlækna- stól og tUheyrandi útbúnað í byggðarlagið fyrir sorppen- ingana. Úþarfi að karlar fljóti endalaust ofan á kven- fólkinu FuUtrúi Alþýðubandalags- ins i fræðsluráði, Þorbjöra Broddason, segir í viðtali við ÞjóðvUjann að það sé kominn timi tU þess að æðsti maður skólamála í Reykjavik verði kona. A þessum vettvangi vinni konur að mlklum meiri- hluta og algjör óþarf i að karl- ar fljóti endalaust ofan á kvenfólkinu í skólakerfinu. Mikið rétt bjá Þorbirai. Það er algjör óþarfi að bafa konumar aUtaf undir. Sönglaga- keppnin beint til islands Mlklar líkur eru á þvi að is- lendingar fái að sjá næstu sönglagakeppni sjónvarps- stöðva Evrópu í beinni út- sendingu. Keppnin verður haldin í Vestur-Þýskalandi eftir áramót. Sem fiestum er kunnugt, sigraði Nicole í fyrra með laginu Ein bischcn Frieden. Sjónvarpið hefur ákveðið að auka mjög beinar út- sendingar, sérstaklega frá viðburðum sem sýndir eru í mörgum löndum samtimis. Er tUtölulega ódýrt fyrir ís- lenska sjónvarpið að kaupa slikar sendingar. Af beinum útsendingum sem væntanlegar eru má nefna útsendingu frá dagskrá i tUefni af degi Sameinuðu þjóðanna 24. október næst- komandi. Umsjón: Kristján Már Unnarsson. »Hí*tDnnío Boaing 737 þota verflur notufl i millilandaflugi Arnarflugs. Þotan hefur verifl i leiguflugi fyrir Britannia og hafa islenskir flugmenn flogifl henni. Millilandaf lug Arnarf lugs í vetur: TVISVAR í VIKU TIL AMSTERDAM Vetraráætlun Arnarflugs í mUU- landaflugi gengur í gildi 24. september næstkomandi. Talsverðar breytingar verða á fluginu. Hefur áður verið skýrt frá því í DV að Boeing 737 þota verður notuðtilflugsins. Tímabundið hlé verður gert á beinu áætlunarflugi til Ziirich í Sviss. I vetur verður mUlilandaflug Amarflugs því, eingöngu mUli KeflavUcur og Amsterdam. Verða tvær ferðir famar í viku á tímum sem henta vel til tengi- flugs til og frá Ziirich, Briissel, París, London og fleiri borga Evrópu. Hefur ‘Arnarflug samið við hollenska flug- félagið KLM og svissneska flugfélagið Swissair um tengiflug til og frá Amsterdam. Flogið verður til Amster- damá þriðjudögum og föstudögum. -KMU. BÍLLVALTÁ MIKLUBRAUT Bílvelta varð á Miklubrautinni á móts við Engihlíö um klukkan hálfátta á sunnudag. Tvennt var í bílnum og voru bæði flutt á slysadeild, en meiðsli ekki talin alvarleg. Aödragandi slyssins var sá að Volkswagenbíll ók á vinstri akrein vestur eftir Miklubrautinni. Beygöi hann síðan til hægri til að fara fram úr bifreiö sem ók á undan. Er hann hugðist beygja aftur yfir á vinstri akrein missti ökumaðurinn stjórn á bílnum meö þeim afleiðingum að hann þeyttist upp á eyjuna og valt þar. Hentist hann 'síöan á ljósastaur og stöðvaðist loks á hjólunum. Tvennt var í bílnum og voru bæði flutt á slysadeild, en þau voru ekki talin alvarlega slösuö. Talsvert sér hinsvegarábílnum. -JGH Frá slysstað á Miklubrautinni. Fólksvagnlnn fór eina veltu uppi á eyjunni og stöðvaðist síðan á hjólunum. Eins og sjá má er hílllnn talsvert skemmdur. Tvennt var í bilnum, en meiðsl þeirra voru ekki alvarleg. DV-mynd S Kvikmyndir Kvikmyndir ENN EIN MENNTA- SKÓLAMYNDIN Bíóhöllin sýnir: „Porky's”. Leikstjóri og handritshöfundur: Bob Clark. Kvikmyndataka: Reginald Morris. Framleiðendur: Bob Clark og Don Carmody. Aðalhlutverk: Pee Wee — Dan Monahan, Billy — Mark Herrier, Tommy — Wyatt Knight, Mickey — Roger Wilson, Tim — Cyril O'Reilly, Meat — Tony Ganios. Er skólakrakkar í Bandaríkjunum fá sumarfrí flykkjast þau gjaman í kvikmyndahús. Svo rammt kveður að þessu að í sumarbyrjun er besta vertíð kvikmynda vestanhafs. Því er ekki að undra aö kvikmyndafram- leiðendur sjái sér leik á borði og geri myndir sem höfða til skólakrakka. Eins og gefur að skilja vilja krakkar á menntaskólaaldri gjarnan sjá létt- ar gamanmyndir sem höfða til þeirra og því hala „menntaskóla- myndir” á borð við American Graf- fiti, Grease, Animal house og nú síð- ast Porky’s, inn stórfé. Efni Porky’s er í stuttu máli á þessa leið: Myndin fjallar um tán- inga, — stráka, sem virðast heldur betur vera með brókarsótt. Ekki gengur sériega vel hjá strákunum að fá stelpumar í rúmið, allavega grípa þeir til örþrifaráða. Gengið telur sig hafa komist yfir vændiskonu nokkra, en í ljós kemur að tveir óprúttnir fé- lagar þeirra hafa gabbað þá. Því næst halda þeir í næturklúbbinn Porky’s þar sem þeir telja sig geta keypt blíðu kúbanskra dansmeyja. En eigandi staðarins tekur af þeim fé en enga fá þeir meyna, heldur eru þeir auðmýktir og þeim „hent" út á nokkuö sérkennilegan hátt. Þeir drattast aftur í sinn heimabæ, en einn þeirra ákveður að fara aftur í Porky’s og hefna sín. Hann er barinn í klessu þar. Þá ákveður gengiö að hefna sín. Þeim tekst það á eftirminnilegan hátt og að sjálfsögðu verða þeir hetjur í sínum skóla fyrir bragðiö. Myndin er ákaflega svipuð öðrum „menntaskólamyndum”. Það er strákagengi í menntaskóia sem er í sviðsljósinu. Auk þeirra koma tölu- vert við sögu leikfimikennarar, lög- regluþjónar, barstúlkur, að ógleymdum næturklúbbseigandan- umPorky. Ég held aö þaö sé með öllu ónauð- synlegt að eyða mörgum orðum á þessa mynd. Húmor myndarinnar er aö áliti undirritaðs ákaflega þunnur, enda þótt ég trúi vel að einhverjir hafi gaman af honum. Samtöl, sögu- sviö og flétta myndarinnar eru ákaf- lega ófrumlegur samsetningur. Leikurinn er hvorki fugl né fiskur og sama máli gegnir um kvikmynda- töku og aðra tæknivinnu. Þetta er ærslaleikur, eina markmiðiö með gerð myndarinnar er að skemmta eða græða peninga, eftir því hvernig áþaðerlitið. Fyrir þá sem hafa gaman af uppá- tækjum kynóðra menntaskóla/gagn- fræöaskólastráka og tilheyrandi fimmaurabröndurum, er þessi mynd eflaust ágæt. En hún er að mínu áliti hund-ómerkileg. -ás. Kvikmyndir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.