Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1982, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1982, Blaðsíða 16
16 DV. MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 1982. Spurningin Hvað finnst þér um ákvörð- un LÍÚ um stöðvun fisk- veiðrflotans? Spurt ó Eskrfirði. Jónas Þór Guðmundsson háseti: Ég vil bara segja þetta: Eg vil veg útgerðar- innar og fyrirtækja á hennar vegum semmestan og bestan. Þjóðfélagið lifir á fiskveiðum. Anton Bogason netamaður: Eg vil á þessu stigi ekki tjá mig um þessi mál. Annars hef ég engar áhyggjur út af þessu og er reiðubúinn að ráða mig sem fjósamann uppi í sveit ef lausn finnst ekki á vanda útgerðarinnar. Sturlaugnr Stefánsson 1. stýrimaður: Eg er ekki sáttur við hana. Eg trúi ekki röksemdafærslu útgerðarmanna. Þessi eilifi harmagrátur Kristjáns Ragnarssonar er löngu hættur að koma viðmenn. Björn Axelsson matsveinn: Mér finnst þetta lúaleg ákvörðun. Þótt vandamál steðji að útgerðinni þá á það ekki aö bitna á launafólki. Mér finnst útgerðin ekki sýna það í verki að hugur fylgi máli varöandi vandamálin, þar sem útgerðarmenn hafa keppst við að koma togurunum út fyrir verkfall. Ég vona að lausn finnist sem fyrst. Kristján Bjamason 3. vélstjóri: Þetta er til skammar. Ég tel að það sé búið að koma útgerðarmönnum upp á alltof mikið. Þeir eru eins og skrattinn. Ef honum er réttur litli fingurinn, þá tek- ur hann alla höndina. Bjarni Sveinsson bátsmaöur: Mér finnst erfitt að svara þessu í stuttu máli. Eg veit að það er- vandi sérh steðjar að útgerðinni. Það á þó ekki að leysa hann á kostnað sjómanna. Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur hMmé Óveður fór illa með flatt þak, á smiðjum Kaupfélags Árnesinga, eins og þessi mynd ber með sér. DV-mynd: Kristján Einarsson, Um flötu þökin: Er okkur fyrirmunað að Ef flugstöðin rís, eins og hún er nú teiknuð, með valmaþaki, þá veröur hún, hvort sem hún nýtist eða ekki, sönnun þess að hægt er að byggja stór hús með hvelfdu þaki. Viövíkjandi þessari áráttu með flötu þökin, er okkur kannski fyrirmunaö að læra af reynslunni? læra af reynslunni? Kristján Einarsson, Selfossi skrifar: Eg skrifa vegna flugstöðvar- byggingarinnar margumtöluðu, eða öllu heldur sjónvarpsumræðunnar um hana, sem fram fór á dögunum. Vii ég koma á framfæri þakklæti til Kjartans Jóhannssonar, alþingis- manns og formanns Alþýðuflokksins, fyrir mjög gott innskot um flötu pappaþökin og miður góða reynslu okkar Islendinga af þeim. Þaö virðist enn þurfa að minna byggingahönnuði á lekavandamál flatra þaka. Þannig er stórundarlegt að horfa upp á það, að á sama tíma og einstaklingar eru að byggja ris eða reist þök yfir hús sín, þá eru opinberir aðilar að byggja hús með flötum þökum, sbr. félagsheimili á Selfossi. Þaö er nú í byggingu og þar eru pappaþökin aUsráðandi. TilDV: Gætum bridge- dálk? við fengið Ingibjörg Halldórsdóttir saknar bridge-pisdanna hans Simonar Simonarsonar (i Dagblaðinu forðuml. Myndin er af íslandsmóti i bridge. Ingib jörg Halldórsdóttir skrifar: Mig langar til þess að minnast á bridge-dálk Dagblaðsins. Fyrir sam- einingu Dagblaösins og Vísis var alltaf úrvals bridge-þjónusta í Dagblaðinu. Nú er hins vegar ekki hægt að koma fréttum af bridge-atburðum nema með mikilli fyrirhöfn. Hvernig væri nú að fá Símon Símonarson til þess að taka að sér bridge-dálk aftur, t.d. á laugardögum. Hann var frábær. Við, sem kaupum DV, og kannske ekki önnur blöö, viljum helst fá jafn- góðan bridge-dálk og kaupendur Morgunblaösins. Og ég tala nú ekki um Þjóðviljann, þar er bridge-þjónustan til sóma. Birtiðþið hvað sem er? 9612—0672 hringdi: Ekki get ég orða bundist vegna skrifa svokallaðrar húsmóður í Breiðholti um nakinn „öfugugga” sem hún segir vera á ferli í hverfinu. Þessi bréfritari viðurkennir bókstaflega brot á friðhelgi heimilisins; segist hafa gónt á ná- granna sinn með kiki. Auðvitað er það rétt hjá lögreglunni, að hún getur ekki bannað fólki að ganga klæöalausu heima h já sér. & Lögreglan hefði samt mátt áminna kon- una fyrir all sérstakt áhugamáL ™wrmr*™ —Ifffffr— — "... HtUtttf Mljill Ljótt grindverk í miðbænum Lesandff ér þetta grindverk. við hliðina ó Hótel Borg. mikill þyrnir i augum. Beinir hartn þeirri frómu ósk tíl „aðstandenda"þess, að gerð verðibragarbótsem allra fyrst. -FG.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.