Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1982, Blaðsíða 8
8
DV. MIÐVIKUDAGUR15.SEPTEMBER1982.
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Öriagadagur
hjá Schmidt
kanslara
Til mótmælaaögerða kom á götum
ýmissa borga í Póllandi í gær og fyrra-
dag og kom til átaka milli mótmælenda
og lögreglu sem beitti táragasi og
vatnsslöngum.
I höfuðborginni sjálfri virðist allt
hafa verið með kyrrum kjörum, en
frést hefur af uppþotum í fimm
borgum, eins og Wroclaw, Kraków,
Stettin, Lodz og Nowa Huta. Eru fréttir
af atburðum óljósar, en yfirvöld vilja
sem minnst úr þeim gera.
Svo virðist sem fólk í þessum borg-
um hafi þyrpst út á götur til þess að
láta í ljós andúð sína á herlögunum í
tilefni af því að tíu mánuðir eru liðnir,
síðan þau voru leidd í gildi, en það var
13. desember.
Rammast hefur kveðið að
mótmælunum í Wroclaw og Nowa
Huta. PAP-fréttastofa þess opinbera
segir að fjórir lögreglumenn hafi
meiðst og 74 menn verið handteknir í
uppþotum í gamla borgarhluta
Wroclaw. Þar munu ungmenni hafa
grýtt ökutæki lögreglunnar og gert eitt
þeirra óökufært en sært ekilinn. Þegar
lögreglan sótti að óeirðarseggjum eftir
þröngum strætum var varpað aö henni
þungum skeytum úr gluggum húsa
semgnæfðuyfir.
Þetta eru fyrstu óeirðirnar sem
fréttist af síðan í lok ágúst þegar
lögreglan baröi niður mótmælaaðgerð-
ir í tilefni afmælis hinnar óháöu
verkalýðshreyfingar Einingar, sem
hefur veriö bönnuð. Þær mótmælaað-
gerðir voru hvað harðastar í Wroclaw
þar sem einn mótmælendanna var
skotinn til bana af lögreglunni.
Lögreglan beitti táragasi og vatns-
kanónum í Nowa Huta á mánudaginn
til þess aö dreifa mannsöfnuði.
Oeirðirnar hófust meö því aö milli 200
og 300 manns gengu fylktu liði frá út-
jaöri borgarinnar í átt að miðbænum
og bættist stöðugt í gönguna á leiðinni.
Kom til uppþota sem entust langt fram
á kvöld.
Frá öörum borgum eru fréttir óljós-
ari af mótmælaaögerðunum.
Eftir óeirðirnar 31. ágúst fögnuöu
neðanjarðarforingjar Einingar
mótmælunum sem sigri andófsmanna í
mótspyrnunni gegn herlögunum.
Til tíöinda kann að draga á fundi
Bonnstjórnarinnar í dag vegna ágrein-
ings milli st jórnarf lokkanna,
sósíaldemókrata og frjálslyndra, eftir
að Helmut Schmidt kanslari veittist
harkalega í gær að Otto Lambsdorff
fjármálaráðherra (frjálslyndra).
Á þingflokksfundi sósíaldemókrata í
gær hafði Schmidt kanslari sagt, að
krafa Lambsdorffs um stórfelldan
niðurskurö á fjárveitingum til félags-
mála stangaöist algjörlega á við stefnu
ríkisstjórnarinnar og sýndi „furðuleg-
an dómgreindarskort” ráöherrans.
Willy Brandt, formaður sósíaldemó-
krata (fyrrum kanslari), sagði að
Lambsdorff væri að reyna að spilla
stjómarsamstarfinu og ætti að íhuga
aðsegjaafsér.
Hans-Dietrich Genscher, utanríkis-
ráðherra og formaður frjálslyndra.
Danmörk og Vestur-Þýskaland hafa
á elleftu stundu afstýrt þorskastríði
vegna þorskveiði V-Þjóðverja við
Grænland. Náðist um það samkomu-
lagígær.
Bonnstjómin hafði gefiö Dönum
frest til 15. september til þess að fella
niður veiðibann á þýska togara við
Grænland. Ef í hart færi ætlaði Bonn-
stjórnin að styrkja útgerðarmenn sem
virtu banniö að vettugi.
Danir höfðu hótað aö taka
landhelgisbrjóta, færa til hafnar og
leggja hald á togarana.
Seint í gærkvöldi gengu þeir Hans-
Dietrich Genscher, utanrikisráðherra
sagði í síðustu viku aö sannleikurinn
um hvítasykurinn fyrir þessa 13 ára
gömlu samsteypustjórn mundi koma í
ljós í samningaviðræðum næsta
mánaðar vegna fyrirsjáanlegs mikils
halla á f járlögunum fyrir árið 1983.
En hörkuleg viðbrögð Helmuts
Schmidts kanslara vekja gmn um að
hann hyggist neyða samstarfsmennina
til þess að taka ákvörðunina fyrr um
hvort þeir hyggist slíta stjómarsam-
starfinu og þá meö því að knýja
Lambsdorff til að segja af sér.
Lambsdorff tók þó allan vafa af um
það í gærkvöldi að hann hygðist ekki
fara sjálfviljugur. Sagðist hann ekki af
því tagi sem gæfist upp þótt á móti
blési. — Honum hafði þó ekki tekist að
fá fylgi flokks síns með tillögum sínum
um niðurskurð.
V-Þýskalands, og Uffe EllemannJen-
sen, hinn danski starfsbróðir hans, frá
samkomulagi eftir fjögurra og hálfrar
stundar samningaviðræður.
Um er að ræða bráðabirgðasam-
komulag þar sem þýskir fá leyfi til
þess að veiða allt að 5000 smálestir af
þorski undan strönd Vestur-Grænlands
til loka októbermánaðar. Þjóðverjar
munu í staðinn biðja Evrópuráð EBE
að endurskoða veiðikvótann fyrir
þorskinn, eins og ráðið hafði ákveðið
hann fyrir allt árið 1982. Eins leggja til
að ráðið hætti við refsiaðgerðir gegn
Dönum vegna óhlýðni við ráðið.
Pólska lögreglan beitti táragasi og vatnskanónum til þess að dreifa mótmolahópum i gær og í fyrradag en uppþot urðu
i fimm borgum Póllands.
Götuóeiröir í
borgum Póllands
— Mótmæli í tilefni af því að 10 mánuðir eru liðnir
frá innleiðingu herlaganna
Afstýrðu þorska-
stríði á Græn-
landsmiðum
Grænlensk múmía: Líkunum var komið fyrir í helli á 15. öld.
Rannsókn á blýinnihaldinu í hári
grænlenskra múmía gefur nákvæma
hugmynd um afleiðingarnar af
evrópskum lífsháttum í landinu.
Múmíumar sýna að blýmengun hefur
nífaldast á 500 árum.
Múmíumar hafa varöveist mjög vel,
en þær fundust í helli við Umanak fýrir
nokkmm árum. Likunum hafði verið
komið fyrir í hellinum á miðri 15. öld
og varðveittust svo vel vegna hins
þurra lofts. Fundur þeirra vakti
heimsathygli en það er ekki fyrr en nú
að árangur liggur fyrir af rannsókn á
þeim.
Hár þeirra hef ur verið rannsakað við
háskólann í Árósum til að rannsaka
innihald þess af blýi, kvikasilfri og
selen. Siðan var gerður samanburöur á
því og hári 118 núlifandi Grænlendinga
á aldrinum 15—29 ára. Sýndi hann að
blýinnihaldið hefur nífaldast síðan á
15. öld.
Vísindamenn rannsaka nú gjaman
hlutföll þungra málma í grænlensku
umhverfi. Á nokkrum svæðum hefur
blýmengun aukist mjög, á sama hátt
og víöa í Evrópu. Vísindamennimir
telja að ástæöu þessarar mengunar sé
m.a. að leita í evrópsku mataræöi,
mikilli neyslu á dósamat og mengun
frá bílum.
EVRÓPSK MENG-
UN Á GRÆNLANDI
Bashlr Gemayel broshýr eftir að úrslitin voru kunn í forsetakosningunum 23. ágúst, en hnnn lifði það ekki að setjast í
embætti.
FORSETILÍBANON MYRTUR
Bashir Gemayel, hinn nýkjörni
forseti Líbanon og leiðtogi falang-
ista, var drepinn í heljarsprengingu
sem varð í aðalskrifstofum flokks
hans í austurhluta Beirút í gær-
kvöldi.
Enginn fer í grafgötur um að
sprengingin hafi verið af mannavöld-
um. Sennilega vítisvél sem komið
hefur verið fyrir í kjallara
byggingarinnar. — I sprengingunni
fórust milli 50 og 60 manns.
Fréttir em óljósar af
frekari meiðslum manna, en fjöl-
menni var í byggingunni, því að
Gemayel ætlaði að ávarpa fund á
vegum falangista.
Tilkynnt hefur verið af hálfu þess
opinbera að Gemayel verði jarðsett-
ur síðdegis í dag í fæðingarbæ sínum,
Bikfaya, sem er í fjöllunum norð-
austurafBeirút.
Bashir Gemayel, sem var aðeins 34
ára að aldri, sonur Pierre Gemayel,
sem lengi var leiðtogi falangista og
er enn í forystu flokksins, var kjörinn
forseti Líbanon í kosningunum 23.
ágúst, þrátt fyrir mikla andstöðu
múhameðstrúar- og vinstrimanna.
Hann átti að taka við embættinu 23.
september.
Ekkert hefur komiö fram í fréttum
um hverjir hafi staðið að
sprengjutilræöinu en við hinu þykir
hætt að morðið spilli fyrir tilraunum
til þess að koma á friði í Líbanon og
auki á erfiðleikana í Austuriöndum
nær.
Reagan Bandaríkjaforseti hefur
fordæmt „hina huglausu morðingja
Líbanonforseta” og víða sýna við-
brögð að morðið þykir hin verstu
ótiðindi.