Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1982, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1982, Blaðsíða 11
DV. MIÐVIKUDAGUR15. SEPTEMBER1982. 11 „Maflur œtti nú að fá sér einu sinni almennilegan bíl," sagfli maflur einn ð uppboðinu vifl félaga sinn og þeir veitu fyrir sér hœfilegu tilboði. Þessi var einn tuga ef ekki hundruða manna sem spáflu i for- setabílinn á uppboðinu í gœr. DV-mynd -KÞ FORSETABÍLL ÁUPPBOÐI Það var aldeilis handagangur í öskjunni í uppboðsporti Innkaupa- stofnunar ríkisins í gær. Þar voru boönir upp tugir bíla en það var þó einn sem athygU manna beindist að. Það var Mercedes Benz sá sem er í eigu forsetaembættisins, en eins og kunnugt er keypti embættið á dögun- um dýrindis kádilják er koma skyldi í stað benzins. „Það hafa tugir ef ekki hundruð manna spurst fyrir um þennan bíl,” sagði starfsmaður stofnunarinnar í samtali við DV. En inni í bílnum sat starfsmaöurinn ásamt lögreglu- manni er gæta skyldi bílsins. Þetta mega heita góðar undirtektir, þar sem bíUinn haföi ekki verið aug- lýstur sérstaklega. Það stafar af því að skyndUega var ákveðið að setja bUinn á uppboðið í gærmorgun. BUUnn er sjálfskiptur, árgerð 1975 og ekinn 62 þúsund kUómetra. Hann er af gerðinni 280 SEL. Þegar um slík uppboö er að ræða þarf að greiða bíUnn út í hönd og hef- ur viðkomandi sólarhringsfrest til að útvega sér umsamda upphæð. — En verður bUUnn seldur hæst- bjóðanda á hvaða verði sem er? „Ja, ef viðunandi boð fæst fyrir hann,” svaraöi starfsmaðurinn. — Og hvað er viðunandi boð? „Það hefur ekki verið ákveðið enn,”sagðihann. Tilboðum í bílanna er skilað í þar til gerðan kassa sem hangir uppi í portinu. Þar var maður einn, er sagðist vera að bjóða í umræddan bU. Og hversu mikið bauö hann? „Maður býður þetta nokkur hundr- uö þúsund,” svaraði hann og var rok- inn. -KÞ. r ■■ SIGURVEGARARIOKULEIKNI Sigurvegararnir í úrsUtakeppninni í ökuleikni sem fram fór á laugardaginn eru talin frá hægri: Systkinin Jón S. HaUdórsson og Fríöa HaUdórsdóttir, en þau lentu í fyrsta sæti, Jón í karla- flokki og Fríða í kvennaflokki. I ööru sæti urðu Kristín Birna Garðarsdóttir og Ingvar Ágústsson. Jón, Ingvar og Fríða fara tU Spánar í nóvember og taka þar þátt 1 norrænni ökuleikni. En Islendingar hafa tvívegis orðið Norðurlandameistarar í þeirri keppni í fyrraogíhittifyrra. J -EG. Smygluðu 1 kílói af hassi og 100 grömmum af marihjúana TveU- 21 ára gamUr Reykvíkmgar hafa játað fyrir fUcniefnalögreglunni að hafa flutt inn 1 kíló af hassi og 100 grömm af marihjúana. Keyptu menn- imir fíkniefnin í Amsterdam og fluttu þau inn í hljóöfæri. MennimU- vom báðir úrskurðaöir í fUnmtán daga gæsluvarðhald þann 8. september síöastUöinn. Síðdegis í fyrradag var þeim hins vegar sleppt úr haldi. Höfðu þeir þá játað að hafa farið til Amsterdam og keypt þar 1 kíló af hassi og 100 grömm af marihjúna. Settu þeir efnin í rafmagnsgítar og fluttu þau þannig inn í landið. Ekki komst þó allt magniö fyrir í gitarnum og gripu þeU- þá tU þess ráðs að senda afganginn í pósti tU landsins. Og þaö var einmitt póstsendUigm sem var kveikjan að máUnu. Lögreglunni tókst ekki að ná haldi á öllu efninu þar sem búið var að selja hluta af því. Náði lögreglan því á fjór- um stöðum hér i bæ og nam magnið 900 grömmum af hassi og 68 grömmum af marihjúana. -JGH. Vantar sendil á vélhjóli allan daginn. Upplýsingar á innheimtudeild DV, Þver- holti 11. ^ORARIOPERCARj. -pr ^Rrft v%MACH/nes Ti/HKRIT á ensku HUSIÐ BOftA HUSIÐ LAUGAVEGI 178 simi 06780 JAZZBALLETTSKÚLI BARU JAi * SUÐURVERI uppi Jazz — Modern — Classical ^ ^ Technique — Show — Pas de deux. Kennsla hefst mánudaginn 20. sept. Framhaldsflokkar: Þrisvar í viku, 80 mín. kennslustund. Framhaldsflokkar: Tvisvar í viku, 70 mín. kennslustund. Byrjendaflokkar: Tvisvar í viku, 70 mín. kennslustund. Lausir flokkar: Einu sinni í viku, 70 mín. kennslustund fyrir fólk með einhverja þjálfun. (Ballett — Dans — Fimleikar — o.s.frv. STRÁKAR ATHUGIÐ Sérstakir tímar í Pas de deux (Paradans með lyftum), einu sinni í viku. NÝTT Við skólann verður amerískur gestakennari í Modern, Lorry Steim, lærö frá Emerson College Boston State University of New York. Skírteinaafhending og flokkaröðun sunnudaginn 19. sept. í Suðurveri NIÐRI, sem hér segir: Framhaldsflokkar: Kl. 2 Byrjendaflokkar: Kl. 4 Nemendur hafi með sér stundaskrár. UPPLÝSINGAR OG INNRITUN Í SÍMA 83730 ALLA DAGA.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.