Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1982, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1982, Blaðsíða 12
12 DV. MIÐVIKUDAGUR15. SEPTEMBER1982. DAGBLAÐIÐ-VÍSIR mm mmm Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjómarformaður og útgófustjórí: SVEINN R. EYJÓLFSSON. Framkvœmdastjórí og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON. Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM. Aðstoðarritstjóri: HAUKUR HELGASON. Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON. Auglýsingastjórar: PÁLL STgFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSÍSON. ___ j Ritstjóm: SÍÐUMÚLA 12-14. SÍMI86611. Auglýsingar: SÍÐUMÚLA 33TsÍMI 27022. Afgreiðsla, áskriftir, smáauglýsingar, skrifstofa. ÞVERHOLT111. SÍMI 27022. Sími rítstjómar 86611. Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: HILMIR HF., SÍÐUMÚLA 12.Prentun: ÁRVAKUR HF., SKEIFUNN119. Áskriftarverð á mánuði 130 kr. Verð í lausasölu 10 kr. Helgarblað 12 kr. Krístján Eldjám er látinn Kristján Eldjárn, fyrrverandi forseti Islands er látinn aðeins 65 ára að aldri. Þjóðin lútir höfði í sorg og söknuði og minnist þjóðhöfðingja síns með virðingu og hlýju. Mikilhæfur maður er horfinn af sjónarsviðinu langt fyrir aldur fram. Um það leyti sem núverandi forseti íslands ásamt fylgdarliöi bjó sig undir Bandaríkjaför til að auka hróður okkar litlu þjóðar, var Kristján Eldjám fluttur sömu leið vestur um haf. Margoft áður hafði Kristján lagt land undir fót, einnig í þeim erindagjörðum að auka á orðstír Islands, vera fulltrúi lands síns í hópi tiginna gesta. Nú var förin önnur. Alvarleg veikindi urðu þess valdandi, að hann skyldi ganga undir aðgerð hjá færustu læknum vestra. Úr þeirri för átti hann ekki afturkvæmt. Enginn má sköpum renna. Kristján Eldjárn var kjörinn forseti Islands árið 1968 með miklum yfirburðum. Vinsældir hans og álit fór ekki á milh mála. Þó hafði hann aldrei áður verið í fremstu víglínu í íslensku þjóðlífi. Kristján starfaði lengst af sem þjóðminjavörður, stundaði vísinda- og fræðistörf og var maður hógvær og látlaus. Engu að síður sýndi þjóðin honum traust í forsetakosningunum fyrir fjórtán árum og æ síðan, meðan hann gaf kost á sér. Þar réð persónuleiki Kristjáns, yfirburðavitsmunir og þeir eiginleikar í fari hans, sem íslendingar kunna öðru fremur að meta. Hann var fullur þekkingar og fróðleiks á sögu lands og þjóðar. Kímnigáfa hans var annáluð, en sterkust voru áhrifin af lítillætinu og látleysinu, tengsl hans við alþýðu manna. Allir dáöu gáfur hans, en litu jafnframt á hann sem jafningja. Allir virtu hann, án þess að telja hann yfir sig hafinn. Þannig sló hjarta Kristjáns í takt við hjörtu þegna sinna, þannig var hann samstíga þjóð sinni, um leið og hann veitti henni forystu. Kristján Eldjárn var Svarfdælingur að ætt og uppruna. Rætur hans voru sprottnar í íslenskri gróðurmold, málfar hans var norðlenskt og fallegt, starfssvið hans var Island, náttúran, fornleifamar, sögumar, tungan og menningin. Hann var Islendingur í húð og hár og hvorki gat né vildi breyta þeirri mynd, þótt hann hæfist til vegsemda og virðingar í viðhafnarstól. Kristján varð þjóðhöföingi og forseti, en hann var alla tíð sannur maður, sjálfum sér samkvæmur. Það segir sína sögu, að eftir að hann lét af forseta- embætti, hóf hann að nýju að rækja þau störf, sem hann hafði helgað líf sitt. Á þeim vettvangi haföi hann unnið mörg vísindaafrek og átti enn mörg óunnin. Ræður Kristjáns Eldjárn verða lengi í minnum hafðar. Lífsreynsla hans og vitsmunir, yfirsýn og skilningur á íslenskum lífsháttum og reyndar mannlífinu öllu, gerðu ræður hans ríkar að innihaldi og boðskap, svo unun var á að hlýða. Framkoma hans og framganga í forsetaembætti vakti sóma og stolt í brjósti íslensku þjóðarinnar. Islendingar hafa ávallt borið gæfu til að velja verðuga forseta. Fyrirrennarar Kristjáns Eldjám, Sveinn Björnsson og Ásgeir Ásgeirsson voru engir aukvisar, og Kristján sómdi sér vel í þeim hópi. Núverandi forseti, frú Vigdís Finnbogadóttir, hefur einnig reynst glæsilegur fulltrúi. I ávarpi, sem hún hefur sent frá sér vegna fráfalls Kristjáns Eldjám segir m.a.: „Islensk þjóð sameinast í söknuði og horfist í augu við örlög, sem kallað hafa „svo vænan vinnumann af velli heim á bæ um miðjan dag”. Undir þessi orð tekur íslenska þjóðin. ebs. Alþingishúsið við Austurvöll og... Framtíðarlausn hús- næðismála Alþingis Viö erum flest sammála um að í vissum tilfellum sé full ástæöa til aö varðveita hús og önnur mannvirki liöins tíma, en okkur greinir stund- um á um hvaö beri aö varöveita og hvaö ekki. Til dæmis var ég á þeirri skoðun — og er enn — aö æskilegt heföi veriö aö varöveita Sivertsenhúsiö viö Lækjar- torg, einnig Zimsenhúsiö á mótum Hafnarstrætis, Hverfisgötu og Kalkofnsvegar, svo og Hádómara- húsiö viö Austurvöll, sunnan Hótel Borgar, sem nú nýlega hefur verið rifiö. öll þessi hús voru falleg, áttu sögu, voru hluti af bæjarlifinu og voru bæjarpiýöi. Arkitektar Reykjavíkur og vemdunarmenn, Torfusamtökin og aörir menningarvitar, hafa augsýni- lega ekki veriö sammála mér um þetta, enda hvorki hreyft hönd né fót til þess aö koma í veg fyrir aö þessi hús yröu rifin. t>aö eru önnur hús sem þessir aöilar viröast vilja varð- veita t.d. klósetthúsið viö Grjótagötu og fleiri kofar á því svæði. Um þessi hús fóru þeir mörgum og fögrum orðum og vilja varöveita þau sem minnisvaröa byggingalistar liöins tima: Þótt aö mínu áliti og margra annarra, sé best að sumir þessara kofahverfisemfyrst. ' Fordyri Alþingishúss framtíðarinnar En ég trúi ekki öðru en aö jafnvel flestir þessara menningarpostula geti oröiö okkur, óbreyttum borgur- um, sammála um aö Alþingishúsið beri aö varöveita og aö þaö eigi áframhaldandi að vera fordyri og framhliö Alþingishúss framtíðarinn- ar. Á íslandi eru fáar siövenjur, sem hafa veriö viö lýði um langan tíma. Þó hefur Menntaskólinn í Reykjavík veriö til heimilis i Menntaskólahús- inu viö Lækjargötu síðan þaö var byggt, Dómkirkjan hefur veriö starf- rækt í kirkjuhúsinu viö Austurvöll alla tíö síöan Island fékk sjálf- stæöi. '.Það er því eðlilegt að Alþingis- húsið viö Austurvöll fái að gegna sínu hlutverki í islensku þjóðfélagi, enda sómir þaö sér vel og er eitt glæsilegasta, ef ekki glæsilegasta hús á öllu landinu. Það hefur oft ver- ið rætt um aö Alþingi þurfi nauðsyn- lega á meira húsnæöi aö halda, þess vegna var rætt um aö byggja nýtt og veglegt Alþingishús, jafnvel í nýja miðbænum í Kringlumýrinni. — Það væri vart samboöið svo viröulegri stofnun sem Alþingi aö hýrast í gömlu húsi og þaö i gamla bænum. Kannski hefur þetta líka veriö hugs- aö sem atvinnubótavinna fyrir ein- hverja arkitekta eöa sem minnis- varöi um þá „þingskörunga”, sem sátu á þingi þegar þetta var á döf- inni. Þessi hugmynd viröist, sem betur fer, hafa veriö lögö á hilluna, en í staöinn hefur ríkið fest kaup á mörg- Telur meirihluti kjósenda sér það fyrir bestu, aö Steingrimur Hermannsson verði áfram sjávarútvegsráðherra, þegar honum hefur tekist að rústa helsta atvinnuveg landsmanna á aðeins þremur árum? Lýðræði og skynsam- legt þekkingarieysi Þaö er ánægjulegt aö vita til þess að andstæðingar frjálshyggju á Islandi hafa gert sér grein fyrir því aö þögnin reynist þeim haldlitill samherji í baráttunni fyrir ófrjálsu samfélagi, og geysast þeir því nú fram á ritvöllinn hver á eftir öðrum í skipulögöum hrinum. Þaö er enn ánægjulegra að vita til þess aö sumir þeirra hafa reynt aö kynna sér innihald kenninga frjáls- hyggjumanna og gert tilraunir til að gagnrýna þær málefnalega, með misjöfnum árangri aö vísu. Er þetta kærkomin breyting frá því er ekki gat annað aö líta frá óvinum frjáls- hyggjunnar en óvönduö niðskrif um „samviskulaus illmenni”, sem brugga almenningi launráö á nætur- löngum samsærisfundum atvinnu- rekenda. Stefán Snævarr sýnir meö grein sinni „Markaöur og lýöræöi”, sem birtist í DV þ. 7.9. sl, aö hann hefur gert tilraun til að kynna sér kenn- ingar frjálshyggjumanna og í grein hans felst vissulega viöleitni til að bera fram málefnalega gagnrýni á frjálshyggjuna og auðvitað hlýt ég aö fagna iþví. En ekki er sopið káliö þótt í ausuna sé komið. Greinaskrif eru vandasamt verk Fáir neita því aö þaö er vandasamt verk að koma flóknum hugsunum til skila í svo stuttum og kjarnyrtum greinum, aö þær rúmist á hálf- Kjallarinn Arni Thoroddsen síðum dagblaðanna, og eflaust er þessu um að kenna, að ég taldi mig rekast á ekki færri en tólf fullyrö- ingar í umræddri grein SS., sem ég hefði talið fulla ástæðu til aö umorða eöa endurskrifa, til aö í þeim fælust ekki villandi upplýsingar eða það sem einhverjir mundu kalla hreinar rangfærslur. Reyndar eru hugsunarvillurnar í greininni svo margar, að þaö læöist aö manni sá grunur, að höfundur hafi haft þær þar af ásettu ráöi, til að vera öruggur um að lenda í ritdeilu. Sé þetta rétt hefur S. S. gert lesendum DV Ijótan grikk, því ekki er aö efa að margir þeirra hafa vakaö fram á rauða nótt við þá fánýtu iöju, að greiða úr hugsana- flæk junni, sem öll greinin er. Þaö er ætlun mín í þessari grein aö gera athugasemdir viö nokkrar af þessum fullyrðingum og aöstoöa þannig lesendur DVog Stef án s jálfan við aö færa það sem í áðumefndri grein stendur til betri vegar. Það er bjargföst trú mín, aö takist mér ekki þetta ætlunarverk mitt, er engu ööru um aö kenna en því, aö viö Stefán erum einstakir klaufar í meöferð ritaðs máls, og hlýtur því aö falla í hlut annarra aö bæta hér um betur. En víkjum nú að greininni. Helsti ógnvaldurinn Fyrsta fullyröingin sem ég hnaut um í grein S.S. er reyndar fyrsta fullyröingin í greininni og hún hljóðar svo: „Frjálshyggjumenn segja, aö lýöræöið sé helsti ógn- valdur markaðar og frelsis á okkar dögum.” Eg dreg stórlega í efa að margir frjálshyggjumenn. séu sammála þessari fullyrðingu. Eg hygg aö flestir frjálshyggjumenn telji alræöisríkiö Sovétríkin, útþenslu- stefnu þess og herveldi vera helsta ógnvald markaðar og frelsis á okkar dögum. Hitt er rétt aö margir fr jálshyggju- menn hafa megnustu vantrú á því, aö hiö nánast ótakmarkaða fulltrúa-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.