Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1982, Side 37

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1982, Side 37
DV. MIÐVKUDAGUR 15.SEPTEMBER 1982. 37 DÆGRADVÖL DÆGRADVÖL DÆGRADVÖL ast miklu lengur og starfa ötullega í fjöldamörgár.” — Hvaö ert þú búinn aö starfa þarna lengi? „Eg gekk í JC í upphafi árs 1975 og er þetta því áttunda áriö mitt. Og þaö get ég sagt þér, aö þessi ár hafa veriö ótrúlega fljót aö líða.” — Hófstu strax störf af fullum þrótti? „Nei, ég gekk í félagið í febrúar og var þá aðstoöarkennari hjá Dale Carnegie, eitt kvöld í viku. Af þeim sökum mætti ég ekki á einn einasta JC fund til vors. Síðan tók ég þátt í alþjóölegu þjálfunamámskeiði sem haldiö var í Reykjavík haustið 1975 og haföi þaö úrslitaáhrif á mig. Segja má að þá hafi starf mitt hafist fyrir alvöru.” JC félagar eru eftirsóttir — Sjáið þiö einhvern árangur af starfiykkar? „Já, alveg tvímælalaust. Það er mikil eftirspurn eftir fólki úr JC í ýmiss konar stjómunarstörf. Eg gæti tekið sem dæmi íþróttahreyfing- una. Margir af okkar bestu mönnum starfa þar viö stjómunar- og skipu- lagsstörf meö góöum árangri. Það kemur okkur ekkert á óvart aö fólk úr JC skuli vera eftirsótt. Þaö geng- ur í gegnum góðan skóla og lærir þar flestar hliöar á mannlegum sam- skiptum — ræðumennsku, stjórnun, framkomu og svo framvegis.” — Hvaö er kosiö til langs tíma í trúnaöarstörf h já J C? „Þaðer kosiö til eins árs. Og er það jafnframt hámarkstími i hverju embætti. Þannig gefst sem flestum tækifæri á aö spreyta sig.” — Hvernig er andinn í þessum fé- lagsskap? „Hann er geysilega góöur og þetta er mjög samhent fólk, enda væri hreyfingin ekki þaö sem hún er í dag ef svo væri ekki. Mér finnst eitt athyglisvert í JC og það er aö ef maður vinnur verk sitt vel—stendur sig í einhverju starfi — þá koma fé- lagamir og hrósa manni og hvetja mann til frekari dáöa. Þetta tel ég vera mjög mikilvægt. Því miður virðist vanta slíka hvatningu í öðrum félögum og yfirleitt í þjóðfélaginu.” GunnlaugurS. Gunnlaugsson Guðmundur Borgþórsson forseti JC Reykjavik í ræðustól. — Er þátttakan í starfinu almennt góð? „Virkni hins almenna félags- manns er mjög góö í JC. Ég myndi áætla að hún væri svona um 60%. Og á ég þá viö aö um 60% félagsmanna starfi þar af þrótti — af fullri alvöru. Ég held það gerist ekki betra í fé- lagsmálum.” Markmiðið er þjálfun einstaklingsins — Þiö hafiö verið meö sérstök landsverkefni hreyfingarinnar í góö- gerðarskyni, til dæmis í tilefni af ári aldraöra nú, er þetta góðgerðarfé- lag? „Nei, það get ég ekki sagt. Viö get- um ekki talist til hinna hefðbundu góögeröarfélaga þrátt fyrir aö við höfum sinnt verkefnum til styrktar ákveönum hópum í þjóðfélaginu. Meginmarkmið JC er aukinn þroski og þjálfun einstaklingsins.” — Hvemig er ræöunámskeiðum ykkar háttaö? „ Viö emm meö tvenns konar ræöu- námskeið. Annaö er fyrir byrjendur og kallast ræöunámskeið eitt. Þaö stendur yfir í átta kvöld. Nám- skeiðinu lýkur svo með „litlu ræöu- keppninni” og keppa þar þriggja manna lið innan hvers svæöis. Síðan er ræöunámskeið tvö fyrir þá sem lengra eru komnir. Þaö samanstend- ur af sex kennslustundum. Því nám- skeiöi lýkur svo meö „stóru ræðu- keppninni”. Þar er keppt á lands- grundvelli og er hvert ræöuliö skipaö fimm mönnum. Urslitakeppnin fer svo fram á hverju Landsþingi JC.” — Er fariö með einkunnarorö hreyf- ingarinnar á hver jum félagsfundi? „Nei, viö förum einungis með þau viö sérstök tækifæri, eins og þegar viö tökum inn nýja félaga og svo á landsþingum. Einkunnaroröin eru í raun okkar þjóðsöngur. Þannig aö viö förum sparlega meö þau,” sagði Ámi Þór Árnason landsforseti JC aö lokum. Fundarmenn voru glaðlyndir á þessum fyrsta fundi starfsársins. DV-myndir: GVA. Andrés Sigurðsson, aiþjóðlegur varaforseti JC, ávarpar fundarmenn hjá JC Reykjavik íslenska hreyfingin nýtur mikils trausts segir Andrés Sigurðsson alþjóðlegur varaforseti JC International JC-hreyfingin var stofnuð í St. Louis í Missouri í Bandaríkjunum árið 1915. Stofnandinn var Henry Giessenbier. Hugmyndin aö stofnun félagsins breiddist um veröldina og 1944 komu fulltrúar átta þjóöa sam- an í Mexíkó og stofnuðu alþjóðasam- tök JC (JC-Intemational). Nú eru JC félög frá 75 þjóðum fullgildir aðilar aö alþjóöa- hreyfingunni og eru félagsmenn samtals um hálf milljón. Æösti embættismaður hreyfing- arinnar er heimsforseti og er þaö nú Bandaríkjamaður að nafni Barry L. Kennedy. Kom hann hingað til lands í siöustu viku og hélt námskeið. Síöan koma fimm framkvæmdafor- setar og fyrir neðan þá 16 alþjóðlegir varaforsetar. Einn Islendingur gegnir stöðu alþjóölegs varaforseta nú. Er þaö Andrés B. Sigurösson viöskipta- fræöingur. Viö trufluðum hann viö störf sín í Vörumarkaðnum og fengum hann til aö skýra f rá störf um sínum á alþ jóöavettvangi. „Þessir 16 alþjóöa-varaforsetar skipta með sér heiminum og heíur hver ákveðiö svæði til umsjónar. Eg hef á minni könnu sjö ríki í Afríku. Þau eru Suður-Afríka, Kenya, Zimbabwe, Malawi, Zambía, Seychelles-eyjar og Nígeria. Allar þessar þjóðir eru enskumælandi. Síðan er annar varaforseti með hin Afríkuríkin. Eg fór til allra þessara ríkja og dvaldi þar í 37 daga. Þaö var alveg ógleymanleg ferö.” Miðlum þekkingu og reynslu — I hverju er starf alþjóðlegs varaforseta fólgið? „Sem stjómarmaður í alþjóöa- hreyfingu JC er hlutverk mitt að stuðla að eflingu félaganna í þess- um ríkjum. Við miðlum þekkingu okkar og reynslu og hvetjum þá í störfum sinum. Þeir eru vitaskuld komnir skemmra á veg en ríki hins vestrænaheims.” — Láta stjórnvöld þessara rikja hreyfinguna afskiptalausa ? „Já, það hafa þau gert. Við höfum átt mjög vinsamleg samskipti viö stjómir sumra þeirra og þær veriö hreyfingunni hliðhollar. Eg heimsótti til dæmis á ferö minni nokkra borgarstjóra.” — Þú hefur væntanlega verið spurður mikiö um Island í ferðinni? „Menn spurðu mikið um landið og var mjög misjafnt hvaða hugmyndir þeir höfðu um það. Sumir héldu að þetta væri einn jökull og ætluðu ekki aö trúa því aö einhver gróöur þrifist hér. Annars er töluvert af Islendingum starfandi í Afríku. Til dæmis er siglingamálastjórinn í Mala wi íslenskur. Hann hóf störf þar sem tæknilegur ráðunautur á vegum Samein uðu þ jóðanna. ’ ’ — Hvemig er að ferðast um Afríku? „Það er mjög dýrt. Til dæmis er hótelkostnaöur miklu hærri en í Evrópu. Hitinn var náttúrulega mjög mikill og hreinlætið var víöa mjög bágborið.” Framboð til fram- kvæmdavaraforseta — Eg hef heyrt að þú hafir boðið þig fram til framkvæmdavarafor- seta JC-Intemational? „Jú, þaö er rétt. Kosningin fer fram á heimsþinginu, sem haldiö verður í nóvember í Seoul í Kóreu. Það er töluverö vinna sem fer í kosninga- starfiö. Þaögefa t.d. allir útkynning- arbæklinga. Kosnir verða fimm framkvæmdavaraforsetar og tíu eru í framboði. Ég hætti nú sem varafor- setiendabúinnaöveraíeitt ár, sem er hámarkstími í öllum trúnaöar- störfumJC.” — Hafa fleiri Islendingar gegnt starfi alþjóðlegs varaforseta ? „Já, Olafur Þ. Stephensen var kjörinn í þetta, en fleiri erum við ekki. Islenska hreyfingin nýtur mikilstrausts innan J C International. Enda erum við þeir einu, sem . höfum alitaf verið í vexti hvað félagaf jölda varðar. Yfirleitt er það svo að það skipt- ast á skin og skúrir hjá félögunum. En við höfum alltaf verið í sókn,” sagði Andrés aö lokum. Við óskum honum góös gengis í kosningabaráttunni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.