Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1982, Side 8
DV. ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTOBER1982.
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Rússneskur kafbátur; tíðir gestir i sænska skerjagarðinum.
Enn kafbátur að
læðast i skerja-
garði Svíanna
Sænski flotinn, sem hefur frá því á
föstudag fylgst með og elt kafbát.er
fannst nærri flotastöðinni í Muskoe,
mun hugsanlega neyða hann til þess
að koma upp á yfirborðið og gefa sig
fram, eftir því sem talsmaður
vamarmálaráðuneytisins í Stokk-
hólmi sagði í morgun.
1 eltingarleiknum hefur nokkrum
sinnum veriö varpað djúpsprengjum
að hinum óþekkta kafbáti þegar her-
skipin sænsku, sem hafa fylgst með
honum, leituðu hans við eyjarnar
austur af Stokkhólmi.
Til þessa hafa Svíar ekki lagt kapp
á að neyða kafbáta, sem þeir hafa elt
þannig í landhelgi sinni, til þess aö
koma upp á yfirborðiö. Hafa þeir
látið nægja að varpa djúpsprengjum
nærri þeim, en þó aldrei í þeim til-
gangiaöhæfa.
I október í fyrra strandaði sovésk-
ur kafbátur í innsiglingunni í gegn-
um skerjagaröinn fyrir utan flota-
stöðina í Karlskróna. Héldu Svíar
kafbátnum í sjálfheldunni í tíu daga.
Þótti Svíum almennt sem sovéskir
kafbátar væru þó orðnir ögrandi um
of og hafa stjómvöld verið undir
þrýstingi almenningsálitsins síðan
um að herða eftirlitið.
Kafbáturinn, sem þessa dagana
birtist í mæli- og leitartækjum
sænsku herskipanna, er sagður
staddur í Haarsfirði. Hann er f jarri
því sá eini sem Svíar hafa orðið varir
við eftir kafbátsstrandið í fyrra, en
hinir hafa ekki verið staöfestir jafn
nákvæmlega.
Talsmenn sænska flotans hafa ekk-
ert látið uppi um hvemig þeir hyggj-
ast neyða kafbátinn upp á yfirborðiö,
ef þeir láta til skarar skríöa.
íhaldið þingar í Bríghton
Landsþing breska íhaldsflokksins
hefst í dag í Brighton að venju og
sennilegast þykir að það muni eins og
ársþing hinna flokkanna taka mið af
því að líklegast verða almennar þing-
kosningar hjá Bretum áður en lands-
þing kemur aftur saman næst.
Þetta er fyrsta meiriháttar flokks-
samkoma íhaldsmanna síðan stríöið
um Falklandseyjar leið, en sigur Breta
í deilunni jók mjög hróður Thatcher-
stjórnarinnar, sem síðan hefur ásamt
íhaldsflokknum setið í öndvegi í
skoðanakönnunum. Er búist viö því að
það veröi glatt á þingi íhaldsmanna að
þessusinni.
thaldsmenn hafa neitað þvi að þeir
reyni að nýta sér meðbyrinn í Falk-
landseyjadeilunni til þess að breiöa
yfir lakari framgöngu stjórnarinnar í
öðmm landsmálum og Thatcher hefur
lýst því yfir að hún muni ekki nota sér
vinsældirnar upp úr málalokum þar til
þess að efna til kosninga meðan byr er
hagstæöur. Það em enn eftir 18 mánuö-
ir af kjörtímabiiinu, en almennt giska
menn á aö hún muni efna til kosninga í
síðasta lagi í október næsta ár.
Danska stjórnin ætlar að
skattleggja lífeyrissjóðina
Þórir Guðmundsson frá Khöfn:
„Efnahagsaögerðirnar, sem
Danmerkurstjóm mun opinbera í dag,
gera ráð fyrir 20 milljarða d. króna
niðurskuröi á f járlögunum, sérstökum
skatti á lífeyrissjóöi 4% launaramma
og 4% hámark á hækkun hinna ýmsu
opinberu f élagsbóta.
Skatturinn á lífeyrissjóðina kom
fólki algerlega á óvart en hann er til
tveggja ára og á að gefa 4 milljarða
d.kr. tekjur á árinu 1983 og 6 milljaröa
tekjur 1984.
Launahækkunum á aö halda í skefj-
um með því að bjóða skattaívilnanir,
ef hækkanirnar fara ekki yfir 4%, en
hótaö er aö bindá laun meö lögum, ef
launahækkanir fara yfir þaö.
Atvinnuleysisbætur, veikindadag-
peningar og fleira þess háttar eiga
ekki að hækka meir en 4%, en elli og
örorkulífeyri fá þó aö hækka um6%.
Beina styrki til sveitarstjóma á að
skera niður um þrjá milljarða ’83 og 6
milljarða ’84. - „Frá 1982 til 1983 ná-
um viö að stöðva vöxt hins opinbera,”
sagði Henning Christophersson fjár-
málaráðherra. „En á næstu árum er
erfitt að sjá hvemig unnt er að komast
hjá beinum mínusvexti hjá því opin-
‘befa.”
Eyðileggja skot-
stöðvar Sýrlend-
inga í loftárásum
Israelskar herflugvélar réðust í gær
á stöðvar Sýrlendinga í fjöllunum
austur af Beirút í Líbanon og eyði-
lögöu skotstöð fyrir sovéska SAM-9
eldflaugar. — Tæpum sólarhring fyrr
höfðu sex ísraelskir hermenn verið
drepnir á þessum sömu slóðum.
Israelar hafa ekki dregið Sýrlend-
inga til ábyrgðar fyrir árásina á lang-
ferðabílinn í fyrradag, en saka þá um
önnur vopnahlésbrot og eins fyrir að
halda hlífiskildi yfir skæmliðum
Palestínuaraba, sem haldi uppi árás-
um á Israela frá bækistöðvum sinum á
sýrlensku yfirráðasvæði.
Sýrlenska eldflaugaskotstöðin var
sögð í Dahr E1 Baidar, sem er
hemaðarlega mikilvægt fjallaskarö,
þar sem þjóövegurinn milli Beirút og
Damaskus iiggur um.
Israelskar flugvélar eyðilögðu átta
samskonar skotstöðvar snemma í
síðasta mánuði og hafa Israelar marg-
lýst yfir að þeir muni ekki líöa Sýrlend-
ingum að koma upp slikum vopnum í
Líbanon.
Það er talið að um 7000 skæruliðar
Palestínuaraba hafist við á yfirráða-
svæöi Sýrlendinga.
Ráðherrar hjá
Olof Palme
Frá Gunnlaugi A. Jónssyni / Lundi:
Olof Palme kynnti á föstudaginn
nokkra af þeim sem verða ráðherrar í
stjórn hans. Mesta athygli vakti
skipan Börje Andersson, Rauði-Börje
eins og hann er yfirleitt kallaður, i
embætti vamarmálaráöherra.
Andersson þessi, sem er 52 ára
gamall, játaöi hreinskilnislega á
blaöamannafundi nú um helgina að
hann heföi afskaplega lítiö vit á
vamarmálum. Vakti skipan hans í
embættið ekki sist athygli fyrir þá sök
aö sósíaldemókratar héldu uppi mikilli
gagnrýni á Torsten Gustafson, fráfar-
andi varnarmálaráðherra, fyrir
fákunnáttu á sviði varnarmála og
kröfðust þess ítrekað að hann segði af
sér embætti.
Þá vakti mikla athygli að Bengt
Dennis, einn af ritstjórum Dagens
Nyheter, var gerður að seölabanka-
stjóra. Aðrir ráðherrar sem Palme
hefur þegar kynnt verða Kjell Olaf
Feldt f jármálaráðherra, Svante Lund-
kvist landbúnaðarráðherra og Anna
Greta Lejon vinnumálaráðherra.
Palme: Skipar vamarmálaráðherra
með litla reynslu af slfkiim málum.
Spá annarri
valdaránstil-
raun eftir kosn-
ingar á
Eftir uppljóstmnina um valdaráns-
samsæri spánska hersins segir Felipe
Gonzalez leiðtogi spænskra socialista
(líklegast næsti forsætisráðherra
landsins) að búast megi við því að
fleiri slík byltingarsamsæri séu í deigl-
unni.__________________
Dauðarefsing
íPakistan
Herstjórnin í Pakistan hefur
lögleitt dauðarefsingu fyrir þá
sem stunda hryðjuverkastarf-
semi. „Glæpsamleg samsæri”
gegn öryggi landsins flokkast hjá
þeim einnig undir hryðjuverk.
Ákvörðun um dauöarefsingu
var tekin í kjölfar aukinna
sprengjutilræða og ofbeldisverka
sem beint er gegn stjórninni. A
síöustu mánuðum hafa margir
stjórnmálamenn, sem fylgja Zia
ul-Haq forseta að málum, verið
myrtir.
Spáni
Sagði Gonzalez við fréttamenn í gær
að hugsanlega yrði önnur byltingartil-
raun gerð eftir kosningarnar í næsta
mánuði,en þar spá flestir flokki hans
sigri. — Hann taldi þó engar líkur á því
aðslíkt valdarán gæti lánast.
„Þaö á engan hljómgmnn á Spáni í
dag,”sagði hann.
Yfirvöld Spánar tilkynntu á sunnu-
daginn aö komist heföi upp um valda-
ránssamsæri og að þrír ofurstar úr
stórskotaliði hersins hefðu verið hand-
teknir. Fundust heima hjá þeim leyni-
skjöl, sem sýndu áætlanir um
byltingartilraun, sem gera átti 27.
október. Ekki hefur enn verið rannsak-
að til fulls hversu víðtækt þetta sam-
særi hefur verið. Þolinmæði stjórn-
málamanna og almennings á Spáni
með eilífum byltingartilburðum meðal
foringja hersins er senn á þrotum og
gerast æ háværari þær raddir sem
krefjast þess að hreinsað verði ræki-
lega til innan hersins.