Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1982, Síða 11
DV. ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTOBER1982.
11
ER HITAVEITA AKUR-
EYRAR SKAÐABÓTA-
SKYLD VEGNA TÆR-
INGAR í OFNUM?
—Tæringarmáliö, sem upp kom hjá Hitaveitu Akureyrar
í sumar og DV sagði þá frá, er enn óútkljáð
Ekki hefur enn fengist botn í
tæringarmálið sem upp kom hjá
Hitaveitu Akureyrar. Eins og greint
var frá í DV í sumar þá er talið víst
að tæringarvaldurinn hafi verið súr-
efni sem komst inn á dreifikerfi
veitunnar um miðlunargeyminn ofan
Miðhúsaklappa. Sá geymir hefur
ekki verið tengdur dreifikerfinu
síöan þetta mál kom upp. Þá hefur
einnig komið í ljós að súrefni bland-
ast vatninu í miðlunargeyminum við
Þórunnarstræti og vitað var um lítils
háttar súrefni í vatninu upp úr bor-
holunum. Fljótlega eftir að tæringin
kom i ljós hófst íblöndun
natriumsúlfiðs í vatnið en það e&ii
eyðir úrþví súrefninu.
Hvaða skemmdir urðu?
„ Við höf um notað okkur tímann til
að glöggva okkur á því hvaða
skemmdir hafa orðið í dreifi-
kerfinu,” sagöi Wilhelm V.
Steindórsson hitaveitustjóri í
samtali við DV. „Miðlunar-
geymamir, stofnpípumar og
dreifikerfið sjálft hafa ekki orðið
fyrir tjóni. Hins vegar hafa
innanhússkerfin skemmst í af-
mörkuðu hverfi, beggja vegna Hlíðar-
brautar. Þaöan hafa 30—35 aðilar til-
kynnt um leka og göt á ofnum. Við
getum ætlað aö meginhluti þess leka
stafi af völdum súrefnis sem bland-
ast hefur í vatnið í veitukerfinu. Hins
vegar hefur það ekki verið sannað og
erekki fullljóst.”
— Þú talar um að kvartanir hafi
borist frá 30—35 húseigendum í
hverfinu. Má þá ekki búast við að
tæringarskemmdir hafi orðið í öilum
húsunum, þannig aö hætt sé viö leka
hvenær sem er sem getur valdið
ómældu tjóni, til að mynda ef íbúöin
er manniaus. Væri því ekki ástæöa til
að þrýstiprófa innanhússkerfin í öllu
þessuhverfi?
„Þaö má náttúrlega búast við því
að einhver tæring sé í öðmm ofnum í
þeim húsum sem orðið hefur vart við
leka,” svaraöi Wilhelm., Jiinsvegar
er ekki rétt að álykta að þó það sé
komið gat á einn ofn þá sé við þaö að
koma gat á annan. Það eru svo
margir og ólíkir þættir sem spila inn
í dæmiö að það þarf ekkert samband
að vera þama á milli. Staðreyndin er
sú að eftir að súrnum var náð úr
vatninu þá hefur heyrt til
undantekninga ef tilkynnt hefur
verið um lekan ofn. Tæringin sem
slík er því gengin yfir. Og það get ég
líka sagt þér aö jafnvel ofn sem er
1.2 mm að þykkt, sem við getum sagt
að sé hálftærður, þá skiptir það
engu máli ef áframhaldandi tæring
Wilhelm V. Steindórsson hitaveitn-
stjóri segir að stefnumarkandi
ákvörðtm verðl tekln í tæringarmál-
inu á mlðvikudaginn.
DV-myndir: GS/Akureyri.
verður ekki. Hann getur haft sinn líf-
tíma upp á einhver ár sem eru
frekartugir en einingar.”
— En er ekki ljóst að líftími hans
hefur styst?
„Nei, þaö þarf ekki að vera. Líf-
tíminn á að geta verið eðlilegur ef
ekki er áframhaldandi súr á kerfinu.
Verði hins vegar áfram súr í vatninu
og tæringin heldur áfram með þeim
hraða sem við teljum ekki eðlilegan,
þá er ljóst að liftíminn er orðinn
styttri. Eg hef bara ekki trú á því að
það veröi áframhaldandi súr þannig
aö þaö veröi áframhaldandi tæring,
nema þá í svo litlum mæli að það er
ekki um það að tala í þessu
sambandi,” svaraðiWilhelm.
— Samt hlýtur að vera erfitt að
fullyröa nokkuð í þessu sambandi og
tjónhættan er mikil ef ofn fer að
leka. Er ekki ástæða til að Hitaveitan
hafi forgöngu um að þrýstiprófa
innanhússkerfin í hverfinu þrátt
fyrirallt?
„Það væri ekkert óeðlilegt þegar
málið er komiö á þaö stig aö einhver
slík athugun verði gerð til endanlegs
kontróls á þessu. En við skulum hafa
í huga að það þarf töluvert mikla
tæringu til að þrýstiprófun gefi
einhverja mynd,” sagði Wilhelm.
— Þrýstiprófun ætti þó að sanna
húseigandanum aö hann þurfi ekki
að óttast leka á næstunni?
„Já, það má kannski segja þaö að
slík prófun gæfi mönnum ákveðin
svör hvaö það varðar En þó held ég
ekki nein tæmandi svör. Eg held að
þær mælingar, sem við höfum gert á
prufum úr fjölda húsa í hverfinu,
segi okkur talsvert meira. En það
væri vel hægt að hugsa sér að útfæra
slíka þrýstiprófun og ekkert hægt að
útiloka það að hún kannski leiði eitt-
hvað i ljós. Málið er bara ekki komið
á það stig, ” sagði Wilhelm.
— Hefur verið tekin afstaða til
þess hvort Hitaveitan bætir húseig-
endumskaðann?
„Nei, það hefur ekki verið gert.
Þetta er margþætt mál og flókið,
enda hefur það tekið þennan tíma hjá
okkur aö komast á það stig aö hægt
sé að fara að ræða lagalegu hlið
málsins. Hreinn Pálsson bæjarlög-
maöur hefur skilaö stjórn Hita-
veitunnar greinargerð. Hann var
beðinn um viöbótarupplýsingar sem
væntanlega liggja fyrir stjómar-
fundi á morgun, miðvikudag. A þeim
fundi verður væntanlega tekin af-
staöa til þessa máls, þar á meöal
þess hvort Hitaveitan kemur til með
að bæta húseigendum skaðann.
Mál dómstólanna
— Er Hitaveita Akureyrar
skaðabótaskyld í þessu máli?
„Því get ég ekki svarað, og ég
reikna ekki með að þeirri spurningu
verði svarað fyrr en hjá
dómstólum,” svaraði Hreinn
Pálsson bæjarlögmaður. „Þaö sem
hefur verið rætt um er hvort
einhvers konar þátttaka Hitaveit-
unnar í þessu tjóni kæmi til greina
Svona líta þeir ofnar út að innac
einn tæringarpollinn.
sem tærlng er byrjuð L Pennlnn bendlr á
án þess að það væri nokkur viður-
kenning á bótaskyldu. Þó er það
engan veginn ákveðið enn í stjóm-
inni, að þvi er ég veit.”
— Það er þá ekki hægt að svara
því ákveðið hvort Hitaveitan er
skaðabótaskyld?
„Nei, í rauninni er það ekki, því að
ef í hart færi, sem ég vona nú að
verði ekki, þá er það dómstólaniður-
staða ein sem gæti skoriö úr um
það,” svaraði Hreinn, og hann
helduráfram:
„Hins vegar er það þannig með
veitur, hvort heldur það er hitaveita
eða rafveita, að þær eru ansi fríar
við allar bótaskyldur Það er beinlínis
tekið fram í reglugerðum þeirra, og
byggt þá á landslögum skulum við
vona, því annars stenst þaö ekki að
t.d. rekstrartruflanir og annað sé
ekki bótaskylt. T.d. ef við tökum raf-
veitumar, þá hafa þær komist undan
bótaskyldum þegar rafmagn fer af
og svo og svo mikið eyðileggst af mat
í frystikistum. Þaö er hins vegar
spurning þegar um er að ræða mis-
tök eða eitthvað slíkt, þá náttúriega
getur komiö upp önnur staða. Þá er
hugsanlega um að ræða bóta-
skyldu.”
Er tæringin úr sögunni?
— En er ljóst að súrefnið er farið
úr vatninu og tæringin stöðvuð?
Wilhelm Steindórsson svarar:
..Staðreyndin er sú að í vatninu
sem kemur upp úr jörðunni hefur
alltaf verið súr, örlítill. Það hefur
alltaf verið vitað og við höfum fylgst
með áhrifum þess. Síðan bættist við
meira súrefni í miðlunargeymunum,
en þar var ekki um bilun að ræða.
Geymarnir em þannig gerðir að yfir-
borð vatnsins getur tekið í sig súrefni
við snertingu andrúmsloftsins. Þaö
er þetta súrefni sem er skaðvald-
urinn. Eftir að tæringin kom í ljós
var efri geymirinn aftengdur og
hafin blöndun natríumsúlfiös í vatn-
ið og því er enn blandað í. Efri
geymirinn verður ekki tekinn í
notkun fyrr en gerðar hafa verið á
honum endurbætur, en súrefninu
sem kemur i vatninu úr jörðunni og
því sem bætist í það í neðri
geyminum við Þórunnarstræti því
ereytt meö íblönduninni.”
— Þannig að vatn sem kemur inn
á hitunarkerfi húsanna í dag er súr-
efnislaust?
„Það er súrefnislaust,” sagði
Wilheim.
— Er ekki ástæöa til aö auka
eftiriit með hugsanlegu súrefni í
vatninu miöaö við þessa reynslu?
„Þama er komiö upp mál, sem við
verðum að sjálfsögðu að taka mið af
og læra af,” svaraði Wilhelm.
„Þegar miölunargeymnarnir voru
settir upp þá kom ekkert það fram
sem sýndi að súrefnisblöndun í
vatnið væri þar fyrir hendi. Þaö er
hins vegar ljóst núna og við verðum
að sjálfsögöu að fylgjast með þessu
áfram.”
— Má skilja það svo að þið séuð
búnir að taka upp reglubundið
eftirlit?
„Þegar þú stillir þessu svona upp
þá er svoiítið erfitt að svara. Þetta
mál er enn í meðhöndlun og við
erum ekki enn komnir til botns í því.
I upphafi var vitaö um súrefnið
sem er í vatninu upp úr borholunum.
Þess vegna voru settar svonefndar
súrefnisplötur í kerfið á 4 stöðum. Nú
hefur verið rætt um að setja siíkar
plötur upp víðar, en þær geta aldrei
útilokaö tæringu í kerfinu. Það
verður aldrei hægt. En það er full á-
stæða til að útvíkka eftirlitið og það
verður stefnt aö því. Þar að auki út-
fæmm við sérstakar súrefnis-
mælingar með jöfnu millibili, en það
verður ekki ástæða til að halda þeim
áfram eftir aö geymarnir ' verða
komnir í lag,” sagði Wilhelm V.
Steindórsson.
-GS/Akureyri.
5tlYltN 15 VtKI\5IYI
MYNDSKREYTT AF
I haust hafa nemendur í sjöunda og
áttunda bekk grunnskólans á Akranesi
unnið að skreytingu á einum vegg
Sementsverksmiðjunnar.
Undanf ari þess máls er að síðastliöið
haust rituðu mynd- og handmennta-
kennarar Brekkubæjarskóla stjórn
Sementsverksmiðjunnar bréf og fóru
þess á leit að fá að skreyta einn vegg
verksmiðjunnar. Tók stjómin vel í það
og bauöst til að veita viðurkenningu
fyrir bestu tillögumar sem kæmu frá
nemendum. Efnt var til samkeppni í 7.
og 8. bekk skólans í vetur og valdi dóm-
nefnd frá Sementsverksmiðjunni bestu
myndina, en höfundur hennar er Gísli
Eyleifsson. Að auki voru veittar fimm
viðurkenningar.
Myndina tók Björn Pétursson frétta-
ritari DV á Akranesi. ÖEF