Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1982, Síða 17
DV. ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTOBER1982.
17
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
Til íþróttafréttaritara:
Gætið hófs í
fyrírsögnum
—gömlum ullarteppum oftast
hent á haugana
H.J. skrifar: fegnir því ef DV hætti aö skreyta
Frámunalega leiöinlegar feitletraö-
ar fyrirsagnir íþróttafréttaritara DV
fara í taugarnar á mér, og dæmi hver
semvillumþað.
Þaö vill svo til aö ég á mitt
átrúnaðarlið í handknattleik, eins og
svo margir aörir. Mitt lið er Fram,
sem er að visu kannski ekki eitt af
sterkustu liöunum, en þó lið, sem á
góöum degi gæti velgt hvaða liði sem
væri undir uggum.
Þaö gerðist um daginn að Fram tap-
aði fyrir Þrótti með 8 mörkum, og á
sama tíma tapaði Víkingur fyrir FH
með 10 mörkum og takið eftir þessu,
sjálfir Islandsmeistaramir tapa meö
10 marka mun. Hvaða fyrirsagnir
fengu svo liöin á leiki sína? Jú, Fram
var „rúllað upp eins og gömlu ullar-
teppi”, svaka sniðug fyrirsögn á
íþróttafrétt. Víkingar fengu fyrirsögn-
ina „ Islandsmeistarar skotnir í kaf í
Hafnarfirði”.
Er nokkur munur á þessum fyrir-
sögnum? Jú „gamalt ullarteppi” er nú
ekki mikils virði og þeim oftast hent á
haugana, en Islandsmeistarar Víkings
eru enn þeir sömu, og vel að því komn-
ir sem skemmtilegt og gott liö. Svo
kom að því að Þróttur tók stöðu ullar-
teppisins eða hvað fannst fréttamanni
DV?
Nei bæöi ég og margir aörir yrðu
íþróttasíðuna með teppum hvort sem
um ullar eða nælonteppi er að ræða og
því fagna ég og virði þá fyrirsögn sem
kom eftir leikinn KR — Þróttur. Þar
var haft eftir Páli Olafssyni að KR
væri gott lið, en ekki 10 mörkum betra.
Þetta geta allir vel við unað. Eg er viss
um það aö ef KR hefði tætt Þrótt í
sundur eins og gamalt virðulegt
parketgólf þá hefði einhverjum Þrótt-
ara sámað.
Eftir leikinn viö Þrótt var rætt við
Bent Nygaard þjálfara Fram og voru
orð hans í greininni á þá leið að liðið
væri ekki tilbúið í Islandsmótið eftir
stíft Reykjavíkurmót. Máttu þessi orð
ekki standa sem fyrirsögn líkt og orð
Páls Olafssonar?
Ég legg til að þiö frómu íþrótta-
fréttamenn hallið ykkur að íþróttalegri
fyrirsögnum, ekki bara okkar
Framara vegna heldur hinna liðanna
einnig, því enn hefur Fram ekki tapað
leik í Islandsmótinu meðtveggja stafa
tölu, hvað sem verður.
Ég ann hverju liöi sigurs, sem til þess
hefur unnið, með baráttu og góðri liðs-
heild, þá er drengilega barist og upp-
skeran eftir því. Þess vegna bið ég
ykkur kæru fréttamenn að ríða ekki á
vaöið með svona niörandi ummælum
um íþróttakeppni í hvaða mynd sem
húner.
„Meinárar” valda
óhemju tjóni
— segirgarðeigandi
Hjörtur Eliasson hringdi:
Nú undanfarna daga hafa fjáreig-
endur Reykjavíkur og nágrennis veriö
að smala fé sínu til rétta og virðist mér
það vera mikiö safn.
Nokkur hluti þessa fjár gengur á
sumarbústaðalöndum í nágrenni
Reykjavíkur. Eruþettameinárar sem
engin girðing heldur og eigendurnir
hafa sérstakt dálæti á þar eð ær þess-
ar koma með vænstu dilkana. Eigend-
urnir hafa því komið sér upp heilli
hjörð af meinárum, enda hefur
ágangur þessa f jár aldrei verið meiri
Kindaskjátur þessar hafa valdið
óhemju tjóni á trjágróðri, garðávöxt-
um og öðrum gróðri. Eigendur fjárins
munu flestir, ef ekki allir, hafa annað
aðalstarf og stunda fjárbúskap í hjá-
verkum.
Á sama tíma ráðgera bændur að
fækka sauðfé um 50.000 á þessu ári
vegna offramleiðslu á kindakjöti. Ætt-
um við ekki að byrja á því að fækka
sauðfénu á höfuðborgarsvæðinu? Ég
skora á viökomandi aðila og ráöamenn
að losa okkur fjölbýlisbúa við þennan
ófögnuð.
„Em þotta meinárar sem engin giröing heldur" — segir HJörtur Eliasson
um sauðfó á höfuöborgarsvæöinu. Sú var tiöin að á íslandi var sjaldan rmtt
um búfónað nema sem „blessaðar skepnurnar", enda hungurvofan á
næstu grösum efhann fáii.
„Þeð villsvo tHaðágá mitt átrúnaöariið ihandkrmttíeik, eins og flestir aðrir. Mitt lið er Fram" — segir H.
J. Hór eigast við Fram og Þróttur.
*
IMú kemur þú
í DV bílaleik!
Stórg/æsi/egur Ope/ Kadett
að verðmætikr. 180.000.