Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1982, Qupperneq 18
18
DV. ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTOBER1982.
Bflar
Bflar
Bflar
Bflar
er mjög rúmgóður, miðað viö stærð.
Vélin er hin sama og fyrr og fyrstu
kynnin af Tercel eru ljúf: vélin í gang á
fyrsta snúningi og gengur hnökralaust,
og sjálfvirkt innsogið virkar vel. Hún
er með yfirliggjandi kambás og af nýj-
ustu kynslóð bílvéla.
Borvídd er meiri en slaglengd, og
seigla því ekki mikil á lágum snúningi,
en vinnslan er skemmtileg upp í sex
þúsund snúninga.
Fremur Irtið, en
hagkvæmt farangursrými
Einn ókostur gamla Tercels var hve
lítið farangursrýmið var og lokið litið.
Á nýja bílnum hefur fengist meiri hæð í
farangursrýminu en áður, og aftur-
huröin opnast alveg niöur aö stuðara,
en engu að síður finnst mér að mátt
hefði stækka rýmið meira. Það bætir
úr skák aö bíllinn er ekta skutbíll,
hægt að fella sætisbakiö hálft eða allt
OMAR
RAGNARSSON
SKRIFAR UM BÍLA
Nýtt sterkt
niður og stækka með því farangurs-
rýmið úr 248 litrum upp í 911 en
hvorug þessi tala er neitt sérstök.
Gormaskálarnar aö aftan stela nokkru
úr farangursrýminu, og hefði kannski
verið betra að hafa gormana neðra,
eins og er á nýja keppinautnum,
Mitsubishi Tredia, að ekki sé nú talað
um að nota fjaðurstengur, eins og á
Renault 9, sem spara enn meira pláss.
Ekki þarf lykil til aö opna skuthurö á
Tercel, sem er kostur.
Nýi Tercelinn finnst mér mun eigu-
legri bill en sá gamli. Utlitið er mun
nýtískulegra, dálitið í ætt við Mazda
323, sérstaklega á þriggja dyra bíln-
um. Persónulega finnst mér hlutföllin
á fimm dyra bílnum ekki eins falleg og
á Mözdunni, en þetta er náttúrlega
smekksatriði og þar að auki algerir
smámunir.
Gott sætisrými
Þegar sest er undir stýri á Tercel,
vekja góð sæti strax athygli. Þau eru
dálítiö stinn, en mjög vel löguö, og fara
mjög vel með mann. Það er algengur
misskilningur, aö mjúk sæti séu þægi-
legri en stinn, en þaö er lögun
sætanna, sem mestu máli skiptir, og
það, að þau styðja við líkamann á rétt-
um stöðum. Sætin í Tercel minna á sæti
í Golf og Kadett og verða að teljast vel
heppnuð.
Hægt er að færa framsætin heilan 21
sentimetra fram og aftur, og þarf að
fara upp í „topp” mennina í körfu-
boltanum til þess að finna menn sem
ekki f á nægt rými fyrir fætur.
Bíllinn sem ekið var var rikulega
búinn á japanska vísu. Sérstakt ljós
logar í mælaborði meö orðinu
economy, og er grænt, þegar lítið álag
er á vél, en gult, þegar meira reynir á
hana.
Ljósið sýnir þó ekki bensíneyðslu,
heldur nánast aðeins það, hve langt
bensínfetillinn er stiginn niður. Þannig
er t.d. hægt að aka á 6000 snúningum á
fyrsta gíri, eins og Bjössi á mjólkur-
bílnum forðum, án þess að ljósið verði
gult!
Fyrir fjórum árum kynntu Toyota-
verksmiðjumar fyrsta framhjóladrifs-
fólksbilinn, sem framleiddur er þar á
bæ, og hlaut hann nafnið Tercel.
Stærstu bílaverksmiðjur Japans
höföu verið tregar til þess að fara yfir í
framdrifsflokkinn, og þessi tregða lýsti
sér kannski áfram í því, að fleiri urðu
framdrifsbílarnir ekki í bili, og Tercel-
inn bar með sér nokkuö íhaldssaman
blæ. I stað þess að hafa vélina þversum
og bjóða upp á fimm dyra útgáfu eins
og keppinautarnir, hélt Toyota sig við
langsumvél, útlit Tercels var frekar
gamaldags, bíllinn langur og mjór,
farangursrými lítið og ekki hægt að fá
skutbíl, nema með tveimur hliðardyr-
um. Tercelinn féll því nokkuð í skugg-
ann af Corolla, sem hélt sessi sínum
sem mest selda Toyotan.
Leið svo fram um hríð. En vitanlega
varð að gera eitthvað í málinu og
hressa upp á stööuna i keppninni í
stærðarflokknum Golf — Escort —
Kadett — Colt — Cherry — Ritmo.
Nýr og betri
Tercel
En nú er kominn nýr og betri Tercel.
Haldið hefur verið í þaö, sem vel hefur
reynst, og í reynsluakstri kom í 1 jós, að
þeir kostir, sem bílnum var hælt fyrir,
þegar ég tók í hann fyrir tveimur ár-
um, eru enn í fullu gildi.
Þar má telja, að Tercel er enn svo
hljóölátur á möl, að leitun er að smábil
svo hljóðum. Á mölinni mældist hávað-
inn á 70 kílómetra hraða 80—81 desibel,
og 83 desibel á grófri möl. Þetta er 2—3
desibelum hljóöara en gengur og ger-
ist, þótt ekki sé Tercelinn jafn hljóðlát-
ur og Corolla.
I annan stað er vél og drifi enn haldiö í
sama horfi: véUn langsum, en gír-
kassa skotiö undir aftasta strokkinn tU
þess að spara rými, svo að vél og drif
taki ekki meira rými en tíðkast í þver-
vélar-bUum. Kostir þessa eru þeir, að
það Uggur beinna viö að hafa véUna
langsum, driföxlar verða jafn langir
báöum megin, og kostur er við íslensk-
ar aðstæður, hve hátt er undir oUu-
Vólin langsum, gott að komast að flestu, og kvaikja og kmrtl llggja hétt.
pönnu og kveikja og kerti Uggja hátt.
Okosturinn er sá, að þyngdarpunktur-
inn er örUtið hærra en eUa.
Á gamla Tercelnum var hjólhaf
óvenju langt af smábíl aö vera, 2,50 m.
Rými var þvi sæmUegt, bæði frammi í
ogafturí.
Á nýja bílnum er hjólhafiö stytt um
sjö sentimetra, en samt hefur tekist að
lengja farþegarýmiö, þannig, aö nú er
betra rými i bflnum en áður. Meira
pláss var fyrir fætur í gamla Tercel en
Corolla, og nú hefur nýi Tercelinn fariö
enn Iengra fram úr Corolla.
Þrátt fyrir styttingu hljólhafsins,
koma hjólskálar ekkert inn í aftursæt-
ið, eins og á sumum keppinautunum,
og þegar við bætist, að nýi TerceUnn er
sex sentimetrum breiðari að utanmáU
en hinn gamU, og einnig breiöari en fyrr.
að innanmáU, er ljóst, að nýi Tercelinn