Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1982, Síða 19
DV. ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTOBER1982.
19
Bílar
Bílar
Bílar
Bflar
Bílar
Til eru bílar meö raunverulegum
bensíneyöslumæli, og slikir mælar
hafa fengist í flugvélar í marga ára-
tugi. Ekki skal þó economy-ljósið í
Tercel lastaö. Þaö sýnir mismunandi
eyðslu innan hvers gírs, og aki menn á
bilinu 2500 til 3500 snúningum, þjónar
þaö tilgangi sínum.
Stýrissvörun er ágæt, nákvæm og í
meðallagi létt, og gírskipting
viöunandi. Svolítil hætta er á aö fara i
5. gír í staðinn fyrir 3ja, og einhvem
veginn finnst manni, aö skiptingin ætti
aö geta veriö enn betri, úr því aö gír-
kassinn liggur betur viö en á þversum-
vélum.
En þaö má skiptingin eiga, aö útilok-
aö viröist að fá bílinn til þess aö
hrökkva úr gír, þótt spólað sé í holum,
en þetta vill henda á bílum meö vélina
þvers.
Stjórntæki liggja vel viö, og miðstöð
er hljóðlát og virkar vel, þótt hún sé
ekkert óskaplega kraftmikil.
Speglar eru stillanlegir innan frá, og
rúöusprautan að aftan er fyrir ofan
afturrúöu, svo aö vatniö lekur niöur
rúðuna. Mun öruggara en þegar
sprautan er undir rúöunni.
Rými er gott í aftursæti, og sitji
meðalmaður frammi í og renni sæti
sínu ekki of langt, er stuðningur undir
læri hjá meðalmanni aftur í. Hins veg-
ar er aftursætið dálítið stinnt í miöj-
unni þannig, aö maöur, sem situr í
miðju, þegar þrír eru aftur í, situr á
rasstortunni og fær ekki stuöning undir
lærin. Þetta þýöir stopp viö hverja
sjoppu á langferö fyrirmiöjumanninn!
Einnig er ekki örgrannt um, aö sætis-
bakið aftur í hallist full mikiö aftur,
eöa 27 gráöur.
Aö öllu samanlögöu verður Tercel þó
aö teljast rúmgóöur og þægilegur bíll í
sínum stæröar- og verðflokki, og inn-
réttingin er ágætlega heppnuö, til
dæmis hvaö snertir pláss fyrir smá-
hluti, sem víöa má finna.
Þægilegur
ferðabíll
Þá er þaö hegöunin á vegi. Víst er
Tercel þægilegur á langferö. F jöörunin
er mýkri og lengri en áöur og betri en á
mörgum japönskum bílum, og ekki
þreytir lýjandi hávaöi frá mölinni, eins
og svo algengt er á litlum bílum.
Bíllinn er vanstýrður, nema þegar
bensíngjöf er sleppt í of krappri
beygju, þá getur hann orðið aöeins of-
stýrður, þ.e., afturendinn leitar út. Ef
bílnum er ekið mjög hratt í kröppum
beygjum, er hann dálítið vakur og
erfitt aö átta sig á því, hvort hann
ætlar út meö fram- eöa afturendann.
Bíllinn, sem ekiö var, var á lágum og
breiöum hjólbörðum, 165/70—13. Þessi
dekk eru jafnhá og 145—13, og
spurning, hvort 155—13 eða jafnvel
165—13 hentar betur á slæmum,
íslenskum vegum. (165/70 þýöir, að
hæð barðans er 70 prósent af 165 milli-
metrum, eða 115,5 millimetrar. Hæö á
venjulegum þverbaröa (radial) er 78
eöa 80 prósent af breiddinni: Dekk af
stæröinni 165 — er því 129 til 132 milli-
metrar á hæö) I þessum stæröarflokki
er baröi í 70 prósent hlutfalli allt að
Farangursrými i lægra meðallagi, en hægt að fella niður sætisbakið hálft eða heilt tíi stækkunar.
Þægilegt fyrír tvo aftur í, gott rými.
tveimur sentimetrum lægri en venju-
legur barði, og Tercelinn mætti vel
vera einum til tveimur sentimetrum
hærri frá vegi.
En á malbiki og góöum vegi liggur
hann mjög vel á þessum lágu, breiöu
böröum.
Lágt undir
lægsta punkt
Lægsti punktur á Tercel eru buröar-
bitar fyrir aftan framhjól. Þar er
aðeins 16,5 sentimetra veghæð, en
þarna getur lítiö skemmst. Aðeins
hærra er undir pústkerfi, og litlu hærra
en þaö undir drif og bensíngeymi, en
oiíupanna er hátt frá vegi. Tercel er þó
örlítið hærri frá vegi en Colt og Mazda
323, og þeir staðir á undirvagninum,
sem fyrst taka niöri, eru ekki viö-
kvæmir nema helst púströriö.
Bíllinn veröur full lágur, þegar hann
er fullhlaöinn, og í sviptingum á öldótt-
um og ósléttum vegi skortir á, aö
fjöðrunin sé nógu löng eöa stinn.
Aldrei lemur þó í gegn jám í járn
einsog t.d. á VolkswagenGolf.
Hærri hjólbaröar myndu hér hjálpa
uppá.
Þegar ekið var í skarpar holur í
hliöarskriði, vildi vélin koka, og ekki
var frítt við glamur í fjöðrun að
framan, sennilega í jafnvægisstöng •
Hemlun var góö, en í miklum þollum
og vatni vildi hún dofna mikið, þótt
diskar séu aö framan.
Konunni minni fannst full þröngt aö
fara inn í bílinn til þess aö setjast undir
stýri, framsætið fuil lokaö og stutt
miili stýrishjóls og sætisins. Aö ööru
leyti kunni hún vel viö aö aka honum,
útsýni gott, ágætur kraftur og stýri
létt. Ekki þótti henni gott, hvemig
hægt er aö reka sig í flautuna, sem er
innan á stýrinu, eins og á mörgum
japönskum bílum.
Drjúgur bfll og
dávelheppnaður
I þessum reynsluakstri var leitað
lúsa í bílnum, þ.e., reynt á aksturs-
eiginleika til hins ýtrasta og margt tínt
til.
Þegar upp er staöið, veröur niöur-
staöan sú, aö þetta sé mjög sam-
keppnisfær bíll og betri en fyrirrennar-
inn, rúmgóöur, þægilegur, spameytinn
og lipur. Nú loksins hef ur hann burði til
þess aö velta Corolla úr sessi sem sölu-
hæsta japanska bílnum í heiminum, og
þaö er hreint ekki svo lítiö.
Nokkrar tölur:
fjórir strokkar,
yfirliggjandi kambás,
1295 cc.
65DIN Hövið6000snún/mín.
Tog: 9,9kgmviö3800.
Lengd: 3,88 m.
Breidd: 1,615.
Hæö: 1,385.
Hjólhaf: 2,43.
Hjólspor: 1,385/1,37.
Þyngd: 825 til 860 kiló.
Innanbreidd: 1,33—1,36.
Veghæð (óhlaðinn) 16,5 sm.
Viöbragö: 0—100 km/klst. ca 15
sek.
Eyðsla: 5,6 1/100 km á 90 km
hraða. 6,8 1/100 á 120 km hraða. Ca
8,31/100 í bæjarakstri.
Plús:
Gott rými fyrir f jóra.
Hljóöláturá möl.
Þægileg innrétting.
Góður kraftur, miðaö viö eyðslu.
Góö framsæti fyrirflesta.
Fimmgírar.
Kveikja og kerti á góöum staö.
Þægileg fjöðmn og aksturseigin-
leikar á venjulegum vegum.
M'mus:
Lágt undir lægsta punkt.
Dálitiö óákveönir eiginleikar í
kröppumbeygjum.
Farangursrými i minna lagi í full-
setnumbíl.
Fjööruntakmörkuö á hlöönum bíl á
slæmumvegi.
Aðeins 16,5sentímetrar undir lægsta punkt, á óhlöðnum bíl. Viðkvæmustu hlutar undirvagns liggja þó ofar.