Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1982, Síða 30
30
DV. ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTOBER1982.
Andlát
Sigríður Jónsdóttir lést 29. september.
Hún var fædd 8. júní 1906 í Kalastaða-
koti á Hvalf jarðarströnd. Sigríður var
tvígift. Fyrri maður hennar var Guð-
mundur Jóhannesson, en hann lést árið
1931. Þau eignuðust 2 böm. Seinni
maður hennar var Felix Ottó Sigur-
bjarnason, lést hann árið 1969. Þeim
varð tveggja bama auðið. Sigríður
verður jarðsungin frá Fossvogskapellu
ídagkl. 15.
Eirikur Hóvarðsson frá Eskifirði lést
27. sept. Hann var fæddur 14. júní 1916.
Otför hans verður gerð frá Hafnar-
fjarðarkirkjuídag.
Gísll Eiríksson, Laugavegi 4, verður
jarðsunginn frá Dómkirkjunni þríðju-
daginn 5. október kl. 13.30.
Þorbjöra Kaprasíusson verður
jarðsunginn frá Akureyrarkirkju
miðvikudaginn 6. október kl. 13.30.
Eiríkur Vaiberg, Kambsvegi 34, sem
andaöist 26. sept., verður jarðsunginn
frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 6.
október kl. 13.30.
Gisli Frímannsson, Sólvallagötu 54,
verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkjumiðvikudaginn 6. okt. ki. 15.
Guðmundur G. Guðjónsson, Álfhóls-
vegi 125 Kópavogi, andaðist 1. október.
Hildur Sigrún Hilmarsdóttir lést 3.
október.
Herdis Ásgeirsdóttir, Hávallagötu 9,
lést í Hátúni 10 B aö kvöldi hins 3.
október.
Sigríður Friðriksdóttir, er andaðist 30.
september sl., verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju fimmtudaginn 7. októ-
ber kl. 15.
Guðríður Sigurbjörasdóttir lést á Elli-
heimilinu Grund fimmtudaginn 23.
september. Utförin hefur farið fram í
kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Sigurður Guðmundsson, Grandavegi
39 Reykjavík, verður jarðsunginn frá
Fríkirkjunni miðvikudaginn 6. október
kl. 13.30.
Haflín Björasdóttir andaðist 2.
október.
Steve Fant — stórkostlegur
bandarískur dansari
Steve Fant er stórkostlegur bandarískur
dansari sem hefur dansað í 6 ár hjá Mörthu
Graham og Alvin Ailey og starfað hjá
American Dance Workshop Company. Hann
hefur einnig dansað í sumar í Helsinki, Stokk-
hólmi og Kaupmannahöfn.
Steve Fant kemur hingað á vegum Sóleyjar
Jóhannsdóttur danskennara og skemmti-
staðarins Broadway.
Hér heldur hann sex vikna námskeiö fyrir
byrjendur, lengra komna og vel þjálfaða.
Námskeiðin verða haldin í Dansstúdíói Sól-
eyjar og hefjast laugardaginn 9/10. Kennt
verður tvisvar í viku, laugardaga og sunnu-
daga e.h.
Fjölþætt tilboð um kristi-
legt æskulýðsstarf
Um þessar mundir er vetrarstarf KFUM og
KFUK að hefjast í Reykjavík og nágrenni en
félögin hafa rekið kristilegt æskulýðsstarf í
marga áratugi.
1 vetur starfa félögin á 14 stöðum á höfuð-
borgarsvæðinu í um fjörtíu deildum sem
flestar hafa fundi vikulega alian veturinn.
Félagsstarfið er öllum opið og skiptist í deild-
ir eftir aldri þátttakenda. 1 bamadeildum
skiptast á sögur, leikir, mikill söngur og
myndasýningar, svo eitthvaö sé nefnt, og í
unglingadeildum er auk vikulegra funda oft
boðið upp á ferðalög, mót, leikjakvöld og
fleira eftir aðstæðum.
Félagsstarf KFUM og KFUK er tilboð til
bama og unglinga um fjölþætt kristilegt
æskuiýðsstarf þar sem saman fer skemmtun,
fræðsla og tækifæri til að kynnast svari krist-
innar trúar við mikilvægustu spumingum lífs-
ins.
Skrifstofa félaganna að Amtmannsstíg 2b
veitir allar nánari upplýsingar um fundar-
staði og tíma víðsvegar um borgina.
Dagskrá rikisfjölmiðlanna í gær-
kvöldi var bara með skárra móti
enda vetrardagskráin tekin við og
boðar hún gott ef við verður staðið
sem lofað hefur verið. Það hefur
vakið athygli sjónvarpsgiápara að
fréttatími sjónvarpsins hefur verið
æði misjafn frá því að sjónvarps-
menn komu úr sumarfrii, fólk hefur
haft það sér til skemmtunar að veðja
sín á milli, hvort fréttatíminn gangi
fyrir sig á eðlilegan hátt eða með
miklum útsendingarmistökum. Þeir
sem hafa veöjað á útsendingarmis-
tökin hafa yfirleitt unnið og svo var
einnig í gær. Ég vona bara aö þessu
linni, því þetta er virkilega fariö að
fara í taugamar á okkur sjónvarps-
glápurum. Tommi og Jenni standa
alltaf fyrir sínu og mætti eflaust hafa
þá oftar i dagskránni. Iþróttaþáttur-
inn var mjög góður hjá Bjarna Fel.
Það yljaði manni um hjartarætur að
sjá stórkostlegan leik á milli Liver-
pool og Southampton þar sem
„Púllaramir” unnu náttúrlega létt.
Og þrátt fyrir lesendabréf á dögun-
um í DV um að Bjami sýndi of mikið
af leikjum með Liverpool þá hefur
það ekkert haft aö segja enda ansi
erfitt að úthýsa besta félagsliði í
heimi úr sjónvarpinu. Breski
gamanmyndaflokkurinn Fjandvinir
lofar góðu. Og þaö veröur ekki logið á
þá Bretana að þeir hafa „nastí”
húmor. Sjónvarpsdagskránni lauk
með mjög hugljúfri kanadískri mynd
um 12 ára munaöarlausan dreng.
Þessi mynd fékk sérstök verðlaun á
Prix Jeunesse áriö 1980 í Miinchen.
Hún á þessi verðlaun sannarlega
skilið og mætti sjónvarpið einmitt
„þefa” uppi myndir af þessu tagi
sem annars hverfa í skugga stór-
mynda sem eru þó oft verri og óraun-
verulegri. Tónleikarnir frá júgóslav-
neska útvarpinu voru þægilegir
svona undir svefninn og það sem ég
heyrði í útvarpinu í gær, bæði
morgunútvarp og hinn almenni
fréttatími, segir manni að útvarpið
verði gott í vetur.
Magnús Ólafsson
Myndln er frá fundi i unglingadeild KFUM og KFUK við Holtaveg.
80 ára afmæli á i dag, 5. október,
Þórðnr ólafsson fró Odda i Ogur-
hreppi, Njálsgötu 85. Siöastliöin 10 ár
hefur hann veriö starfsmaður hjá
Slippnum, en hefur lengstum verið sjó-
maður. Kona hans er Svanhildur
Helgadóttir frá Skarði í ögurhreppi.
Þórður er að heiman.
Grtartónleikar á
Kjarvalsstöðum
Símon ívarsson og Siegfried Kobilza halda
tónleika á Kjarvalsstöðum í kvöld, þriðjudag
5 okt. og miðvikudaginn 6. okt. kl. 20.30 báða
dagana. Forsala aðgöngumiða fyrir þá tón-
leika er í Hljófæraversluninni Rin, Frakka-
stíg 16, einnig verða miðar seldir við inngang-
inn. Föstudaginn 8. okt. leika þeir á Neskaup-
stað og verða tónleikamir kl. 20.30.
Frá Fríkirkjunni
í Reykjavík.
Fermingarböm safnaðarins fædd 1969 komi
til viðtals í kirkjuna í dag, þriðjudag, kl. 18.00.
Athugið að hafa ritföng með.
Safnaðarstjómln.
Helgarferð
í Þórsmörk
9.—10. okt. kl. 08.00.
Það er líka ánægjulegt að ferðast í óbyggðum
á haustin. 1 Þórsmörk er góö gistiaðstaða í
sæiuhúsi F.l. og Utrikt umhverfi. Farmiða-
sala og aUar upplýsingar á skrifstofunni öldu-
götu 3.
Ferðafélag Islands.
Útivistarferðir
Miðvikud. 6. okt. kl. 20. Tunglskinsganga-
Fjörubál. Fyrsta tunglskinsganga vetrarins.
Verð 60 kr. Fritt f. böm m. fuUorðnum. Farið
frá BSI, bensínsölu (í Hafnarf. v. kirkjug.)
Sjáumst.
Köttur í óskilum
hjá kattavinafélaginu
Ungur, svartur og hvítur fressköttur, hvítur á
tiýni með svarta höku er í óskUum hjá katta-
vinafélaginu. Hann fannst sl. föstudag hjá
Skjólakjöri. Upplýsingar í síma 14594.
Fréttatilkynning
Sínfóníuhljómsveit íslands
berst höfðíngleg gjöf.
Sinóníuhljómsveit Islands hefur borist höfð-
ingleg gjöf úr dánarbúi hjónanna Páls Hall-
björnssonar og Sólveigar Jóhannsdóttur,
Leifsgötu 32, Reykjavík, I arfleiðsluskrá er
þess sérstaklega getið að gjöfin sé þakklætis-
vottur fyrir störf hljómsveitarinnar sem þau
mátu mikils og virtu. Ennfremur er þess
óskað að framangreind gjöf renni til eflingar
tónlistarflutnings Sinfóníuhljómsveitar Is-
lands út um land.
Stjórn Sinfóníuhljómsveitar Islands þakkar
innilega gjöf þessa og þá velvild og þann hlý-
hug sem henni fylgir.
Sinfóníuhljómsveit Islands.
Aldraðir í
Bústaðakirkju
Þau eru nú orðin mörg árin sem aldraðir hafa
fagnað fyrstu merkjum vetrar með því að
streyma í SafnaðarheimUi Bústaðakirkju til
aUs konar viðfangsefna. Hefur starfið notið
mikilla vinsælda enda er það fjölbreytt og
leitast við að koma til móts við þarfir sem
flestra.
A miðvikudaginn kemur, þann 6. október,
verður fyrsta samverustundin á þessu starfs-
ári. Er byrjað kl. 2 síðdegis og næstu þrjár
stundirnar eru margs konar þættir á dag-
skránni. Ber þar fyrst að nefna handavinnu
og föndur sem bæði karlar og konur hafa
ánægju af að sinna og hefur ævinlega verið
bætt við nýjum þáttum á hverju starfsári.
Guðni organisti Guðmundsson hefur bæði leitt
fjöldasöng og komið með fjölmarga lista-
menn með sér til að skemmta gamla fólkinu.
Hermann Ragnar Stefánsson hefur liðkað
stirðnandi vöðva og liðamót með léttum æf-
ingum og hópdönsum. Sóknarpresturinn, eða
einhver annar í fjarveru hans, hefur annast
helgistund og öllu starfinu stjórnar Áslaug
Gísladóttir, vel studd af fjölmennum hópi
sjálfboöaliða. Og síðast en ekki síst skal
minnt á það að spilin hafá fengið góða hvíld í
sumar og eru því til í tuskið á ný en spila-
mennska á sér dyggan hóp aödáenda. Og svo
er það vitanlega kaffi og með því eins og lengi
hefur þótt við hæfi þegar góövinir hittast. En
lengri og styttri ferðalög og leikhúsferðir eru
lika áformaðar að venju.
Það er því ekki að efa að margir leggja af
stað í Bústaðakirkju á miðvikudaginn kemur.
Fyrirlestur um hafréttarmál
og norræna samvinnu
Miðvikudaginn 6. okt. kl. 20:30 fiytur Gunn-
ar Olesen frá Danmörku fyrirlestur í Norræna
húsinu um hafréttarmál. 1 lok fyrirlestrarins
ræðir hann nokkuð um nánari samvinnu milli
Félaga Sameinuðu þjóðanna á Norðurlönd-
um.
Hafréttarmál eru nú mjög ofarlega á baugi
eins og kunnugt er. Tekst að fá hinn nýja haf-
réttarsáttmála samþykktan og með því gera
auðlindir hafsbotnsins að sameiginlegum arfi
mannkynsins eða verðum við vitni að mesta
„nýlendukapphlaupi sögunnar”? Gunnar
Olesen ræðir í erindi sínu um hafréttarmál
almennt, en mun sérlega ræða þá stöðu sem
upp er komin eftir að Bandaríkin beittu
neitunarvaldi sínu.
Gunnar Olesen lauk prófi í stjórnarfarsfræð-
um viö Árósaháskóla 1977 og lagði sérlega stund
á alþjóðastjómmálafræði. Hann vann i um-
hverfisráöuneytinu danska frá 1977—1979, en
frá 1979 hefur hann unnið sem upplýsingar-
ráðgjafi við hina samnorrænu sambands-
skrifstofu Félags Sameinuðu þjóðanna, sem
hefur aðsetur í Kaupmannahöfn. Hann hefur
dvalist í Mexikó bæöi við nám og störf og farið
margar námsferðir til þróunarlandanna og
stjórnstööva Sameinuðu þjóðanna. Gunnar
Olesen á sæti i nefndum og stjómum samtaka,
sem beita sér fyrir aðstoð við þróunarlöndin
og vilja koma á nýrri efnahagsskipan í heim-
inum.
Hann tekur mjög virkan þátt í þjóðfélags-
umræðum í Danmörku; bæði skrifar hann
greinar í blöð og tímarit og heldur fyrirlestra
og þá fyrst og fremst um Sameinuðu þjóðirn-
ar, þróunarlöndin, vígbúnað og hafréttarmál.
Fyrirlestur Gunhar Olesen í Norræna húsinu
er öllum opinn.
Bridgedeild
Skagfirðinga
Þriðjudaginn 28. sept. hófst vetrarspila-
mennska deildarinnar með eins kvölds
tvímenningi og þátttöku 40 para.
Hæstskorhlutu:
1. Ole Andreason-Guðm. Pálsson
2. Haukur Heigas.-Sigrún Steinsd.,
3. Bjarni Péturss.-Sævin Bjamason
4. Hafþór Helgas. Alois Raschhofer
stlg
184
178
169
167
Þriðjudaginn 5. október verður aftur spilað-
■ eins kvölds tvímenningur, en 12. október
rrjar Barometer og er skráning þegar hafin.
Hægt er að skrá sig hjá Kristjáni Blöndal í
ma 73291 og Sigmari Jónssyni í símum:
5737 og 12817.
Sextugur veröur á morgun, 6. október,
Alexander Stefánsson, alþingismaður,
Olafsvik. Hann tekur á móti gestum á
heimili sínu í Olafsvik laugardaginn 9.
oktfrákL 15.00.
60 ára er í dag, 5. október, Ragnar
Stefánsson rafvirkjameistari, Marar-
grund 11 Garöabæ. Hann er kvæntur
Guörúnu Helgadóttur. Þau dveljast
um þessar mundir á Hótel Marriott,
Stadhoudersgade 21, Amsterdam,
HollandL
Afmæli
Bridge
80 ára er i dag, 5. október, frú Sigriöur
Guðmundsdóttir frá Grímsstöðum á
Eyrarbakka, Njálsgötu 82. Eiginmaö-
ur hennar er Eyjólfur Gíslason. Hún er
aöheiman.
Fundir
Fríkirkjan
í Reykjavík
heldur fyrsta fund vetrarins að Hallveigar-
stöðum fimmtudaginn 7. október kl. 20.30.
Sigrún Davíðsdóttir ræðir um nýjungar í
sláturgerö.
Guðlaug Björasdóttir Olsen andaöist
aö Hrafnistu aöfaranótt 3. október.
María Bára Frímannsdóttir, til
heimilis aö Holtsgötu 19 Njarðvík, lést
sunnudaginn 3. október 1982.
Tilkynningar
í gærkvöldi
í gærkvöldi
BESTA FELAGSLIÐIHEIMI