Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1982, Qupperneq 35
DV. ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTOBER1982.
35
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsliósið
Aðalleikararnir iSkiinaöi: Guðrún Ásmundsdóttír og Jón Hjartarsson.
Skilnaöur eftír
Kiartan Ragnarsson
Leikrit Kjartans Ragnarssonar,
Skilnaöur, var formlega frumsýnt hjá
Leikfélagi Reykjavíkur um helgina, en
sem kunnugt er voru forsýningar á
leikritinu á Listahátíö.
Höfundur verksins leikstýrir því, en
aðalhlutverk leika Guörún Ásmunds-
dóttir, Jón Hjartarson, Sigrún Edda
Björnsdóttir, Valgeröur Dan, Soffía
Jakobsdóttir og Aöalsteinn Bergdal.
Leikhljóð eru eftir Áskel Másson, lýs-
ingu annaöist Daniel Williamson og
leikmynd og búninga gerði Steinþór
Sigurðsson.
Leikritiö f jallar um fjölskyldu, og þá
fyrst og fremst hjónin Kristínu (Guö-
rún Ásmundsdóttir) og Áma (Jón
Hjartarson). Þau eru vel stæö, hann
lögfræðingur en hún nýfarin aö vinna
úti. Þau eiga eina dóttur Sif (Sigrún
Edda Bjömsdóttir). Ámi finnur aldur-
inn færast yfir sig og vill „yngja upp”
hjá sér, vill sem sagt skilnað. Hann
tekur saman við aöra konu, en athyglin
beinist í æ ríkari mæli aö Kristínu. Hún
má þola mikiö mótlæti enda þótt hún
njóti velgengni í starfi. Dóttirin hverf-
ur einnig að heiman og verður vanfær
en lætur eyöa fóstrinu. Aö lokum vilja
eiginmaöurinn og dóttirin snúa aftur
til Kristínar, en hún vill það ekki, hún
er orðin sjálfstæö.
Silja Aðalsteinsdóttir skrifar grein
um Skilnaö í Tímarit Máls og menning-
ar 4. hefti 1982. Hún lýkur grein sinni
meðþessumoröum: ,,Skilnaöur Kjart-
ans Ragnarsson, er svartsýnt verk aö
efni, en eins og við er aö búast af þess-
um höfundi er textinn markviss og
fyndinn og leikrænt er verkið hug-
myndarikt og áhrifamikið.”
Eitt atriöi í uppsetningu verksins er
nýnæmi. I staö þess aö leika á sviðinuí
Iönó fer leikurinn fram í miðjum sal og
áhorfendur sitja allt í kring. ás.
The Ciash: eins og þeir líta út i dag. Um nýju móhikanakllppinguna sína segir Joe Struemmer: „Mór
fínnst gaman aö því að vera svoHtíö Ijótur og hallœrislegur." Fré vinstri: Mick Jone, Joe Struemmer, Paul
Simonon (sitjandi) og Terry Chimes.
röðin komin að mér.”
Þrefalda platan Sandinista var
mikill baggi á Clash. Vegna póli-
tískra skoðana sinna heimtuðu þeir
aö platan yröi aðeins dýrari en
venjuleg einföíd plata. Því töpuðu
þeir nánast á útgáfu hennar. En nýj-
asta plata Clash hefur selst betur en
nokkur önnur, m.a. komist inn á topp
20 í Bandaríkjunum. Nokkur lög af
þeirri nýjustu Combat rock hafa orö-
iö vinsæl t.d. Should I stay or should I
googRockthe Cashbash.
— Þegar Joe Struemmer er spurö-
ur að því hvort léttleikinn yfir Com-
bat sé kominn frá honum svarar
hann því til að þaö skipti engu máli
hver sé stjórnandinn í hvert skipti.
„Á meðan tónlistin er góð er mér
skítsama þó að einhver hundur sé
foringinn jafnvel þó aö Kermit frosk-
ur stjómaði okkur.”
Sem sagt Clash virðist vera á upp-
leið eftir erfiðleikana á fyrri hluta
ársins. Terry Chimes upphaflegi
trommari Clash leysti Topper
Headon af hólmi í sumar. En ekki er
enn ákveðiö hvort hann verður f astur
meðlimur í sveitinni.
Ef dæma má af umsögnum um
tónleika Clash undanfarið í tónlistar-
tímaritum, þá hafa þeir sjaldan eða
aldrei verið betri.
Q4U troða upp á SA TT tónleikum i Klúbbnum i kvöld.
SATTMEÐFJÖL-
BREYTT TÓNLEIKA-
HALD UM ALLT
LAND í VETUR
— stefnt að f jórum tónleikum
á mánuði í Reykjavík
SATT, Samtök alþýðutónlistar-
manna og tónskálda eru þessa dag-
ana að skipuleggja vetrarstarfiö.
Samtökin em að safna fé til að geta
komið upp húsnæði fyrir tónlistar-
starfsemi og aðra menningarstarf-
semi.
SATT hyggst í vetur halda geysi-
marga tónleika í því skyni að safna
fé og auöga menningarlífið jafnt í
höfuðborginni og úti á landi.
Að sögn Hallvarðs E. Þórssonar,
fulltrúa SATT, munu Samtökin gang-
ast fyrir femum tónleikum í hverj-
um mánuði í vetur, þar af einum í
Tónabæ fyrsta fimmtudag hvers
mánaðar. Auk rokktónlistar verður
boðið upp á ýmislegt annaö en það
sem vinsælast er nú, t.d. munu
trubadorar (svo sem Bubbi
Morthens, Magnús og Jóhann og
fleiri) troða upp og jass-hljómlistar-
menn.
SATT hefur þegar haldiö eina tón-
leika í Klúbbnum með Kor, Jonee
Jonee og Kvalasveitmni og í kvöld,
þriöjudagskvöld, verða tónleikar í
Klúbbnum á vegum SATT. Ekki
hefur verið að fullu gengið frá því
hverjir leika á tónleikunum, en
meðal þeirra veröur hljómsveitir
Q4U. Sú sveit er sem kunnugt er í ör-
um vexti, eftir að hún var endur-
skipulögö, og hafa sumir sagt að hún
sé nú orðin „fullorðin” og bernsku-
brekin aðbaki.
En landsbyggðin fær sinn skerf frá
SATT því ráðgerðir em tónleikar á
vegum samtakanna á Akureyri,
Egilsstöðum, Isafirði, Akranesi, Sel-
fossiogvíðar.
Sem sagt, ekki er annað að sjá en
að SATT ætli aö hlúa myndarlega að
lifandi tónlist í landinu á vetri kom-
anda.
ás.