Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1982, Side 5
DV. LAUGARDAGUR 9. OKTOBER1982.
ódýra leidin ligglir um
Amsterdam
í vetur liggur ódýra leiðin til Kanaríeyjar um
Amsterdam. Við bjóðum 11, 18 eða 25 daga
ferðir með brottför alla þriðjudaga svo auðvelt er
að finna brottfarardaga við hæfi og stýra lengd
ferðarinnar eftir hentugleikum.
Flogið er til Las Palmas og dvalist á völdum gisti-
stöðum sjálfrar Cran Canaria eyjunnar. í boði eru
hótel, íbúðir eða smáhýsi (bungalows) fast við
friðsælar baðstrendur og fjörugt skemmtanalíf.
Þrír dagar í Amsterdam
í upphafi ferðar er dvalist yfir eina nótt í
Amsterdam. Síðan er flogið beint til Las Palmas
en síðustu tveimur nóttum ferðarinnar eytt í
Amsterdam, ósvikinni miðstöð menningar,
verslunar og skemmtunar í Evrópu.
Lága verðið!
í meðfylgjandi dæmum um verð sýnum við hvað
við erum að meina með „ódýru leiðinni" til
Kanaríeyja. Verð er breytilegt eftir tegund
hótela, íbúða eða smáhýsa og eftir árstíma, en
ávallt er innifalið flug (Keflavík, Amsterdam, Las
Palmas, Amsterdam, Keflavík), flutningur til og
frá flugvöllum erlendis, gisting, hálft fæði í hótel-
gistingu og íslensk fararstjórn. í Amsterdam er
hótelgisting með morgunverði innifalin í verði.
Barnaafsláttur er breytilegur eftir aldri.
Dæmi um verð
11 dagar 18 dagar 25 dagar
Smáhýsi (miðað við 4 íbúa) 10.937 11.584 12.245
íbúðir (miðað við 3 íbúa) 11.040 11.789 12.539
Hótel m/V2 fæði (2 í herbergi) 12.245 14.053 15.670
Verð miðast við flug og gengi 1.10.1082
|f=jFERÐA.. OTCO<VTMC
HMl MIÐSTOÐIIM FERÐASKRIFSTOFA
Kanarí-Amsterdam — tveir frábærir staðir í einni ferð
Flugfélag með ferskan blæ
ARNARFLUG