Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1982, Síða 6
6
DV. LAUGARDAGUR 9. OKTOBER1982.
Sælkerinn
Sælkerinn
Sælkerinn
Sælkerinn
Bandarísk gædavín og gódur matur
Reykviskum sælkerum gafst fyrir
skömmu tækifæri að kynnast banda-
rískri matarmenningu, en í veitinga-
húsinu Nausti var bandarísk vika.
23. sept. sl. varsvo kynningá vínumí
bandaríska sendiráðinu. Eins og
áður hefur komið fram hér á Sæl-
kerasíðunni hafa bandarisk vín vak-
ið verulega athygli hér í Evrópu.
Franska timaritið Gault-Millau
heldur nokkurs konar vín-ólympíu-
leik árlega — franskir vínbændur
urðu felmtri slegnir þegar tilkynnt
var á síðum Gault-Millau að sum
hinna frönsku gæðavína hefðu verið
slegin út af bandarískum vínum.
A kynningunni í bandariska sendi-
ráðinu voru kynnt mjög athyglisverð
vín. Sérstaka athygli vöktu Char-
donny vínin. Þau voru öll í mjög há-
um gæðaflokki, gott jafnvægi á milli
Helsta vínræktarfylki Banda-
ríkjanna er Kalifornía og það-
an kom mörg ótrúlega góð vín, vín
sem gefa evrópsku gæðavínunum
ekkert eftir. Á þessari títt nefndu
vinkynningu voru könnuð ljómandi
vín frá Kaliforníufyrirtækinu Paul
Masson. Margir kannast eflaust við
hið ágæta hvítvín Emerald Dry frá
Paul Masson. Þetta ljúfa þurra vin
Kalifomiskir vínbændur. Bandarísku vínin koma á óvart.
sem er þó frekar hlutlaust fæst hér í
verslunum og er f rekar ódýrt.
Chablis frá Paul Masson gefur
ekkert eftir því franska sem fæst í
A T V R. Frá sama fyrirtæki kemur
Ijómandi freyðivín „extra dry” sem
passar prýðisvel sem lystauki, en
eitt athyglisveröasta vínið og það
sem kom mönnum kannski einna
mest á óvart var drykkur sem
nefndist „Very cold duck”. Við nán-
ari eftirgrennslan kom i ljós að hér
var um að ræða blöndu af góðu þurru
freyðivíni og freyðandi Burgundar-
víni. Þessi blanda var býsna
athyglisverð. Vín þetta passar ljóm-
andi með eftirréttum eða þá sem
lystauki. Vinhúsiö „Ernest og Julio
Gallo” bauð nokkur ljómandi vín,
t.d. Johannisberg Riesling sem var
sérlega gott. Einnig buðu þeir frá-
bært Chardonny hvítvín og var það
eitt af betri Chardonny vínum sem
Sælkerasíðan hefur kynnst. Enda
hefur Kalifomíuvínið Trefethen
Chardonny unnið til verðlauna í
sjálfu Frakklandi og vakið þar verð-
skuldaða athygli. Einnig var fyrir-
taks Chardonny vín frá Taylor vín-
húsinu á boðstólum þetta kvöld.
Fyrirtækið Almadén kynnti
Monterey Sauvignon Blans og var
það mjög ljúft. Vissulega voru þama
vín sem ekki voru neitt sérstök en
staðreyndin er sú að gæði hvítvín-
anna var langt fyrir ofan meðallag
og eins og áður hefur komið fram
vora sum vínanna úrvals vín.
Hvítvínin vora mun áhugaverðari
en rauðvínin. Þó voru nokkur ljóm-
andi rauðvin kynnt, t.d. Petite Sirah
frá Almadén og Cobemet Sauvignon
frá Paul Masson. Vonandi verða
þessi gæðavín til sölu hér i verslun-
umÁ T VR í framtíðinni. Sælkera-
síðan hefur hlerað að nokkur séu á
leiðinni og er það vel, því að senni-
lega eiga á næstu áram mörg
athyglisverð vín eftir að koma frá
Bandarikjunum og er það staðreynd
að gæði bandarísku vinanna eru mik-
il og því spennandi að kynnast þeim.
Nú er hægt að fá ljómandi rauð-
sprettu í fiskbúðum borgarinnar.
Rauðspretta er Ijómandi matur og
má búa til úr henni hreinan veislu-
mat. Hér kemur uppskrift að slíkum
mat. Að vísu er það smá-möndl að út-
búa þennan rétt, en það er alls ekki
erfitt. I réttinn þarf:
115 g kræklingur
20—30 stórar rækjur
1 dl niðursneiddir sveppir
2 msk. rifinn laukur
3 msk. hveiti
1/2 dl hvítvín
salt, svarturpipar
timjan
1 tsk. sitrónusafi
leggjarauða
2 rauðsprettur um 400 g hvor
1 msk. ostur
Já, þetta er ekki lítið. Þá er það
matreiðslan. Brúnið kræklinginn,
rækjumar, laukinn og sveppina í
smjöri á pönnu. Hellið því næst hvít-
víninu á pönnuna og stráið hveitinu
yfir. Kryddið með salti, pipar, timj-
an og sítrónusafanum. Takið pönn-
una af hellunni og hrærið egg jarauö-
una saman við það sem á pönnunni
er. Þvoið nú rauðsprettuna og klippið
uggana af. Skerið svo skurð niður
Rauósprattan ar vaislumatur
Ranðspretta
á veislnbordid
Danskt í hádeginn
Hiö ljúfenga danska smurbrauð
þarf vart að kynna hér á Islandi. Það
er einkennilegt aö það skuli ekki
vera á boðstólum á íslenskum veit-
ingahúsum eins og tengsl Islands og
Danmerkur eru náin. Smurbrauð er
hentugur matur í hádeginu — það er
fjölbreyttur matur, hollur og frekar
ódýr. Islendingar sem heimsækja
Kaupmannahöfn láta það yfirleitt
vera sitt fyrsta verk að fá sér danskt
smurbrauð, bjór og jafnvel snafs.
Það var því ánægjuleg frétt að veit-
ingahúsið Rán býöur nú gestum sín-
um „Danskt smurbrauðsborð”. I
boði era nokkrar tegundir af síld,
lifrarkæfa og auövitað gróft brauð
og frikkadellur. Brauö og heitar
kartöflur fylgja eins og vera ber.
Þeir sem vilja geta fengiö Álaborg-
arsnafs. Því miður er ekki hægt að fá
ekta góöan bjór með, það er aðeins
takmarkaður hópur fólk sem má
drekka bjór hér á landi. En þáð eru
farmenn, flugáhafnir og þeir sem
eru að koma frá útlöndum. Nei, bjór
er ekki fýrir hvem sem er. Já, nema
fyrir þá sem brugga. Það hlýtur aö
vera einsdæmi í heiminum að hér á
landi skuli vera löggjöf sem hvetur
menn tii aðbrjóta lög.
Það er hægt að kaupa bruggefni í
verslunum og það vita allir að úr
þessum efnum er bruggaður áfengur
bjór. Það sem eðlilegast gæti talist
þ.e.a.s. að kaupa áfengan bjór í
verslunum Á T V R er bannað. En
víkjum nú aftur að danska smur-
brauðinu sem veitingastofan Rán
býður upp á í hádeginu. Skammtur-
inn kostar kr. 90,- og verður það að
teljast ódýrt núna á síðustu og verstu
tímum. Aldrei eru alveg þeir sömu
réttir dag eftir dag, heldur skipt um
öðra hverju: Smurbrauðsdaman
heitir Silvía Jóhannesdóttir. Það er
sem sagt upplagt fyrir þau ykkar
sem erað hrifin af dönsku smur-
brauði, og erað að flýta ykkur, eruð
svöng og að verða búin með mánað-
arkaupið, viljið prófa eitthvað nýtt
eða hvíla ykkur á mötuneytismatn-
um, að heimsækja veitingahúsið Rán
við Skólavörðustíg.
Nú ar hægt aö fi danskt smurbrauð i Rán.
Champagne
Þessi göfugi drykkur kemur frá
samnefndu héraði í Frakklandi.
Freyðivín frá öðrum héraðum eða
löndum era því ekki Champagne eða
kampavin. Auðvitað var það munkur
sem fann upp þennan göfuga drykk
og eins og vera ber ávallt. Munkur
þessi hét Dom Perignon. Yfirleitt er'
kampavín dýrt vín enda í flestum til-
vikum flokkað sem lúxusvara. Að
Ótrúlegt en satt: Kampavín er ódýrt A Islandi.
auki er allvandasamt að framleiöa
kampavín, það tekur um 3 ár.
Kampavín er gróflega fiokkað í tvo
flokka þurrt eða brut og sætt eða sec,
demi sec — hálf þurrt. Eftir þrjú ár
er kampavín þurrt — brut. Það er
misskilningur aö í sæta og hálfsæta
kampavínið sec sé settur sykur,
heldur er sætum líkjör bætt í það.
Kampavínið er dýrt í framleiðslu.
Berin eru f jór-pressuð og úr 1,8 kg af
berjum fást aðeins 3/41 víns. Eins og
við höfum oft séð í kvikmyndum
drekkur fína og ríka fólkið kampavín
við öll tækifæri. Áfengi er alldýrt hér
á landi sem kunnugt er nema kampa-
vín þótt ótrúlegt sé. Að öllum líkind-
um er kampavín hvergi ódýrara í
Vestur-Evrópu en hér á landi. Flestir
þekkja kampavín sem hátíðardrykk,
en það er einnig ljómandi meö mat
og þá bæði kjöti og fiski. Kampavín
má bjóða sem lystauka með forrétt-
inum, aðalréttinum og eftirréttinum.
Þarna hefur kampavinið ótvíræða
kosti yfir annað vin. En munið að hér
er átt við ekta kampavín frá hérað-
inu Champagne í Frakklandi en ekki
ódýrt freyðivín eða gervikampavín.
Að lokum. Vitið þið hver hraðinn er a
tappa sem skýst úr stút kampavíns-
flósku? GOkmá klst.
með hryggnum að ofanverðu (dökku
hliðina). Skerið svo niður með bein-
unum og fjarlægið hryggbeinin.
Passið að rífa ekki fiskinn og látið
höfuðið vera á fisknum. Smyrjið eld-
fast fat og leggið rauðsprettumar í
það. Fyllið svo rauðsprettiumar með
blöndunni af pönnunni. Stráið svo
rifnum osti yfir fiskana og setjið
smáklipuaf smjöri á hvom.
Fatinu er svo stungið inn
í 225° heitan ofn og bakað
í 15—20 mín. Þá er fiskurinn til-
Umsjón:
Sigmar B.
Hauksson.
búinn. Ef þið eigið hvítvín er ljóm-
andi að hella nokkrum dropum yfir
fiskinn á meðan á steikingunni stend-
ur. Með þessum rétti þarf ekkert
nema gott brauð. I forrétt er ágætt
að bjóða gott hrásalat. Berið svo
vökvann úr eldfasta fatinu fram með
fiskinum og notið sem sósu. Þetta er
ljómandi réttur sem auövelt er aö út-
búa. Aðalvandinn er að ná hrygg-
beinunum úr fiskinum, en þaö er alls
ekki svo erfitt.