Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1982, Síða 12
12
DV. LAUGARDAGUR 9. OKTOBER1982.
SVONA ERTII
-ÁKÍNVERSKU!
djúpri hugleiðslu undir fíkjutré á dauða-
stund sinni, reyndar því sama fíkjutré og
hann eyddi mestum hluta ævi sinnar undir
og boðaði kenningar sínar frá. Á dauða-
stundinni sendi hann boð eftir öllum þeim
dýrum sem höfðu gert honum lífið bæri-
legra á þessari jörðu. Tólf dýr svöruðu kalli
hans og komu til hans til að votta honum
hinstu kveðju sína og virðingu. Sem þakk-
iætisvott fyrir að svara kallinu voru dýrin
heiðruð með því að nefna eitt ár eftir hverju
þeirra.
Finndu þitt f æðingarár á teikningunni hér
á síðunni og athugaðu hvað þessi forna kín-
verska speki segir um þig.
-KÞ.
Öldum saman hafa Kínverjar haft sín
eigin stjörnumerki, harla ólík okkar á
Vesturlöndum. Þeir hafa þó eins og við tólf
mismunandi merki, en andstætt okkur
miða þeir við fæðingarár en ekki fæðingar-
dag eins og við. Hvert ár nefna þeir eftir
einhverju dýri, til dæmis ár rottunnar,
nautsins, drekans eða slöngunnar. Til
allrar hamingju þýðir það þó ekki að við-
komandi líkist rottu eða slöngu, hvorki í
útliti eða í hugsunarhætti. Reyndar er
y gömul og falleg kínversk goðsögn forsenda
þess að stjömumerkin em einmitt nefnd
nöfnum þessara dýra.
Sagan segir að hinn mikli spekingur og
trúarbragðahöfundur, Búddha, hafi setið í
Ár rottunnar
HeiUandi geta þeir verið sem
fæddir eru á ári rottunnar. Þeir eru
fljótir að reiðast en eru þeim eigin-
leikum búnir aö geta faiiö það og
sýnast yfirvegaðir mjög á yfirborð-
inu. Þeir eru réttsýnir og þrautgóðir
og gefast ekki upp viö að ná settu
marki. Það er þeirra líf og yndi í
jgrænum dal að safna peningum — og
sumir segja þá níska! En ástúð er
þeirra aðalsmerki og þeir eiga það til
að gera eitthvað óvænt til að gleðja
samferðafólkiö. Þeir setja þaö á odd-
inn að búa vel — og það í réttu hverfi.
Rottumar eru forvitnar úr hófi fram
og ef þær gæta sín ekki getur það á
tíðum kostað vinslit. Reyndar eru
þær forvitnar um ýmislegt fleira en
nágrannann því aö þær eru mjög
áhugasamar um stjömuspáfræði og
yfirnáttúrlega hluti.
!Ár nantsins
, Fólk fætt á ári nautsins hefur
þolinmæði og mildi til að bera.
Nautin eru búin þeim eiginleika að
vinna traust annarra mjög auðveld-
lega og misnota aldrei þaö traust.
Meöfætt sjálfsöryggi er aöalsmerki
þeirra og það auðveldar þeim mjög
lífið. Naut geta náð langt því aö þau
eru mjög iðin og ákveðin að ná settu
marki. I ræöustóli þykja þau
afbragö. Nautum er ýmislegt til lista
lagt og eru yfirleitt mjög handlagin.
Einn er þó ljóður á ráði þeirra aö
þau geta reiðst mjög heiftariega.
Samferðamönnum þeirra ofbýður
það sem þau segja og gera á slíkum
stundum. Og í raun stríðir þetta gegn
meðfæddum eiginleikum þeirra því
að innst inni eru nautin samvinnuþýð
og sáttfús og vilja umfram allt tala
um hlutina og komast að samkomu-
lagi.
Ár heststns
Kátir og vel liðnir eru allir þeir
sem eru fæddir á ári hestsins. Þeir
eru vinsæiir í vinahópnum því að
þeir eru alltaf í góöu skapi og slá
hverjum sem er gullhamra! Þeir eru
áberandi, hafa áhrif á aðra og vekja
traust samferðamannanna. Innst
inni eru hestar þó hreint ekki eins
sjálfstæðir og þeir iíta út fyrir að
vera! Þaö er mjög auðvelt að særa
þá. Verði þeir ástfangnir kemst
ekkert annaö aö hjá þeim og dag-
legar skyldur þeirra gleymast um
stund! I slíkum málum búast þeir
alltaf við of miklu og þetta verða
vonbrigði á vonbrigði ofan hjá þeim!
Hestar eru mjög óþolinmóðir að
eðlisfari og sárasjaldan þiggja þeir
ráðleggingar annarra. En þeirra líf
og yndi eru veislur og þaö stórkost-
legar veislur!
☆ ☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆