Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1982, Blaðsíða 13
DV. LAUGARDAGUR 9. OKTOBER1982.
Ar hund§in§
Heiöarleiki og skyldurækni ein-
kennir þá sem fæddir eru á ári
hundsins. I vöggugjöf fá þeir marga
af bestu eiginleikum mannskepn-
unnar. Þeir gera alltaf sitt besta og
þeir eru mjög vinsæiir. Sé þeim trúað
fyrir einhverju kemur þeim ekki til
hugar aö blaðra um þaö, jafnvel þótt
þaö bitni á þeim sjálfum. En samt
sem áöur geta þeir tíðum veriö bæði
eigingjamir og óráðþægir — og
þegar þeir sýna þá hliö á sér er betra
aö vera víös fjarri. Hundar kunna
ekki viö sig í fjölmenni og þeir hata
slúður og innantómt hjal eins og
pestina. Sá ljóöur er á ráöi þeirra að
þeim þykir ekki verra að vita af göll-
um og mistökum annarra! Þrátt
fyrir það er réttsýni þeirra aðals-
merki og þeir þola ekki að neinum í
kringum þá sé misboðið eöa gengið á
rétt þeirra.
Ar geitarlnnar
Listamannahæfileikar búa í þeim
sem fæddir eru á ári geitarinnar og
aldrei njóta þeir sín betur en þegar
þeir búa eitthvað til. Geitur eru
bliðar að eðlisfari og mjög hugul-
samar, en geta verið huglausar og á
stundum svartsýnar. Fólk fætt undir
þessu merki hugsar mikið um lífsins
gagn og nauðsynjar og ef þetta fólk
setur sér ekki eitthvert markmið á
unga aldri getur það orðið rótlaust og
leitandi fram eftir aldri. Geitum er
tamt að gera það sem þeim er sagt
að gera því að þær eru oft svo
óöruggar og feimnar. En viðhorf
þeirra til lífsins og meðfædd blíða
þeirra gera þaö að verkum að þær
eru vinmargar og mjög vinsælar. Og
þeir sem eru svo heppnir að giftast
geitum búa við ástúð og umhyggju
alla tíð! Geitur eru mjög hjálpsamar
og hjálpa gjarnan þeim sem eru i
nauðum staddir, en vilja hvorki hrós
né umtal fyrir.
Arhanans
Framtakssemi og djúphyggni ein-
kennir fólk sem er fætt á ári
hanans. Vinnusemi og aö vera þar
sem hlutirnir eru að gerast er þeirra
líf og yndi í grænum dal. Það getur
komið fyrir hana, að taka að sér
verkefni sem þeir alls ekki ráða við
og þegar það gerist verða þeir alveg
miður sín. Hanar eru gjarna frum-
legir og ævintýramennska af öllu
tagi einkennir þá mjög. Aðrir eru
áhugasamir um þaö sem þeir taka
sér fyrir hendur. Hanar taka
ógjaman ráðleggingum frá öðrum,
miklu frekar fara þeir eigin leiðir og
reka sig á! Hanar eru ekki framsýnir
að eðlisfari heldur láta hverjum degi
nægja sína þjáningu. Þess vegna
geta þeir verið ríkir í dag en fátækir
á morgun. Þeir eru heiðarlegir og
liggi þeim eitthvað á hjarta tala þeir
út um hlutina. Á stundum geta þeir
þó verið fulleigingjamir.
Arapans
Þaö er sama hvað fólk fætt á ári
apans tekur sér fyrir hendur, allt
heppnast og það með sóma! Apar
em fljótir að draga ályktanir og taka
ákvarðanir, enda yfirleitt með
afbrigðum skynsamir. Fái þeir tæki-
færi em allar líkur á því að þeir
öðlist frægð og frama! Og þeirra
mun verða minnst! Fólk fætt á ári
apans er oft á tíðum mjög bókhneigt
og man það sem það les. En sá ljóður
er þó á ráði þess að það hefur til-
hneigingu til aö tala of mikið og sé
það spurt ráða kemur það með
óhemjumálalengingar og langlokur.
Þaö á það til að tala niðurlægjandi
um aðra. En lendi það upp á kant við
náungann er það fyrst til að biðjast
afsökunar og viöurkenna glappaskot
sín.
Ar villisvinsins
Kurteisi og göfuglyndi einkennir
þá sem fæddir eru á ári villisvínsins.
Þeir búa yfir miklum innri styrk og
hafa ótrúlega getu til að ná settu
marki. Kínverjar segja gjarnan um
þá sem fæddir eru á þessu ári að þeir
séu „allir á yfirborðinu”. Þar eiga
þeir við að viUisvín geti talað um allt
milli himins og jarðar og á yfir-
borðinu virðist þeir hafa ótrúlega
þekkingu á öllu mögulegu og ómögu-
legu en þetta risti mjög grunnt! Villi-
svín eru mjög ástúðleg og væntum-
þykja þeirra gagnvart þeim nánustu
er mikil. Villisvín eru þannig úr
garöi gerö að þau eignast fáa en góða
vini. Þau eru mjög viljasterk og
þann styrk brýtur enginn á bak
aftur. Taki þau sér eitthvert verkefni
fyrir hendur hætta þau ekki fyrr en
það er vel af hendi leyst og vilja hrós
fyrir. Villisvín geta þó verið fljótfær
og mættu gjarnan reyna að halda
aftur af skapofsa sinum.
Ar slöngunnar
Ráöagóðir, viðkunnanlegir og svo-
lítið forvitnir — þetta eru einkenni
þeirra sem fæddir eru á ári slöng-
unnar. Þeir eru djúphyggnir og
treysta fyrst og fremst á sjálfa sig.
Þeir taka ógjaman við ráðlegg-
ingum frá öðrum. Þeir eru ákveðnir
og mistök eru eitur í þeirra beinum.
Fólk sem fætt er á ári slöngunnar á
sárasjaldan í peningavandræðum
því að það heldur svo fast um sitt.
Verst af öllu þykir þeim ef einhver á
hönk upp í bakið á þeim. Karlar og
konur í þessu merki eru oft á tíöum
mjög aðlaðandi en líka svolítið fá-
fengileg. Oft getur hlaupið snurða
á þráðinn í hjónabandi þeirra því
þær hafa gaman af hliðarsporum!
Slöngur eru gjamar á að ýkja allt
sem þær gera.
Ardrekans
Drekar eru heilsuhraustir og
kappsfullir að eðlisfari. Þeir eru
bráðlyndir og stundum þrjóskir.
Þrátt fyrir það eiga þeir marga vini
og eru fljótir að kynnast fólki, enda
eru þeir vinsælir af samferðamönn-
unum, ekki síst vegna þess að þeir
eru heiðarlegir og koma alltaf til
dyranna eins og þeir em klæddir.
Kínverjum þykir hver sá heppinn,
sem fæðist á ári drekans. Drekar eru
sagöir, eins og tígrisdýrin, fæddir
leiðtogar. Þeir eiga auðvelt með að
fá fólk til að vinna fyrir sig og þetta
fólk lítur upp til þeirra. Drekar eru
dyggðugir, lifa í sátt og samlyndi við
aðra og verða gjarnan langlífir. Sá
ljóður er þó á ráði þeirra að þeir eru
litlir mannþekkjarar og kemur það
þeim oft í koll. Flestir þeirra gera sér
þó grein fyrir því og kannski þess
vegna er það einkenni á drekum, að
þeir giftast seint eða aldrei.
Ar hérans
Greindir, sómakærir og mælskir
eru þeir sem fæddir eru á ári hérans.
Fyrir þeim er gjarnan borin virðing
og þeir vinna auðveldlega traust
annarra, þrátt fyrir að undir niðri
hafi þeir gaman af að hlusta á slúöur
um náungann. En verði slúðriö ill-
skeytt er þeim nóg boðið og þeir taka
gjarnan upp hanskann fyrir viðkom-
andi, þeir vilja með engu móti særa
aðra. Þeir eru þolinmóðir og smá-
andstreymi slær þá ekki út af laginu.
Þeir lofa aldrei neinu upp í ermina á
sér, lofi þeir einhverju stendur það
pins og stafur á bók. Þótt hérar séu
ýfirleitt ástúðlegir og þægilegir í
íramkomu geta þeir átt það til að
vera býsna fálátir ef því er að skipta.
Ef til vill er ástæða þess sú að á
stundum geta þeir verið niðurdregn-
ir og skapillir. Hérar eru miklir
peningamenn, auðgast auðveldlega
2n velta fyrir sér hverri krónu.
Ar tígrisdýrsins
Sterkur, hugrakkur og sjálfstæður
— þetta eru einkenni þeirra sem eru
fæddir á ári tigrisdýrsins. Kínverjar
lita þetta tákn sem mikið hamingju-
tákn og segja þá sem eru fæddir á ári
tígrisdýrsins fædda til að drottna
yfir öðrum! Tígrisdýrin sýna þeim
sem þeim þykir vænt um mikla
tillitssemi og ástúö. Og aðrir elska
þau og tilbiðja, þótt tígrisdýrin eigi
það ekki alltaf skilið! Þeir sem
fæddir eru á þessu ári geta nefnilega
verið bæði óráðþægir og þrjóskir og
þeir eiga mjög erfitt meö að treysta
á aöra en sjálfa sig. Þeir tortryggja
alla þá sem vita meira en þeir og
gegna betri stööum i þjóðfélaginu.
En sjálfir ná þeir oft mjög langt —
sérstaklega þar sem samferða-
mönnunum finnst ekkert sjálf-
sagðara en að taka við skipunum frá
|þeim!
blumía DÖMUBINDI
NORMAL - MIIMI - INNLEGG
ÖRUGG—ÞÆGILEG —Hagstœtt verd
BMW520 árg. 1980 Renault 14TL \ árg. 1978
BMW 518 árg. 1980 Renault 14TL árg. 1977
BMW 518 árg. 1977 Renault 12TS árg. 1978 I
BMW 323i árg. 1981 Renault 12 station árg. 1979
BMW 320 árg. 1980 Renault 12TL árg. 1977
BMW316 árg. 1980 Renault 5TL árg. 1973
BMW 320 árg. 1981 Renault 4 Van árg. 1977
BMW 320 autom. árg. 1980 Renault 4 Van árg. 1978
Renault 20TL árg. 1978 Renault 4TL árg. 1980
Renault 20TL Renault 18TS Renault 18TL árg. 1977 árg. 1980 árg. 1979 Opið: /augardaga kl. 1—6.
KRISTINN GUÐNASON HF.
1 SUÐURLANDSBRAUT 20, SÍM! 86633 Á
Laiigaveyi 170 -172
Sími: 11276
MITSUBISHI
___MOTOBS _
Opið í dag
frá kl. 10-4
Sýnum og se/jum
mikiðoggott úrvai
af notuðum bíium í dag m.a.:
Golf 79, dökkrauður.
Colt 1200, S dyra, '80, rauðsanseraður.
Colt 1200, Sdyra, 81, blár.
Derby 79, grænn.
Audi 100 LSS 79, rauður.
Passat 78, rauður.
Volkswagen sendibíll 78, hvítur.
Volkswagen sendibíll dísil 81, orange.
Volkswagen 1200 L 75, rauður.
Range Rover 78, drapplitaður.