Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1982, Page 15
DV. LAUGARDAGUR 9. OKTOBER1982.
15
fisk? Krydd eða kanínu? Ekki
það? Það er þó allténd hægt að
skreppa á útimarkaðinn og skoða
hið margskrúðuga mannlíf sem
þar þrífst. Á útimörkuðunum í
Frakklandi viðgangast nefnilega
ekki síður samskipti fólks en
viðskipti þess. Leitað er fregna og
sagðir hreppabrandarar meðan
melóna eða annar varningur er
verðlagður. Svo er borgað og
kvatt með virktum.
Utimarkaðir í Suður-Frakklandi
er jafnan haldnir þrisvar í viku.
Strax við sólarupprás birtast
sendibifreiðar og fólk með alls
kyns varning. Það tekur að setja
upp skýli, borð og bekki og marg-
víslegum varningnum er loks
raðað misjafnlega snyrtilega þar
á. Það er yfirleitt sama fólkið,
sömu fjölskyldumar, sem stunda
sölu á þessum mörkuðum. I Aix-
en-Provence gengur þetta þannig
að hver sölumaður á sinn fasta
stað í gamla miðbænum um-
hverf is dómshöllina og tukthúsið.
Og þegar allt er komið á sinn
stað, vamingurinn á sinn stað
og sölumaðurinn þar fyrir aftan,
. geta viðskiptin hafist.
Grátbroslegt verð
Á þessum útimarkaði er hægt að
kaupa flestar tegundir góðgætis,
meðal annars heimatilbúið
hunang, ferskt krydd af ýmsum
gerðum og svo er hægt að verða
sér úti um lifandi snigla, sem
sönnum Frakka þykir hið mesta
lostæti. En á útimarkaðinum er
selt fleira en matvara. Þar ægir í
rauninni öllu saman.
Skammt frá matarmarkaðinum
má til dæmis kaupa sér alls konar
föt, notuð eða ónotuð. Og iðulega
er verð þeirra grátbroslegt, hvað
svo sem sagt verður um gæðin.
Hvort hægt er að máta flíkina? Jú,
jú, mikil ósköp, þú prílar bara upp
í næsta sendiferðabíl og lokar
helst að þér. Þannig gengur þaðt
Annars staðar á sama úti-
markaði má skoða það sem kalla
má „hina og þessa vöru”. Þar má
svo sannarlega finna allt milli
himins og jarðar. Og inni á milli
leynast oft dýrindis gripir, þó
meginhluti þessarar söluvöru
verði að teljast heldur úr sér
genginn. Þama má til að mynda
kaupa allt frá litlu og snjáðu póst-
korti til sUfurslegins indversks
homs. Og þitt er valið, svo sannar-
lega.
Þótt sjaldnast
sé f járfest...
Þannig hafa franskir úti-
markaðir gengið frá ómunatíð og
virðist engin breyting þar ætla að
verða á, þrátt fyrir tilkomu tölvu-
væddra stórmarkaða og sértil-
boða á kjarapöllum þeirra. Hið
mannlega viðmót og persónu-
tengslin milli kaupenda og selj-
enda virðast ráða mestu um
áframhaldandi gengi útimarkað-
anna. Ástæða fyrir velgengni úti-
markaðanna er einnig sú að þar
telur fólk sig geta keypt bestu og
ódýrustu ávextina svo og græn-
metið. Auk þess er alltaf heilmikið
ævintýri að spranga frá einu sölu-
borðinu til annars, spyrja um
verð og velta vöngum, jafnvel þótt
sjaldnast sé fjárfest, enda kann
það að vera óþarfi þegar á úti-
markaðinn er komið. Hann er
eflaust fyrst og fremst samkomu-
staðurfólks.
Að jafnaði lýkur frönskum úti-
mörkuðum um hádegisbil. Þeir
sem mæta fyrstir í morgunsárið
pakka manna síðastir niður.
Smám saman breytist svo
markaðssvæðið í ósköp hvers-
dagslegt bílastæði og ummerki
sölutorgsins mást út.
-FR. Frakklandi.
NÝLEGIR BÍLAR í ÚRVALI
Alfa Romeo Spring
Rat 127
Citroen GSA
Toyota Hi-Ace
Mazda 929 station
Fíat 125 P
Mazda RX-7
Mazda 626
Honda Civic
Honda Accord
'82 Peugeot 505 '80
'82 Saab 99 GL '80
'82 Simca Horizon 79
'82 Mazda 929 station '79
'82 Peugeot 540 78
'81 Subaru DL 78
'80-'81 Toyota Cressida 78
'80 VW Derby 78
'80 Mazda 818 78
'80 Simca Rancho 77
Opið laugardaga kl. 10— 16.
BÍLASALAN BUK s/f
SlÐUMÚLA 3-5-105 REYKJAVlK
SlMI: 86477
Vegna hreint
ÓTRÚLEGA mik-
illar SÖLU undan-
farið VANTAR
okkur allar gerðir
nýlegra BÍLA á
staðinn STRAX.
KL. 14-18 BÁÐA DAGANA
BOSCH
„BLÁA LÍNAN"
FYRIR IÐNAÐAR-
MANNINN. „GRÆNA
LÍNAN" FYRIR
ÁHUGAMANNINN
vyoWcraU
Hr. Baumgartner frd Emco og
Hr. Genz frd Wolfcraft munu
sýna tækin í notkun.
Nýtið þetta einstaka tækifœri.
Komið í Volvosalinn Suðurlands-
braut 16 og kynnist Emco,
Wolfcraft og Bosch.
Nr. 4000
FYLGIHLUTIR
FYRIR FLESTAR
BORVÉLAR
TRÉSMÍÐAVÉLAR
TRÉ- OG
JÁRNRENNIBEKKIR
emcD
Gunnar Ásgeirsson hf.
Suóurlandsbraut 16 Sími 9135200