Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1982, Síða 36
NÝJA
AGFAFILMAN
ÓTRÚLEGA SKÖRP
OG NÆM FYRIR LITUM
ÓDÝRARI FILMA SEM
FÆST ALLS STAÐAR
86611
AUGLÝSINGAR
SÍÐUMÚLA33
SMÁAUGLÝSINGAR
SKRIFSTOFA
AFGREIÐSLA
ÞVERHOLTI 11
RITSTJÓRN
SlÐUMÚLA 12—14
27022
Frjálst, óháð dagblaö
LAUGARDAGUR 9. OKTÓBER 1982.
Geðsjúklingur
á stolnum bíl
ókábrú
Geösjúklingur af Borgarspítalan-
um, á stolnum vörubíl úr Reykjavík,
ók á Kláffossbrú við Hvitá í Borgar-
firöi rétt eftir hádegiö á miö vikudag.
Maðurinn hafði stoliö bQnum i
Reykjavík og ók vestur. Viö Kláf-
fossbrúna missti hann síöan vald á
bQnum með þeim afleiðingum aö
bUlinn lenti á brúnni. Maðurinn
slapp ómeiddur en vörubíllinn
skemmdist töluvert.
Maöurinn hafði fariö út af geödeild
Borgarspítalans og stolið bílnum.
Hann hefur oft áöur komið viö sögu í
bUþjófnuðum á undanfömum árum
og oftast hafa þær ökuferöir endaö
meö árekstrum. Hann er nú i gæslu á
Borgarspítalanum. -JGH
Morfíni stolið
Morfíni var stoliö úr vélbátnum
Jóni HaUdórssyni RE 2 aöfaranótt
fimmtudags þar sem hann var í
Reykjavíkurhöfn.
Hurð á stýrishúsinu var brotin upp
og þannig var fariö inn í bátina
Síðan var fariö inn í klefa skip-
stjórans og lyfjaskápur, sem þar er,
brotinn upp og tveimur glösum af
morfini stolið.
Enginn hefur veriö handtekinn
vegna þessa en málið er í rannsókn.
-JGH.
Hesturaf-
lífaður eftir
árekstur
Ekið var á hest á Suöurlandsvegi,
rétt austan við bæinn Kjartansstaði í
Flóa, um hádegisbUið í gærdag:
Hesturinn fótbrotnaði og þurfti aö
aflifa hann. Knapinn slapp hins
vegarviö meiðsli.
BUlinn er ók á hestinn var á
austurleið. Þegar hann kom aö
hestinum fældist hesturinn og hljóp
fyrir bUina Skall hesturinn nokkuö
harkalega á bílnum. Meiösli hans
voru þaö mikil að aflífa þurfti hann á
staönum.
Taisvert sá á bUnum. Engin slys
urðu á mönnum i þessu óhappi. -JGH
Gott veður
• Landsmenn munu áfram njóta
veðurbliðunnar. Veðurstofan gerir
ráð fyrir aö hæg, breytUeg átt verði á
öllu landinu yfir helgina. Skýjað
veröur meö köflum og úrkomulaust
að mesta Hitastig veröur i meðal-
lagi. Veðrið ætti því ekki aö hindra
útivist. -KMU.
LOKI
Sviðnar rottur. Tilboðs-
verð. SÍS afurðasala.
Svíða kindahausa með
rottur á hælunum
Sóðalegustu aðstæður viö mat-
vælaframleiðslu hér á landi eru að
líkindum í skúrbyggingu á Kirkju-
sandi.
I skúmum vinna tveir menn við að
sviöa kindahausa fyrir Samband
íslenskra samvinnufélaga. Þrátt
fýrir ítrekaöar kvartanir starfs-
manna yfir vinnuaðstöðunni hefur
ekkert veriö gert í málinu í mörg ár,
— og heföi að líkindum ekkert gerst
ef annaö hefði ekki komið tiL Þegar
lögreglumenn voru á staðnum í
öörum erindagjöröum í fyrradag
hljóp rotta fyrir fætur þeirra. Það
var tU þess aö lögreglan kærði málið
fyrir heilbrigöis eftirlitinu.
Skúrinn er ekki rottuheldur og að
því er starfsmenn segja þarf að
henda allt að tíu hausum á hverjum
morgni sem rottur hafa nagaö yfir
nóttina. „Þegar fólk boröar sviö frá
Sambandinu veit þaö ekki hvort
aðrir hafa staöiö aö þeirri máltíð
með því,” sagði annar starfs-
maðurinn. „Maður svíður hér hausa
meö rottumar á hælunum. ’ ’
Fyrir utan rottuganginn er öU
starfsaðstaða á staðnum óforsvaran-
leg tU matvælaframleiðslu. Hrein-
lætisaöstaöa starfsfólks er einnig tU
lítUlar fyrirmyndar. Sögöu starfs-
menn aö þaö væri undarlegt að á
sama tima og stórfé væri eytt í aö
innrétta skrifstofur Sambandsins í
húsunum viö hliðina, daufheyröust
yfirmenn við öllum kröfum þeirra
um úrbætur.
Niðurstaöa heUbrigðiseftirlitsins
var sú, að starfsemin var leyfö
áfram þar til sláturtíð lýkur, gegn
því að hausar verði ekki geymdir í
skúmum næturlangt. Agnar
Tryggvason framkvæmdastjóri bú-
vömdeUdar Sambandsins sagöi í
samtali viö DV aö síðan yröu geröar
gagngerar endurbætur, en nú þegar
myndu smiöir taka til viö aö gera
skúrinn rottuheldan. Sagðist hann þó
ekki geta trúaö því aö óreyndu að
þama væri rottugangur. HeUbrigöis-
fuUtrúi viröist þó hafa veriö
annarrar skoðunar.
-ÓEF.
DV-myndEÓ.
Engin frekari afskipti
yfirvalda af Rússanum
,ÍIg býst ekki við að utanríkis-
ráöuneytiö eigi frumkvæöi aö
einhverjum aðgeröum í málinu,”
sagöi Sveinn Bjömsson sendi-
ráðunautur, aöspurður um hugs-
anleg viöbrögö’ vegna meintrar
ölvunar sovésks sendiráðsstarfs-
manns undir stýri
DV skýrði í gær frá afskiptum lög-
reglu og starfsmanna veitinga-
hússins „Broadway” af Rússa sem
hafði veriö á hljómleikum meö
hljómsveit Björgvins HaUdórssonar.
Vitni bera aö Rússinn hafi verið ofur-
ölvi er hann ók bU, sem hann var á, á
annan bU.
Vegna diplómataréttinda gat lög-
reglan ekki handtekið Rússann. Lög-
reglan ók hins vegar bUnum fyrir
Rússann að sovéska sendiráðinu. Er
málið nú úr höndum lögreglunnar
vegna alþjóðasamninga.
Sveinn Bjömsson sendi-
ráðunautur sagði að vegna Vínar-
samningsins mætti ekki lögsækja
erienda sendiráösstarfsmenn. Þeir
yröu þó aö hlíta landslögum. Ef um
mjög alvarlegt brot væri aö ræöa
gætu stjórnvöld vísað sendiráðs-
mönnum úr landi. Ef um minni brot
væri aö ræða mætti búast viö á-
minningu. Sveinn treysti sér þó ekki
til aö segja um hvort áminning yrði
veitt aðþessusinni.
Vegna réttinda sendiráös-
mannsins var ekki hægt að taka af
honum blóðprufu. Mun því Uklega
aldrei sannast á hann ölvun.
-KMU.