Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1982, Blaðsíða 1
NEYÐARASTAND VEGNA OVEÐURS:
„Mamma, mamma, veltur
rútan nokkuð á hvolf’
„Ástandið var hroðalegt hér á
Reykjanesbrautinni. Bílar fuku út af.
Aðrir skullu saman og fólk beið í bílum
sínum eftir hjálp.” Þannig komst lög-
reglan í Keflavík að orði við DV um
veðurofsann sem gekk yfir Suövestur-
land seinni partinn í gær.
Þaö var um fimmleytið sem óveðrið
skall á og má segja að algjört neyðar-
ástand hafi ríkt á svæðinu frá Keflavík
og upp í Borgarnes. Engin alvarleg
slys urðu þó í óveðrinu að sögn lög-
reglumanna á svæðinu.
Björgunarsveitir unnu látlaust á
Reykjanesbraut og á K jalamesi við aö
aðstoða fólk er varð að skilja bíla sína
eftir.
Að sögn lögreglunnar í Reykjavík
var ástandið einna verst í Breiðholti og
Árbæ. Otrúlega margir munu hafa ver-
iö á sumardekkjum. Sagði lögreglan
að ástandiö hefði orðið enn verra
vegna þessara bílstjóra.
Á Kjalarnesi, í Hvalfiröi og undir
Hafnarfjalli voru ógurlegar vind-
hviður og blindbylur. Þá var mikil
hálka á vegunum. Norðurleiðarrútan
varö aö stansa í Hvalfirðinum vegna
hvassviöris og að sögn eins farþegans í
rútunni voru nokkur smáböm í rút-
unni. Þau urðu öll mjög skelfd í verstu
hviðunum. Og þar mátti heyra litla
stúlku segja, skelfingu lostna, viö
móður sína: Mamma, mamma, veltur
rútan nokkuð. Þá taföist Vestfjarða-
leiðarrútan viðFerstiklu.
Að sögn lögreglunnar í Borgarnesi
varö þriggja bíla árekstur hjá Kala-
stöðum á Hvalfjarðarströnd laust eftir
kl. fimm og Willysjeppi fauk út af
undir Hafnarfjalli og lenti á hvolfi.
Engin slys urðu þó á fólki í þessum
óhöppum.
-JGH.
Akurnesmgum er fíeira tíl lista lagt i iþróttum en að sparka bolta.
Það sýndi sundfólk af Skipaskaganum um heigina þegar það sigraði
ibikarkeppni 1. deildar isundi i Sundhöll Reykjavikur.
Sigurliðið fókk aukabað i mótsiok en þá var þjálfaranum og öðrum
köppum fíeygt út ílaugina.
-sjá íþróttir i blaðauka.
Hinum fræga Hóimavikurtogara, dýrasta fiskiskipi ísiendinga, var
gefið nafn i gær. Það var Hjördís Hákonardóttir sýslumaður sem
skýrði skipið Hólmadrang. Hólmadrangur er smiðaður hjá Stálvik i
Garðabæ.
Skipið er 47 metra langt, 10 metra breitt, 6,75 metrar að dýpt og 380
brúttó rúmlestír. Lestarrými skipsins er 300 rúmmetrar. Það er búið
1800 hestafla MAK vói. Skipið kostaði frá Stálvik um SS milljónir
króna en talið er að gengistaps-, vaxta- og lántökukostnaður sé um
53 milljónir. D V-mynd: Einar Ólason.
Mikilleitað 17 ára
Alpafélaga
íTindfjöllum:
Fórísvefnpok-
annoggrófsig
ífönn
Mikil leit var í gærkvöldi og
nótt aö 17 ára gömlum félaga úr
Aipaklúbbnum sem var týndur
í Tindfjöllum. Pilturinn fannst
heiil á húfi laust eftir klukkan
þrjú í nótt. Hafði hann haldiö
kyrm fyrir eftir að hann áttaði
sig á að hann væri villtur, graf-
ið sig í fönn og farið í svefn-
poka.
Ellefu félagar úr Alpaklúbbn-
um voru á ferð á gönguskíðum
um Tindf jöllin um helgina. Þeir
vom á leið heim þegar einn fé-
laganna varö viðskila við hóp-
inn síðdegis í gær.
Pilturinn hafði átt í vand-
ræöum með skíöabindingamar,
sem vildu losna. Mikil hríð var
og aöeins örfárra metra
skyggni þegar hann týndist.
„Við fórupi aö leita. Þetta
var í ljósaskiptunum og
skyggnið var aðeins þrír eða
fjórir metrar. Það var ofboðs-
legt rok og skafrenningur,”
sagði Olafur Guðmundsson,
einn Alpafélaganna.
,ÍIftir tveggja til þriggja
tíma leit sáum við aö þetta
þýddi ekkert og ákváöum að
senda tvo menn til byggöa,”
sagöi Olafur.
Hann og Knútur Axelsson
héldu af stað eftir hjálp um
klukkan 20 í gærkvöldi. Náðu
þeir að bænum Fljótsdal fyrir
klukkan 22.
„Okkur var varla stætt, þaö
var svo hvasst. Það var bæði
blindhríð og svartamyrkur svo
við gengum eingöngu eftir átta-
vita,”sagðiOlafur.
Hjálparsveitir vom ræstur út
um klukkan 22. Menn úr Dag-
renningu á Hvolsvelli, Flug-
björgunarsveitinni á Hellu og
Björgunarsveitinni Tryggva á
Selfossi héldu af stað til leitar,' |
búnir fjallatrukkum, snjóbíl og
snjósleðum.
Leitarmenn fundu piltinn,
sem fyrr sagði, í nótt, stutt frá
mið-skálanum í Tindfjöllum.
Haföi pilturinn orðiö var við
vélsleða er þeir óku fram hjá
honum á leið upp í innsta-skála.
Á leiðinni til baka óku vélsleöa-
mennirnir fram á piltinn þar
sem hann stóð í gömlu vélsleöa-
förunum.
Alpafélagamir höfðust í nótt
fyrir í neösta-skálanum í Tind-
fjöllum.
-KMU.
Bnininn á
Stokkseyri:
Eigandinní
gæsluvarðhaldi
Eigandi verslunarinnar Alla-
búð á Stokkseyri, sem brann til
grunna 30. október síðastliðinn,
hefur verið úrskuröaður í
gæsluvarðhald til 2. desember.
Mikið fjárhagstjón varð I
brunanum enda brann bæði
verslunarhús og lager, en það
var allt tryggt. Rannsókn máls-
ins er haldið áfram. Gmnur
leikur á að um íkveikju hafi
verið aö ræða. ÓEF