Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1982, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1982, Qupperneq 2
2 DV. MÁNUDAGUR 29. NOVEMBER1982. „Viljum verða að sem meshi gagni fyrir þjóðina” — segirGunnar G. Schram prófessor, nýkjörinn formaðurBHM „Mér er efst í huga að viö háskóla- menn getum orðið að sem mestu gagni fyrir þjóðina,” sagöi Gunnar G. Schram prófessor í samtali við DV, eftir að hann hafði verið kosinn formaður Bandalags háskólamanna á laugardaginn. „Þetta er þaö sem við viljum. Nú sjá menn fram á takmörkun auölind- anna og við viljum leggja fram þekk- ingu og vinnu við að nýta þær enn betur. Um 30% ungs fólks fer í há- skólanám og Háskóli Islands er i vanda sem bregðast verður við. Aðstæður þarf aö bæta og náms- brautum þarf tilfinnanlega að fjölga íljósinýrratíma. Á þinginu var samþykkt að byggja upp endurmenntunarkerfi í sam- vinnu við Háskóla Islands. Og einnig var samþykkt aö stofna öldungaráö fyrir háskólamenn 60 ára og eldri, sem yrði samstarfsvettvangur fyrir þá til þess að halda áfram að vinna þjóöinnigagn.” Gunnar kvað kjaramál að sjálf- sögðu hafa komið til umræðu. Meðal annars heföu borist í tal húsnæðis- mál, sem sérstakt áhyggjuefni. Á þessu 5. þingi BHM sátu um 170 fulltrúar í tvo daga. Gunnar G. Schram var einróma kjörinn for- maður, og tók hann viö af Valdimar K. Jónssyni prófessor, sem verið hafðiformaðurífjögurár. -HERB. Frá fundahaldi á BHM-þinginu, sem haldið var i Borgartúni 6 iReykjavík, húsnæði. fjármálaráðuneytisins. DV-mynd: Bj. Bj. Nýr litur á stofuvegg, eöa skálann, seturnýjan svlp á heimillö EFNl- Hin viöurkenda VITRETEX plastmálning. Glært lakk á tréverkiö frískar þaö upp og viðarlitaö lakk gef ur því nýjan svip. efni cuprinol GOODWOOD*polyurethaneiakk. ’GQjpfPiA/OOD: Glæ||||i nýjung frá gluggapS$tá, hvers konar annaö tréverk ö|f't>fJplötur. 3 Sferöir í glæru: glansandi, hálfmatt og matt. 6 viðarlítir, sem viðarmynstrið sést í gegnum. Dósastærð: allt frá % lítra. GOODWOOD SPECIAL: Grjóthörð nýjung frá Cuprinol. Sérstaklega ætlaö á parkett og korkgólf. í Slippfélagið Málningarverksmidja Sfmi 33433. ÚTSÖLUSTAÐER: REYKJAVXK: Litaver, Liturinn, P. Hjaltested, Slippbúöin, JL-byggingavörur. KÖPAVOGUR: BYKO, Álfhóll. HAFNARFJÖRÐUR: Stjörnulitir, Véltak. KEFLAVÍK: Olafur Þ. Guömundsson málara- meistari. GRINDAVÍK: Dráttarbrautin. HVERAGERÐI: Blátindur. SELFOSS: G.Á.B. HELI.A: Kaupfélagið Þór. EGILSSTAÐIR! Feil hf. NESKAUPSTAÐUR: Bátastöðin. SEYÐISF JÖRÐUR: Stál h/f. HÚSAVlK: Borg. AKUREYRI: Skipaþjónustan. SAUÐÁRKRÖKUR: Borg. ÍSAFJÖRÐUR: Pensillinn, G. E. Sæmundsson, Friðrik Bjarnason málarameistari. STYKKISHÖLMUR: Skipavík. AKRANES: Málnmgarþjónustan. LÍÚ ályktar: Banndögum fjölgi — ef af li fer f ram úr viðmiðunarmörkum Ákveöið hefur verið að stjórn og fyrirkomulag botnfiskveiöa veröi meö svipuðum hætti á árinu 1983 og verið hefur á þessu ári. Þetta kom fram á nýafstöðnumaðalfundi LIU. Þeim heildarþorskafla, sem leyft veröur að veiða, skal skipt jafnt miili báta og togara. Ef í ljós kemur að þorskárgangurinn 1976 reynist jafn- sterkur og fiskifræðingar höfðu gert ráð fyrir skal leyfilegt aflamagn hækka. Mælst er til að tekið verði tillit til þessarar aukningar fyrir vertíðar- lok og að viöbótarmagni verði skipt milli báta og togara í sömu hlutföllum og gert er ráð fyrir í byrjun ársins. Einnig er gert ráö fyrir aö árinu verði skipt í þrjú jafnlöng veiöitíma- bil, janúar-apríl, maí-ágúst og septem- ber-desember. Þorskveiðibann er fyrirhugað á árinu og á það að standa í 110 daga, sem deilast niður á þrjú ofan- greind tímabil. Ef þorskafli togara hvers tímabils fer verulega fram úr ákveðnum viðmiðunarmörkum mun veiðibannsdögumfjölga. -PÁ. Tha Missisippie Delta Blues Band á Hótel Borg i fyrra. Þeir fengu frábærar viðtökurog ermikið fagnaðarefniað fá þá aftur i heimsókn. JASSVAKNING Á VON Á ÞEKKTUM SKEMMUKRÖFIUM Jassvakning hélt aðalfund sinn nýlega og var þar kjörin stjóm og framkvæmdanefnd samtakanna, innri mál rædd og stefnan mörkuð. Formaöur var kjörinn Vemharður Linnet. A síðasta ári voru haldnir fjölmargir tónleikar þar sem fram komu margir heimsþekktir listamenn á jasssviöinu. Má þar nefna Niels-Henning 0rsted Pedersen & Philip Catherine, Art Ensemble of Chicago, Art Blakey Jazz Messengers og Missisippie Delta Blues Band. Hagnaður varð af öllum þessum tónleikum, en verra var með tónleika Charlie Hadens í haust. Þá reyndist tap nema 100 þúsundum króna. Islenskir jassleikarar hlupu þá undir bagga með fjáröflunartónleikum 14. nóvember og var grynnkað talsvert á skuldunum. Von er á The Missisippie Delta Blues Band aftur til landsins. Munu þeir halda tónleika dagana 9., 10. og 11. desember í Reykjavík. I fyrra vom viötökur frábærar, nú hefur sveitin verið endurskipulögö og er sögð betri en nokkrusinni fyrr. Övíst er um starfið á næsta ári. Þó kemur sænska kvennajasssveitin Sala- möndmmar í febrúar. Þær hafa farið sigurför um heiminn undanfarið og verið boðiö aö leika á þekktum jass- hátíöum. -JBH.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.