Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1982, Page 7

Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1982, Page 7
DV. MANUDAGUR 29. NOVEMBER1982. 7 Neytendur Neytendur Raddir neytenda Fékk f imm öryggi fyr ir minna verð en eitt Hingaö kom maður með ciryggi sem hann hafði keypt í bílinn sinn. Bíllinn var frá General Motors og fói hann því í varahlutaverslun Sam- bandsins sem er meö umboð fyrir G.M. Þar keypti hann 7,5 ampera öryggi sem afgreiöslumaðurinn veiddi upp úr krús á borðinu. Sterk- ari öryggi voru ekki til. Það kom í ljós sem manninn hafði grunað að öryggið var of veikt og sprakk strax og það var sett í. Fyrir það hafði hann greitt 39 krónur án söluskatts eða 47 krónur rúmar alls. Fannst honum þetta það hátt verð aö hann lagði leið sína í Bílanaust til aö fá nýtt öryggi. Þar fékk hann fimm stykki, 25 ampera, í vandaðri pakkn- ingu fyrir 45 krónur eða tveimur krónum minna en eitt kostnaði hjá Sambandinu. Fannst honum þetta furðulegur verðmunur. Bæði öryggið sem hann keypti hjá Sambandinu og öryggin fimm úr Bílanausti voru f ramleidd í Bandaríkjunum. Eðlilegt verð Vilhjálmur Sigurðsson, verslunar- stjóri í varahlutaverslun Sambands- ins, kannaðist við að þetta verð sem manninum var gert að greiða fyrir öryggið væri rétt. Hann sagðist fara nákvæmlega eftir þeirri verðlagn- ingu sem General Motors gæfu upp og hefði hún verið viðurkennd af Verðlagsstofnun. Væri manninum velkomið að koma og skoða það. Hann sagöist eiginlega vera hættur að vera meö þessi öryggi verðsins vegna. I staö þeirra keypti hann öryggi úti í bæ og seldi þau á 7 krónur stykkið. Þau hefðu hins vegar ekki verið til núna síðustu daga. Ekki vissi hann hvaðan þau öryggi kæmu, taldi líklegt að þau væru t.d. frá Hong Kong eöa öðru iáglaunalandi. DS Kúnígúnd Dönsk gæðavara. Ný sending Eva-Trio, koparpottar Póstsendum. Opið laugardaga. Hafnarstræti 11 Simi13469. Prófkjör sjálfstœðismanna í Reykjavtk vinnum að_____________ stefnufestu t stjómmálum kjósum________________ Ragnhildi á þingí Ath. að tilþess að kjörseðill sé gildur þarf að krossa við a.m.k. 8 nöfn, en mest 10. Stuðningsmenn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.