Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1982, Page 9

Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1982, Page 9
DV. MANUDAGUR 29. NOVEMBER1982. Útlönd Útlönd Krefjast opin- berrar rann- sóknar á leyni- þjónustunni Hægri anmurinn í stuðningsliöi Thatcherstjórnarinnar leggur nú hart að henni að láta fara fram opinbera rannsókn á „hrikalegri óreiðu” leyni- þjónustu Breta. Það er „mánudagsklíkan” í Ihalds- flokknum sem krefst aðgerða af hálfu stjórnarinnar, eftir hvert njósna- hneykslið af öðru sem riðið hefur yfir leyniþjónustuna að undanförnu og þá einkanlega þann hluta starfseminnar sem fram fer í fjarskiptastöðinni í Cheltenham. Nýlega var Geoffrey Prime, einn af rússneskuþýðendum stöðvarinnar, • dæmdur í 38 ára fangelsi eftir margra ára njósnir í þágu Sovétmanna. Voveifleg dauösföll tveggja starfs- manna í njósnastöðinni Cheltenham hafa fylgt í kjölfarið og valdið miklu fjaðrafoki í Bretlandi. Annar fannst hengdur heima hjá sér en hinn fórst með lítilli einkaflugvél sinni þegar hún hrapaðitil jarðar. Lögreglan telur að ekkert „gruggugt” sé við þessi dauösföll. Annað sé sjálfsmorð og hitt slys. Síðan hefur kvisast að hermaður einn sem starfaö hafi hjá leyniþjónust- unni hafi verið tvær vikur í varðhaldi, grunaður um njósnir í þágu Rússa. Sagt er að upp um hann hafi komist þegar hann sást leggja leiðir sínar í sovéska sendiráðið í London. Vitað er að Prime vann leyniþjón- ustu Breta og bandamanna þeirra í NATO ómældan skaða með njósnum sínum. Hefur mál hans vakið mikla gagnrýni á bresku leyniþjónustuna, enda hefur hún orðið fyrir hverju áfallinu á eftir öðru frá því í stríðslok svo að engu er líkara en innan hennar úi og grúi af sovéskum njósnurum. VERÐLAGSEFTIR- LIT í SVISS Svissneskir kjósendur með áhyggjur af mikilli veröbólgu hafa lagt fyrir landsstjómina að halda uppi verðlags- eftirliti hjá opinberum jafnt sem einkaf y rir tækj um. Tillögur um verðlagshöft og eftirlit voru bornar fram af neytendasam- tökum og vinstrihópum, sem söfnuðu með þeim 130 þúsund undirskriftum. Voru þær bomar undir þjóöaratkvæði og samþykktar meö 60% atkvæðum. Slík þjóðaratkvæðagreiðsla er bind- andi fyrir ríkisstjómina. Þessi úrslit komu nokkuö á óvart, því aö yfirleitt em Svisslendingar frá- bitnir ríkisafskiptum en 6% verðbólga er þeim þó enn meiri þyrnir í augum. Frjálslyndir klofna í Vest- ur-Þýskalandi Yfir fimmtán hundmð flokksbundnir í flokki frjálslyndra demókrata í V- Þýskalandi hafa snúið baki við sínum gamla flokki og stofnað nýjan. Þeir hafa aldrei komist yfir óánægju sína með að forysta flokksins skyldi slita stjórnarsamstarfinu við sósíaldemó- krata Schmidts og fara í stjómarsam- starf meö kristilegum demókrötum Kohls kanslara. Formaður hins nýja flokks verður Ulrich Kriiger, fyrram þingmaður á fylkisþingi Hesse. Margir frjálslyndir demókratar hafa legið formanni sínum Hans-Dietrich Genscher mjög á hálsi fyrir að rjúfa stjómarsamstarfið við sósíaldemó- krata og kenna þeirri ákvörðun um ósigra flokksins í kosningum að undan- fömu. Hátt á annað þúsund flokks- menn komu saman til fundar í Bochum um helgina þar sem samþykkt var í gær aö stofna nýjan flokk. G Sólsk>nspa ViObÍöö'*'” ltí,G.an ötrí.la9t'a'»“8kom„í * Z&felSSZ rl,s»a.ea- "lÆ&hZSZ frá 11-647- bX,"^sZ^”"ana"' """ fe'eOSk TvfJ'” * sssjr *ö.*Z***2S>á "es"“" £vróPu‘ —- 777 GEFUR WYEAR ^RETTA GRIPIÐ IhIheklahf J Laugavegi 170-172 Sími 21240

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.