Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1982, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1982, Síða 16
16 Spurningin Hefur einhver flensa herjað á þig í vetur? María Gísladóttir freiðreiöslustúlka: Nei, engin. Flensur fara ekki illa með j mig. Þegar þær koma fær maður j flensu en ekkert meira. Fríða Magnúsdóttir þroskaþjáifi: Nei, ég hef losnað við þær og yfirleitt geri ég það, sem betur fer. Sigrún Þorgeirsdóttir, starfar í fiski: Nei, ég hef ekki fengið flensu. Yfirleitt fæ ég aldrei pestir, hvorki kvef né ann- að. Anna Maria Paulsen: Nei, ekkert, alls ekki. Ég er alltaf frísk. Hún er alltaf stálhress þessi þýska. Þórður örn Sigurðsson, lektor í Hi:[ Nei, ekkert svoleiðis. Mér verður aidrei misdægurt. Kvef fæ ég afar sjaldan. Gisli Eyjólfsson hlaðmaður: Nei, ekk- ert. Ég hef alla tíð verið stálhress ogi aldrei orðið misdægurt. 1 DV. MÁNUDAGUR 29. NOVEMBER1982. Fangadeilan: Hljómsveitin Fjötrar. „Sómakona frá Seifossi, er skrifaði iDV á dögunum, segirþetta dáindis drengi sem tromma á rimlana þar austur frá " — segir lesandi. Hvaða máli skipta nokkur lík og lemstraðir kroppar? — spyr málsvari fómarlambanna Málsvari fórnarlambanna skrifar: Mér er illa við ofbeldi. Eg kveð ekki svo fast aö orði að ég hati það, myndi þá trúlega kalla yfir mig lesendabréf í stríöum straumum, „víðsýnna og hleypidómalausra” manna og kvenna, sem spyröu mig hvort ég væri haldinn fordómum gegn barsmíðum eða eitthvaðíþá áttina. Eins og hver annar leikmaöur hefi ég fylgst meö skrifum um þá ógæfu- menn sem hafa verið dæmdir fyrir of- beidi. Það hefur verið kafað rækilega í sálardjúp þeirra af sálfræðingum, fé- lagsfræðingum, prestum og fleiri góðum mönnum og meðaumkun f jöld- ans hefur fylgt þeim. Ég var sjálfur fullur samúöar. En það var áður en ég varð fyrir þeirri lífsreynslu aö koma að manneskju, sem ég þekki og er vel til, laminni í „klessu” eins og það er kallað — eða rétt aðeins ódrepinni — að ég komst að þeirri furðulegu stað- reynd að fórnarlömbin hafa líka sál. Þaö hefur bara enginn munað eftir því. „Aumingja drengurinn” sem lamdi gengur enn laus. Sat reyndar aldrei inni nema fáeina klukkutíma eftir að hann náðist og játaöi. Trúlega fær hann skilorðsbundinn dóm þó að svo geti farið aö hann lendi á Hrauninu þá væntanlega í popphljómsveit með aðdáun æskunnar og samúö þeirra eldri. Það er aftur verra með aumingja fórnarlambiö. Nokkurra vikna lega og vinnutap var kannski ekki þaö versta, það hélt þó lífinu þó varla mætti tæp- ara standa, þegar að var komiö. En það er sálartötrið. Seigdrepandi hræðsla, svefnleysi og vonieysi hefur legið á því ems og mara frá því að atburöurinn gerðist. Og engan hefi ég heyrt tala um neina sálfræðiaðstoð, enda fórnarlambið af þeirri kynslóð sem hefur alla tíð reynt að bjarga sér sjálf. Sómakona frá Selfossi, er skrifaöi í DV á dögunum, segir þetta dáindis drengi sem tromma á rimlana þar austur frá. Enda eru þeir veröandi fyrirmyndir unga fólksins okkar og hvaða máli skipta þá nokkur lík og lemstraðir kroppar. TOMMIOG JENNISKAÐLEG- IR BORNUM —segir formaður Geðhjálpar Hope Knútsson, formaður Geðhjálpar, skrifar: Sem foreldri vil ég eindregið mót- mæla Tomma og Jenna þáttunum, ekki vegna músa og katta, heldur vegna þess að þættir þessir eru börnum skaölegir. Ég er aigjörlega ósammála því fólki sem heldur Tomma og Jenna þættina vera létt og fyndið gamanmál; kjörið barnaefni. Þessir þættir eiga ekki erindi til eins eöa nefas. Inntak þáttanna er ekkert annað en grimmd og ofbeldi. Þaö versta er þó að boöskapur þeirra er ekki í neinum tengslum viö raunveruleikann: Því er skotið að ungum börnum að það sé allt ■ í lagi að loka fólk inni í ofni, hrinda því niður stiga, loka það inni í frysti, o.s.frv. Sömuleiðis er allt í lagi meö hvers kyns limlestingar því að rétt á eftir sprettur fórnarlambið upp alheilt, rétt eins og ekkert hafi út af boriö. Haldið þið aö þetta sé fyndið? Þið skuluð muna að sá hlær best sem síöast hlær. Ég ætla því aö segja ykkur sögu úrdaglega lífinu: Sex ára gamall drengur í Colorado- fylki í Bandaríkjunum haföi allt sitt líf verið alinn á „skaðlausum” teikni- myndum, líkt og svo mörg önnur böm. Dag nokkurn komst hann yfir byssu og skaut föður sinn til bana í þeirri góðu trú að pabbi myndi spretta upp aftur að vörmu spori — og hiæja að öllu sam- an, eins og alltaf gerðist í teikni- myndunum. Teiknimyndir geta verið prýðilegt barnaefni, en það á svo sannarlega ekki við um þær allar þótt þær hafi ofan af fyrir börnunum. Tengslaleysi við raun- veruleikann og ofbeldi „Mér hefur aldrei fundist teikni- myndir af þessu tagi vera heppilegt bamaefni, sérstaklega vegna tengsla- leysis viö raunveruleikann” — sagði Kristinn Björnsson, sálfræðingur og forstöðumaður sálfræðideildar skóla í Reykjavík. — „Það sem finna má að er hversu mikið ofbeldi er sett þama inn, vafalaust til þess aö auka söluna. Þættir, eins og til dæmis Múmínálf- arnir, em heldur ekki í samræmi við raunveruleikann, en þeir flytja jákvæðan boðskap; em skaðlaus ævin- týri.” -FG. ------------------->■ Tommi og Jenni. „Það sem finna má að er hversu mikið ofbeldi er sett þarna inn, vafalaust til þess að auka söiuna" — segir Kristinn Björnsson, sáifræðingur og for- stöðumaður sóifræðideiidar skóia i Reykjavik.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.