Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1982, Side 22

Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1982, Side 22
30 DV. MANUDAGUR 29. NOVEMBER1982. BREIÐHOLTI SÍMI 7622S Fersk blóm daalega. miklatorgi SÍMI 22822 Teg. Fmn 144 Litur: svart lakk Stærðir: 23—30 Teg. 3133 Litur: dökkblár Stærðir: 24—30 MIKIÐ URvAL AF SKOM A ALLA FJÖLSKYLDUNA. PO Kopovogs Skó- verslun Hamraborg 3. — Sími 41754. JOLASKOR Á BÖRNIN Teg. Finn 145 Litur: Rauttlakk Stœrðir: 23—30 Teg. Fmn 140 Litur: grár Stærðir: 23—30 Sparibúid bílinn fyrir hátíöarnar! Væri ekki upplagt að gleöja fjölskyldubíl- inn og notendur hans meö nýjum sæta- áklæöum, nú þegar jólln nálgast? Mjúk, falleg og hlý áklæöi í miklu úrvali fyrir flestar tegundir bifreiöa. Afar hagstætt verö. Skeljungsbúðin Síðumúla33 símar 81722 og 38125 Menning Menning Menning Málverk eftir Mladovsky. Úthverfar og innhverfar myndir í Nýlistasafninu Á meöan Listasafn íslands virkar nánast eins og fornleifafræöistofnun er Nýlistasafniö í Reykjavík á f ullum krafti aö kynna okkur listrannsóknir nútímans. Hér áöur voru þaö aðal- lega concepthugleiöingar sem fóru upp á veggi safnsins en nú virðist nýja málverkið vera aö gleypa áhuga þeirra nýlistarmanna. Nýja málverkið er nú orðið alþjóö- legt fyrirbæri, afsprengi nýrrar kyn- slóöar. Þaö sem vekur sérstaka eftir- tekt er hve listamennirnir eru yfirleitt ungir að árum og þegar komnir inn í helstu listasöfn í E vrópu og Ameríku. Mikiö hefur veriö rætt um skjótan uppgang þessara ungu listamanna og viröist ein aöalskýr- ingin vera sú aö listunnendur voru orönir þreyttir á concept og mini- mælingum og vildu fá „raunveru- lega listhluti” inn í galleríin. Þá verður einnig þessi öra breyting aö skrifast á nýja kynslóð safnstjóra í Evrópu og Ameríku sem alist hafa upp og menntast í stööugum list- breytingum síðastliðinna áratuga. En þessir ungu málarar hafa ekki aðeins hleypt blóöi í málverkiö held- ur hafa þeir einnig framkallað nýjar markaðsleiðir meö því aö reyna að sniðganga hin heföbundnu gallerí sem stjórnaö hafa mestallri lista- verkasölu í heiminum. Talaö er um að þeir hafi brotiö allar „siöferöis- reglur” listaverkamarkaösins meö því t.d. aö selja verk sín á breytilegu veröi frá degi til dags. Franskir lista- verkaslar segja þá á góöri leið með að riöla algerlega hinu hefðbundna markaösveröi. En þessi ringlureiö á markaösveröi er einnig hluti af þeirra listhugleiöingum. Þessir ungu listamenn hafa nefnilega einnig lagt sig fram viö aö bylta hinu hefð- bundna gildi listhlutarins, í þessu tilfelli myndarinnar. Algengt er að þeir rammi ekki inn myndirnar né tölusetji. Er þetta til að undirstrika .hið „tímabundna eöa skammvinna eöli” myndarinnar. Myndin á ekki aö vera þessi ævarandi dularfulli list- hlutur heldur aöeins enn ein tegundin af neyslu nútímamannsins. En þó virðist oft koma fram þver- sagnir þegar rætt er viö þessa lista- menn sem afneita ekki söfnum og heimta oft svimandi háar trygginga- upphæöir. Þannig viröast þeir oft detta inn í „gamla listmunstrið”. Föstudaginn 19. nóvember var opnuö sýning á verkum eftir tvo listamenn sem fylg ja nýju bylg junni. Þeir heita Juliao Sarmento og Jan Mladovsky. I tilkynningu frá safninu segir að þeir félagar hafi sýnt víös vegar undanfarin ár. Sarmento, sem fæddur er í Lissabon 1948, sýndi m.a. á Feneyjar-Biennalnum áriö 1980, Parísar-Biennalnum 1980 og á Doeumenta 7 í Kassel 1982. Mladovsky er hins vegar fæddur í GunnarB. Kvaran London 1946 og segir í fréttatil- kynningunni aö hann hafi m.a. sýnt á Sikiley. Þessir listamenn sýna okkur afar ólíkar myndgeröir og segja má aö þessar andstæður dragi vel f ram sér- kenni hvors listamanns. Miadovsky er fullkomlega aka- demískur teiknari og listamaður sem viröist ekki búinn aö losa sig viö ákveðna skólasýn. Hann er skemmti- lega djarfur þegar hann dregur upp afgerandi litafleti sem í mörgum til- fellum standa fyrir óendanleg rými og eru leiö umgjörð fyrir ærslafulla spennu og mismunandi útfæröar hraöahugmyndir. Þó svo verk hans séu opin og dýnamísk er ekkert til- viljunarkennt hér á feröinni. Mynd- efnin eru oft nákvæmur samanburö- ur á ólíkum hraöafyrirbærum eins og Kona/villidýr; tígrísdýr/skelbaka; fallhlíf/fugl, sem sett eru á fleygi ferð inn í djúpa rýmisverkun sem þrátt fyrir allt er aðeins litaður flöt- ur. Sarmento sýnir mun innhverfari myndir, eins konar táknrænt eintal þar sem listamaöurinn veltir sér m.a. upp úr lostafullum kynlífsórum. Þessar myndir eru líkt og minnis- blöö, riss sem vitnar um tímabundna reynslu myndefnisins og veitir freudískum aödáendum athyglis- verðar upplýsingar. Þá koma fram hjá listamanninum formrannsóknir þar sem hann sker til myndformið, brenglar hefðbundnum hlutföílum og afnemur rammann. Þessi formræna framsetning viröist einnig til að undirstrika hið innhverfa eðli mynd- anna, sem glataö hefur öllum ein- kennum „listhlutarins”. Þessi sýning í Nýlistasafninu er sannarlega frískleg og í takt viö tímann. Áhorfandinn eignast hér hlutdeild í sjónrænu ævintýri sem um leið getur veriö tilefni til óendan- legra hugleiðinga. GBK Málverk eftir Sarmento. Ljósm. GBK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.