Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1982, Qupperneq 7
DV. ÞRIÐJUDAGUR 30. NOVEMBER1982.
7
Neytendur Neytendur
Skemmtiatríðiö umrætt laugardagskvöld i Broadway var það sem nefnt var
Broadway-ballett. Þar var Steve Fant einn aðaldansarinn. Sést hann hér í einu
atriöa ballettsins.
DV-mynd: EinarOlason.
Óánægja með aðgangseyri í Broadway
Fullur aðgangseyr-
ir fram að lokun
— þó að skemmtiatriðum sé lokið
„Okkur hérna á Verðlagsstofnun
f innst það mjög óeðlilegt ef f ólk er látiö
greiða fyrir þjónustu sem það fær
ekki, eins og virðist vera í þessu til-
felli,” sagði Jóhannes Gunnarsson,
fulltrúi verðlagsstj óra.
Hingaö hafði hringt kona sem fór á
skemmtistaðinn Broadway á laugar-
dagskvöldið fjrir rúmri viku. í
inngangseyri var henni gert að greiða
75 krónur. Var henni sagt að skemmti-
atriði gerðu þetta háa verð. En þegar
inn var komið var ljóst að skemmti-
atriðum var öllum lokið. Konan hafði
beöið dyravörð um kvittun fyrir
aðgangseyri en verið neitað, haföi
aöeins fengið kvittun fyrir rúllugjaldi
upp á 25 krónur (rúllugjaldiö er
reyndar komið upp í 30 krónur). Þótti
henni þetta að vonum mjög óeðlilegt.
„Verðlagsstofnun eru alltaf að ber-
ast kvartanir í svipuðum dúr vegna
Broadway,” sagði Jóhannes. „Þess
vegna erum við núna að gefa út skýr-
ari reglur um upplýsingar þegar
aðgangseyrir er hækkaöur. I fyrsta
lagi segir í þeim að skylt sé að láta
standa á skilti á greinilegum stað utan
á húsinu verð aögangseyris. I ööru lagi
að eftir að skemmtiatriðum er lokið
megi aðeins innheimta rúllugjald. Og í
þriðja lagi að ef um hækkaðan
aðgangseyri er að ræða skuli véitinga-
húsin auglýsa þaö fyrirfram og geta
umverð.”
Á þessu umrædda laugardagskvöldi
lék hljómsveit fyrir dansi í Broadway.
Eg spuröi Jóhannes hvort það væri
næg ástæða til aö halda aðgangseyrin-
um þetta háum þó að skemmtiatriöi
væru búin. Hann sagði svo ekki vera.
Hér í bæ væri fjöldi skemmtistaða sem
ævinlega væru með hljómsveit og
seldu ekki dýrara inn fyrir það. For-
ráðamenn húsanna yrðu að ákveða það
hvort þeir vildu hafa hljómsveit eða
ekki, án þess að fá meira fyrir það.
-DS
IKÁIA
Hillu skilveggir
Skála-hilluskilveggirnir
bjóða upp á ótrúlega mikla
möguleika í uppröðun.
I skilveggina er hœgt að fá
skápa, hillur og blómakassa
eftirþörfum hvers og eins.
Sendum um allt land\ góð
greiðslukjör.
Ath. Veggimir eru mjög auð-
veldir í uppsetningu.
£5*
HÚSGÖGN
Skemmuvegi 4,
Kópavogi,
Sími73100
CORNING úr frystikistunnibeintíofninn, á eidavéiina eða í
örbyigiuofninn
EINUIMGIS HAGÆÐAVARA FRA USA 7
OG BEINT
Á BORÐIÐ
OPIÐ LAUGARDAGA 10-12
ASTRA SÍÐUMÚLA 32 - SÍMI 86544