Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1982, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1982, Side 10
10 DV. ÞRIÐJUDAGUR 30. NOVEMBER1982. Útlönd Útlönd Útlönd Utlönd Kókaínfíknin í Bandaríkjunum hefur breiöst til Vestur-Evrópu, þar sem löggaaslan er farin aö rekast æ oftar á sífellt stærri sendingar kókaíns. Samtímis gætir í Bretlandi og fleiri Evrópulöndum vaxandi heróínneyslu, sem nærist á stór- sendingum f rá Pakistan. Sérfræöingar í fíkniefnamálum í Bandaríkjunum og annars staöar, þar sem menn berjast viö eiturlyfja- smyglið, kvíöa því aö metuppskera á ópíum í hinum svokallaða Gullna þrí- hyrningi í Suðaustur-Asíu eigi eftir aö auka verulega á vandann. Reynsl- an hefur nefnilega sýnt aö því meira heróín sem er framleitt því meira stækkar markaöurinn. Því meira f jölgar ungu fólki á borgarstrætum í Ameríku og Evrópu, fjötraö.í hinu gullnu hlekki eiturlyfjaávanans. Smyglið vex þrátt fyrir aukið átak í vörnum Þrátt fyrir betra skipúlag og aukið samstarf eiturlyfjalögreglu hinna ýmsu landa, auknar fjárveitingar til fíkniefnavama og sífellt stærri sigra í baráttunni viö smyglhringa þá virö- ist smygliö fara í vöxt og neyslan aukast. I Evrópu eykst neyslan mest á kókaíni frá Suöur-Ameríku, eftir því sem eiturlyfjadeild Sameinuöu þjóö- anna (meö aöalstöövar í Vínarborg) telur sig hafa orðið áskynja. Æ stærri smyglfarma rekur á fjörur lögregl- unnar í Frakklandi, Hollandi, Bret- landi og fleiri löndum. Bandarískur fíkniefnasérfræöingur, sem fylgst hefur með þróun mála í Lundúnum, segir aö þar stefni kókaínneysian í stórmarkað eftir eitt ár eöa svo, eftir öllum sólarmerkjum aö dæma.” Franska tollgæslan komst yfir áttatíu og sex kíló af kókaíni í fyrra, en þaö er f jórfalt meira magn en rak á fjörur hennar 1980. Stórsigurí Bandaríkjunum Kókaínið kemur frá Kólombíu, Perú og Bólivíu, sem hafa lagt stór- an skerf til svarta markaðarins í Bandarikjunum á síðustu árum. En það er hald sumra sérfræöinga aö kókaínstraumurinn hafi beinst í meiri mæli til Evrópu vegna þess aö markaðurinn í Bandaríkjunum sé aö mettast, eöa í þaö minnsta sé frekari útþenslu hans takmörk sett. Auk þess er sagt aö aukið átak stjóm- valda í Bandaríkjunum til þess aö stemma stigu við eiturlyfjasmyglinu hafi skotið eitursölunum skelk í bringu. Stórátak hefur verið gert 1 Flórída til þess aö efla lögreglu, toll- og strandgæslu meö þeim árangri að stórsendingar hafa veriö stöðvaðar. Tvívegis hafa skip meö 30 smálesta sendingar frá Kólombíu veriö stöðvuö og nokkrum sinnum hefur höndum veriö komiö yfir bæði miklar birgöir heróíns og kókaíns og stóra hópa smyglara. Frá því síöast í júní síðasta sumar hefur löggæslan í Flórída komist yfir 211 smálestir af maríjúana, sem er tíu sinnum meira magn en fannst á öllu árinu 1981. Lagt hefur veriö hald á ellefu smygl- báta og 144 menn veriö handteknir. Enda hafa menn orðið þess varir aö eiturlyfjagrósserar í Flórída séu famir aö þreifa fyrir sér á vestur- ströndinni meö tilliti til þess aö flytja sig um set. Þótt markaðurinn í Kali- forníu sé stór, einkanlega í kvik- myndaborginni, þá er hætt viö aö slíkir aösetursflutningar eiturlyfja- gróssera yröu skammgóöur vermir því aö Reaganstjórnin hefur á prjónunum að efla fíkniefnavamirn- ar um allt land. Einkanlega þá í eftirliti meö hinum smærri flug- völlum og allri flugumferð frá Kólombíu og fleiri Suöur-Ameríku- löndum. Stærsta veiöi bandarísku tollgæslunnar í allri sögu fíkniefna- varna landsins kom í net hennar í mars sl. þegar fannst eiturlyfja- farmur í flutningavél frá Kólombíu, en hann var metinn til eins millj- arös dollara. Aðeins 10% í hendur löggæslunnar Þótt aukinn straumur kókaíns valdi fíkniefnalögreglu Evrópu áhyggjum, er þaö samt heróínið sem Opiumbændur i Gullna þríhyraingnum selja heróínframleiðendum uppskeru sína. EITURLYFIN VINNA SÉR MEIRIMARKAÐ í VESTUR-EVRÓPU br,eyst í stórframleiöslu á heróíni. Herstjóm landsins, undir forystu Mohammad Zia-Ul-Haq, hershöfð- ingja og forseta, hefur lýst yfir „jihad” (heilögu stríöi) gegn eitur- lyfjasölunni og hefur frá því í ágúst haft til yfirvegunar aö láta brot varöa dauðarefsingu. En armur lag- anna nær skammt upp í hrjóstrugar f jallabyggöirnar, þar sem hver ætt- flokkur ríkir í sinni dalsbyggö aö mestu afskiptalítið af landsstjórn- inni. Engum lögum veröur komið yf- ir hémöin næst Jandamæmm Afghanistan, þar sem vitaö er aö komiö hefur verið upp flytjanlegum verksmiðjum, sem framleiða heróín úr ópíum valmúans. — Þaö kom skýrast í ljós fyrr í þessum mánuði þegar William French Smith dóms- málaráöherra varö aö yfirgefa í skyndingu þorp eitt í grennd við Khyber-skaröið, þegar pakistönsk yfirvöld treystu sér ekki að tryggja öryggi hans meöan á heimsókninni stóð. Eiturlyfjalögreglan á Vesturlönd- um gerir sér helstar vonir um aö Pakistanstjórn muni bretta upp ermamar þegar heróínneyslan fer að horfa til vandræöa hjá Pakistön- um sjálfum, en þar hefur neysla vægari fíkniefna eins og á hassi lengi veriö landlæg. Pakistan aðalfram- leiðandi eftir 1979 Pakistan varð einn aöalframleiö- andi heróíns eftir byltinguna í íran 1979 og innrás Sovétmanna í Afghan- istan. Pólitísk ólga í þessum löndum setti úr skorðum fyrri tíma fram- leiöslu og smyglkerfi. Þegar síðan fylgdi metuppskera ópíumvalmúans í Pakistan spruttu heróínverk- smiðjumar upp hver af annarri í herbúðum viö norövestur-landamær- in. Þaö var vatn á myllu pakistönsku framleiðslunnar þegar uppskeru- brestur varö 1979 í Gulina þríhymingnum, eins og landamæra- svæðin í Thailandi, Burma og Láos eru gjamankölluö. Smyglað til Ítalíu Frá Pakistan er heróíninu smyglað til Evrópu í gegnum Tyrk- land og þaöan áfram til Amsterdam og annarra stórborga. Þaö er vitað að unnið er úr hráu ópíum frá Pakistan í verksmiöjum á Italíu og á Sikiley áður en því er síðan smyglaö í formi heróíns til Bandaríkjanna og aðallega þá til austurstrandarinnar, oft þó fyrst til Kólombíu og svo til Bandaríkjanna. En eftir forseta- og stjómarskiptin í Kólombíu, þar sem nýi forsetinn hefur heitið aö skera upp herör gegn eiturlyfjaversluninni og spillingunni meðal herforingja- og embættismannaaöaisins, gera menn sér vonir um aö loka senn þeirri leið. Eftir er þó Perú og Bólivía sem hafa einnig veriö vinsælar umskipunar- hafnir eiturlyfjagrósseranna. Metuppskera / vændum Eftir að heróíniö tók að streyma frá Pakistan hefur minna boriö á Asíuframleiöslunni á mörkuöunum í Bandaríkjunum og Evrópu. 1 Frakk- landi telja menn sig hafa orðiö þess áskynja í ár aö aftur sé fariö aö streyma heróín frá Gullna þríhyrningnum. Og nú hafa fíkniefnasérfræöingum borist njósn- ir af því aö metuppskera á ópíum sé í vændum í Guilna þríhymingum. Sennilega alit aö 600 smálestir. Á fundi fíkniefnasérfræöinga fjölda ríkja í Kuala Lumpur nú á dögunum þóttust menn s já f ram á aö verö á heróíni ætti eftir aö falla, þegar Asíuframleiðslan reynir aö ryöjast aftur inn á sína gömlu markaði í samkeppni viö Pakistan- heróíniö. Og ekki mun þaö líklegt til þess að draga úr eiturlyf janeyslunni. Auk þess verða menn varir viö * tilburöi eiturlyfjasala til þess aö vinna nýja og stærri markaöi í Asíu ogíÁstralíu. mönnum stendur mestur stuggur af. Heróín hefur flætt til Vestur-Evrópu frá Pakistan á síðustu þrem árum. Hafa tollverðir slegið hvert metið á eftir öðru í hvalrekum stórsmygl- farma, en þaö þykir einvöröungu sýna aö umsetningin sé sem því nemur meiri. Það er mat manna aö þaö séu ekki nema 10% alis heróín- smygls sem komist í hendur löggæsl- unnar. Hitt sem sleppur í fölskum botni ferðatösku smyglarans, eða í gúmmísmokkum, sem smyglarinn gleypir sé eins og sá hluti ísjakans sem hulinn er sjónum manns undir yfirborði sjávar. Sjúklingum fjölgar Það sem liðið er af þessu ári hafa yfirvöld komist yfir 1.200 kíló af Pakistan-heróíni, eftir því sem'vitaö er. Heimingur þess náöist í Pakistan, en hinn helmingurinn var kominn til Vestur-Evrópu. Þaö er meir en tvöföldun þess magns sem yfirvöld komu höndum yfir í fyrra. Fjöldi heróínsjúklinga hefur aukist hratt. I Bretlandi voru 3.400 eitur- lyfjasjúklingar (heróínneytendur) á skrá í fyrra, en þaö voru þúsund fleiri en 1980. Hitt ætla menn aö sé þó sönnu nær aö fjöldi heróínneytenda sé um fjörutíu þúsund. Heróín- neytendum í Frakklandi hafði einnig fjölgaö um þúsund upp í 4.200 sem þar eru á opinberri skrá. Löglausir landshlutar Sá illi bifur, sem menn höföu áö- ur á ópíumræktun Tyrkja, snýst nú gegn Pakistönum. Verst þykir mönnum aö þar hefur ópiumræktun Maríjúanafannarair frá Kólombíu eru taldir í tugum smálesta sem löggæsla austurstrandar Bandarikjanna hefur komist yfir, en það er kókaínið og þó fyrst og fremst beróinið, sem mestum áhyggjum veldur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.