Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1982, Page 15
DV. ÞRIÐJUDAGUR 30. NOVEMBER1982.
15
g Menning Menning
meinsrannsóknar. Henni finnst sér
hvarvetna ofaukiö um leið og hún
getur ekki lengur lifaö í öörum fjöl-
skyldumeðlimum. Sjálfri sér týnd
ráfar hún um bláókunnug kona í
heimahögum, manneskja sem misst
hefur hlutverk og þar meö sinn til-
gang.
Sögurnar sem hér hafa veriö
nefndar eru f jarskalega vel unnar og
birta alla bestu kosti Svövu. Gallinn
er bara sá að þær segja ekkert nýtt.
Viö höfum lesið þær áður í öörum
orðum. Svava er eins og fangi þeirra
texta sem hún hefur áöur samiö,
hugsun hennar orðin aö klisju. Því er
líkast aö furöuraunsæi hennar hafi
falliö inn í sjálft sig og hún megni
ekki aö beita því á nýjan efnivið.
Sem er illt þvi að þessi frásagnar-
tækni býr yfir ótal markmiðum og
leiðum. Kannski er þetta ástæðan
fyrir því að hún rýfur ekki skilveggi
hversdags-raunsæis og fjarstæðu
nema í tveim sögum bókarinnar.
Snjólukt veröld
Svava er nýrri í sögum á borð við
Veisluglaum hf., Ferðamanni og
Sundi. Þar fjallar hún með
raunsæislegum hætti um almenna
reynslu á varfærinn og látlausan en
djúptækan hátt. Þessi verk fjalla
hvert með sínum hætti um einangrun
og ástleysi, lífslygi og dauöa.
Veisluglaumur hf. minnir að ýmsu
leyti á Hégóma, þá frægu sögu
Halldórs Stefánssonar. Þetta er
smælingjasaga um einmanaleik og
niðurlægingu gamallar konu sem má
muna fífil sinn fegurri. Hún er hálf
örvasa einstæðingur og lifir nær
bjargarlaus í snjóluktri veröld.
Dögunum eyðir hún í aö safna
auglýsingum úr dagblaöi. Sérlega
höfðar tilkynning frá Veisluglaumi
hf. til hennar, vekur óra um mann-
fagnað, samveru og gleði: „Gátu
þeir ekki allt eins átt von á að hún
hringdi eins og hver annar?” (63)
Auövitað ekki! Örlítið atvik verður
til að sundra þessari grátbroslegu
sjálfsmynd og opna augu hennar
fyrir þeirri miskunnarlausu stað-
reynd að hún er ein og ekki neitt. Líf
hennar er snjór í myrkri.
Hið sama má segja um sögu-
hetjuna — sem nú er karlmaður — í
Ferðamanni. Hún lifir einnig í
luktum heimi — en sökin býr í
hennar eigin brjósti. Hún heldur sig
þekkja mennina en er í raun fórnar-
lamb lygi og lífsflótta. Atvik á ferða-
lagi veldur því að hún sér sjálfa sig
eins og hún er: mynd á auðu, hvítu
tjaldi! Lífslygin bíður ósigur fyrir
lífinu sjálfu sem fossar inn í vitund
hennar og kveikir angist og öryggis-
leysi. Þessi breytta vitundkristallast
í lokaorðum smásögunnar:
„Orðlaus starði hann í augu
Bækur
Matthías
ViðarSæmundsson
þeirra. Osjálfrátt tók hann eitt skref
aftur og varð fótaskortur í hrauninu.
Steinnibba skarst inn í hold, sársauk-
inn skar vitund hans og stóð í honum
eins og fleygur meðan hann reyndi
að hörfa með virðuleik í ósléttu
grjótinu.” (29).
Kvíði og dauði
Sund er að mínum dómi ein áleitn-
asta saga bókarinnar. Höfundur
gæðir hana miklu lífsmagni með
táknrænni hliðskipan atriöa og
breyttri endurtekningu. Allir hlutar
hennar starfa saman svo úr verður
heilsteypt og áhrifamikið listaverk.
Þetta er ljóðræn saga um til-
finningu: Kvíðann. Ungtelpa horfist
í augu við dauðann í fyrsta sinn.
Amma hennar er að deyja. Dul-
kynjuð spenna heltekur telpuna,
órætt aðdráttarafl mætir angist í
fylgsnum hugans. I Sundhöllinni
kallar dauðinn í mynd vatnsins.
Hann seiðir og hrindir í senn. Hví
ekki láta sig sökkva í djúpið í sátt við
vatnið? Það leiddi stríðið og kvíðann
til lykta. En algleymiö rofnar og
stúlkan lifir sig í uppreisnarstríði
ömmusinnar:
/.. ./ í skelfingu barðist hún um í
vatninu, sparkaði frá sér hyldýpinu
og þegar hún sá kreppta fingur sína
rísa bjargarvana upp úr vatninu
endurómaði í höfði hennar rödd
ömmu hennar: Ég skal
strax.. . .”(82) Og viljum við ekki
öll.. ..?
Bölmóður
Sögur Svövu skiptast mjög í tvö
horn eins og fyrr segir. I annan stað
fjallar hún um almennan tilvistar-
vanda nútímafólks: einmanaleik og
sambandsleysi, tómleika og lífslygi.
Hins vegar gengur hún í fótspor
sjálfrar sín og gagnrýnir þá hug-
myndafræði sem um aldir hefur
fjötrað kvenkynið í hlutverkum
móður, húsmóður og ástmeyjar.
Myndin sem hún dregur upp er dökk
og fátt um úrræði. Þó að birti ögn til í
lokasögu bókarinnar er lífsýn hennar
neikvæð og greinilega dimmt fyrir
sjónum höfundar. — Og líklega
þurfum viö á slíku að halda til aö
rumska.
Lokaorð
Það er ekki mikill nýjablær í bók
Svövu en samt er mikill fengur að
henni. Enn einu sinni sannar Svava
að fáir standa henni jafnfætis í smá-
sagnalist. I örfáum dráttum kemur
hún oft langri sögu til skila á máli
sem er vísvitað og ljóst en rnn leið
táknauöugt og margrætt. Leikni
hennar birtist ekki síst í upphafs-
orðum sagnanna sem oft spegla
verkin í heild sinni. Gott dæmi er
byrjun Veisluglaums hf.:
„Sólin skein enn á snjóruðningana
á gangstéttunum en í huga gömlu
konunnar hafði tekið fyrir alla
birtu.” (55).
FAM
RYKSUGUR
Haukur og Ólafur
Ármúla 32 - Sími 37700.
\Þetta er bara
\ smás ýnishorn
\af úrvalinu.
íþróttagaHar
Stærðir:
small og medium.
Verð kr. 848.
Hvít blússa
með dökkbláum
röndum
og dökkbtáar
buxur
Sportvöruverslun
Ingólfs
Óskarssonar
Klapparstíg 44,
sími 11783.
2. Ijóstinjn/dökktanjn
220x240 cm. 1.090 kr. 180 x 240 cm 855 kr.
4. brúnJljósbtMk/ljós
220x240 cm 1.090 kr.
5. Ijósbrúnldökkbr.
220 x 240 cm 1.090 kr.
bleikJljósbl. 180 x 240 cm 855 kr.
13. bli, Ijöchrún, 220x240 cm 1.590 kr.
18. brúnj^és, 150x220 cm 615 kr.
14. Ijúcbrún. bWk. 220x240 cm 1.590 kr.
19. brúi/ljós. 150 x 220 cm 615 kr.
15. blá. Ijósbrún, 220x240 cm 1.590 kr.
20. brún/ljós. 150 x 220 cm 615 kr.
16. brún, Hbblá. 220 x 240 cm 1.090 kr.
17. brún/ljós, 180 x 220 cm 855 kr.
Sendum í póstkröfu.
INGVAR OG GYLFI
GRENSASVEGI 3 108 REYKJAVIK, SIMI. 81144 OG 33530
Sérverzlun með rúm