Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1982, Qupperneq 3

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1982, Qupperneq 3
DV. MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER1982. 3 Áskorun ASV: Verkafólk snúist til sóknar opnað í Reykjavík Hallgrímur Ingi fundinn sekur um líkamsárás: DÆMDUR í TÍU ÁRA FANGELSI Hallgrímur Ingi Hallgrímsson, fædd- uráriö 1953, var í gær dæmdur í tíu ára fangelsi. Dómurinn var kveðinn upp í Sakadómi Reykjavíkur af Jóni Abra- ham Olafssyni. Dómurinn áfrýjast sjálfkrafa til Hæstaréttar enda er hann þyngri en fimm ára fangelsi. Sakadómur úr- skurðaði að Hallgrímur Ingi skyldi sit ja í gæslu varðhaldi þar til hæstarétt- ardómur væri genginn eða til 1. júlí 1983. Hallgrímur Ingi var handtekinn skömmu eftir aö 15 ára gömul stúlka hafði fundist alvarlega sködduð eftir líkamsárás í Þverholti í Reykjavík aö kvöldi föstudagsins 4. desember í fyrra. Hann hefur síðan setið í gæslu- varöhaldi ogkemur sá tími til frádrátt- ar fangavistinni. Hallgrímur var dæmdur á grundvelli 281., 220. og 202. greinar hegningarlag- anna, fyrir að hafa með vísvitandi líkamsárás valdið stúlkunni tjóni á lík- ama og yfirgefið hana bjargarlausa. Loks var hann dæmdur fyrir önnur kynferðisrrtök en samræði. Dómarinn taldi hins vegar aö 194. grein hefði ekki verið brotin. Fyrir dómnum lá skýrsla um geð- rannsókn. Niðurstaðan hennar var sú að Hallgrímur var talinn sakhæfur. Af hálfu ákæruvaldsins sótti málið Bragi Steinarsson ríkissaksóknari. Verjandi var Örn Clausen. Hallgrímur var einnig dæmdur til greiöslu máls- kostnaðar, króna 12.000, og til að greiða verjanda sínumkrónur 24.000. -KMU. „Viö göngum út frá því sem vísu að menn séu ekki ánægöir og aö þeir telji að ekki hafi verið nauðsynlegt aö skerða umsamin laun,” sagði Pét- ur Sigurðsson forseti Alþýöusam- bands Vestfjarða en á kjaramálaráð- stefnu sem fram fór á vegum sam- bandsins um helgina var skorað á fé- lög verkafólks um allt land að snúast til sóknar strax i byrjun næsta árs gegn kjaraskeröingum. „Eg vil ekki taka þaö sem lögmál að einhver jir verkalýðsleiðtogar geti bara yppt öxlum og sagt: Þetta þýðir ekkert þar sem fólkið stendur ekki meö okkur. Við verðum að byggja upp verkalýðshreyfinguna og gera fólk meðvitað um að eitthvaö þurfi að gera. Það afl sem þarf til aö hnekkja þessum kjaraskerðingum verður aö koma innan frá úr verka- lýöshreyfingunni. Með eftirgjöf við síendurteknum árásum á kjör verkafólks hefur bar- áttuþrek þess veriö slævt og það hef- ur misst trúna á samtök sín. Þetta endar með hreinni uppgjöf ef svo heldur áfram,” sagði Pétur Sigurðs- son. -ÓEF. Kvenna- athvarf Við skúrinn á myndinni var ráðist á stúikuna fyrir ári. Innfellda myndin er af Hallgrími Inga. I gær var fyrsta k vennaathvarfiö á tslandi opnað í Reykjavík. Tvær kon- ur hafa veriö ráðnar þar til starfa en auk þeirra munu allmargir sjálf- boðaliðar taka vaktir í athvarfinu. Þessi griðastaður fyrir konur sem sæta ofbeldi á heimilum sínum er á góðum stað í bænum, í húsnæði sem samtökin hafa á leigu til vors. Sím- inn er 21205. Þangað geta konur hringt og leitað ráða, og ef þær vilja verður þeim leiðbeint á staðinn. Geta þær haft böm sín með sér og dvaliö lengri eða skemmri tima eftir atvik- um. Nöfn kvenna sem hafa samband við athvarfið verða ekki skráð og nafnleyndar gætt i hvivetna. ihh. DV KANNAR BOKASÖLUNA: Kristján Sveinsson söiuhæstur Eins og um síðustu jól, gerir DV um þessi jól smákönnun á því, hvern- ig jólabækurnar seljast, nú þegar jólabókaflóöiö er að hefjast. Þessi könnun er gerð með aðstoö níu versl- ana, fjögurra á Reykjavíkursvæðinu og fimm verslana úti á landi. Versl- anirnar í Reykjavík eru: Penninn, Hafnarstræti, Bókabúð Braga og bókadeildin í Hagkaupum. I Hafnar- firði er það svo Bókabúö Olivers Steins sem veitir upplýsingarnar. Aðrar verslanir eru, Bókabúö Grön- feldt í Borgarnesi, Bókhlaðan, Isa- firöi, Bókabúð Jónasar Jóhannsson- ar á Akureyri, Bókabúö Sigbjöms, Egilsstöðum og Bókabúð KA á Sel- fossi. Hafa ber tvennt í huga, þegar niðurstöðurnar eru skoðaðar. I fyrsta lagi er jólabókaflóðið vart hafið enn og enn seljast söluháar bækur sem hafa verið á markaðnum lengi en ætla má aö nýútgefnar bækur dragi á eftir sem á líöur. Sem dæmi má nefna aö þar sem við- talsbókin viö Albert Guðmundsson komst í verslanir fyrir helgi, seldist hún mjög vel. Þó er hún ekki á DV- listanum yfir söluhæstu bækur þessa vikuna því út á land barst hún ekki fyrr en eftir helgina. I öðru lagi er sala nokkuö mismun- andi eftir landshlutum, þannig að bækur sem geyma fróöleik um sögu ákveöinna landshluta, seljast þar vel en ekki svo mjög annars staöar. Þannig voru bækur á lista frá verslunum úti á landi sem ekki fund- ust á öörum stöðum. Alls var getið 39 bóka á listunum frá verslununum níu. Þeim er síðan raðaö þannig aö söluhæsta bókin fær tíu stig, sú næsta níu, og svo koll af kolli, þar til sú tíunda fær eitt stig. Heildarstigafjöldinn ræður svo röð- inni á listanum. Þessi könnun verður síðan endurtekin vikulega fram að jólum og birtist sú síöasta miðviku- daginn fyrir Þorláksmessu. En hér kemur svo listinn, eins og hann reiknaðist eftir könnunina: 1. Æviminningar Kristjáns Sveinssonar, Gylfi Gröndal skráði (Setberg). 2 — 3.Jólalögin í léttum útsetning- um e. Jón Þórarinsson (AB) og Dauðafljótið e. Alistair McLean. 4. Hverju svarar læknirinn e. Claire Rayner, Bertil Martensson og Guðstein Þengilsson (Iðunn). 5. Persónur og leikendur e. Pétur Gunnarsson (Punktar). 6. Landið þitt e. Þorstein Jósepsson, Steindór Stein- dórsson og Pál Líndal (Örn og örlygur). 7. Ó, það er dýrlegt að drottna e. Guðmund Sæmundsson (höf. gefur út). Jafnar í 8—9—10 sæti urðu svo bækumar Á leið til annarra manna, viðtalsbókin viö Albert Guðmunds- son og Sýnir og sálfarir e. Guðmund Jónsson. Þessar tölur eiga eflaust eftir að breytast mjög þegar dregur nær jól- um en næsta könnun birtist í DV næstkomandi miövikudag. óbg KANARÍEYJAR Jó/a- og nýársferðir Jólaferð. Brottför 14. des., komiö heim 30. des., 17 dagar. Brottför 14. des., komið heim 8. jan., 26 dagar. íslensk jólahátíð og áramótafagnaður i sólskinsparadís. Áramótaferð. Brottför 28. des., heimkoma 18. janúar — 22 dagar. Stórkostleg áramótagleði á einum glæsileg- asta skemmtistað Evrópu, Hawaii. Þrettánda- dagsfagnaður. Fjölbreytt skemmtanalíf í sól- skinsparadís á fjölsóttasta ferðamannastað Kanaríeyja. Lúxushótel og glæsilegar ibúðir. Kanarieyjaferdir flesta þriðjudga i allan vetur — Athugið okkarverð. ^HrtOUr (Flugferðir) Midbœjarmarkadinum 9 hœd. Adalstrœti 9 sími 10661 og 15331 Aðeins fáum sætum óráðstafað i þessar ferðir. Islenskur fararstjóri. Dagatal 1983 Fæst í öllum helstu bókabúðum landsins Þú teiknar eða límir Þínar myndír a dagatalíð Ljósmyndir — Teikningar Bamamyndir — Úrklippur Póstkort — Klippimyndir Heildsöludreifing ISKORT Lskjargötu 2, Nýja-bióhúsinu, sími 22680

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.