Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1982, Qupperneq 5
DV. MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER1982.
5
íslandsmeistarar í akstursíþróttum
Tilkynnt var um stofnun sjóðsins í boði
hjá forseta íslands á fullveidisdaginn.
Þama takast í hendur Ólafur Oddsson,
menntaskólakennari og formaður Stú-
dentaféiagsins, og Guðmundur
Magnússon, rektor Háskóla Islands.
Síöastliðinn laugardag var haldinn
haustfundur Landssambands
íslenskra akstursíþróttafélaga, og í
framhaldi af honum afhent íslands-
meistaraverðlaun fyrir hinar ýmsu
greinar bíla og mótorhjólaíþrótta. Alls
voru krýndir islandsmeistarar í 7
greinum, og í öllum greinunum keppt
um farandbikara en auk þess fengu
menn eignargripi. Í kvartmíiu var á
árinu keppt í 6 flokkum og islands-
meistarar urðu eftirtaldir: ST flokkur,
Sævar Pétursson, MS flokkur,
Guðmundur 0. Guðmundsson, SE
flokkur, Gunnlaugur Emilsson, SA
flokkur, Benedikt Eyjólfsson,
mótorhjólaflokkur, Adólf Adólfsson og
skellinöðruflokkur, Kristinn Sigurjóns-
son. Öll verðldun í kvartmílu voru gef-
in af ÖS umboöinu. Í sandspyrnu var
islandsmeistari Jón ,Eyjólfsson og í
torfæruakstri Bergþór Guðjónsson.
Verðlaunin í sandspyrnu og torfæru-
akstri voru gefin af Bílaklúbbi
Akureyrar. 1 Moto Cross varð islands-
meistari Þorkell Ágústsson og
verðlaunin gefin af Vélhjólaíþrótta-
klúbbnum. Þórður Valdimarsson hiaut
islandsmeistaratitilinn bæði í Rally-
Cross og iscross í ár. Rally-Cross
verðlaunin voru gefin af Kristni
Guðnasyni hf. en Hafrafell hf. gaf
verðlaunin í Iscross.
Islandsmeistarar í rallíi urðu bræð-
umir Omar og Jón Ragnarssynir en
þetta er þriöja árið í röð sem þeir
hljóta Islandsmeistaratitilinn í rali-
akstri. Þár með unnu þeir farand-
bikarinn sem um hefur verið keppt síð-
ustu 4 ár, Ford bikarinn, til eignar.
Hann, ásamt eignargripum, var gefinn
af Sveini Egilssyni hf.
íslandsmeistarar i akstursíþróttum
1982. Talið frá vinstri Þorkell
Ágústsson íslandsmeistari í Moto
Cross og við hlið hans stendur Ragnar
Stefánsson sem lcnti í 3ja sæti og þá
Heimir Barðason sem lenti í öðru sæti.
Þá koma íslandsmeistaramir í kvart-
mílu þeir Guðmundur Ó.
Guðmundsson, Adólf Adólfsson,
Gunniaugur Emilsson, Sævar Péturs-
son og bræðumir Jón og Benedikt
Eyjólfssynir. Þá er Bergþór Guðjóns-
son, torfæruakstri, Þórður
Valdimarsson, Rally-Cross og íscross,
og lengst til hægri Jón Ragnarsson.
Stúdentafélag Reykjavíkur
hef ur stof nað Háskólasjóð
— tilgangurinn er að styrkja Háskóla íslands
Stofnaður hefur verið Háskólasjóð-
ur Stúdentafélags Reykjavíkur.
Tilgangur hans er að styrkja ýmis
verkefni Háskóla íslands, svo og
stúdenta skólans, samkvæmt ákvörð-
un sjóðsstjórnar. Stjórn sjóðsins munu
skipa fimm menn. Háskólaráð kýs tvo
þeirra, Stúdentafélagið tvo. Þessir
fjórir skipa sameiginlega fimmta
stjórnarmann.
Hinn 1. desember var tilkynnt í boði
forseta Islands í tilefni fullveldisdags-
ins að Háskólasjóöur hefði verið
stofnaður með skipulagsskrá sem stað-
festvarþanndag. jbh
ORBYLGJUOFN
Þíðir
Sýður
Steikir
Bakar
Sparar tíma,
orku og*
uppþvott
Þrefalt
öryggis-
kerfi (rofar)
Laus botn-
plata
Námskeið í meðferð samsung örbylgjuofna
verður haldið í desember.
___________ VERÐ:
LAGMÚLA 7
REYKJAVÍK SÍMI 85333
SJÓNVARPSBÚMN
Jón Ragnarsson heldur hér kampakátur á verölaunum þeirra bræðra. Þeir unnu
Ford-bikarinn til eignar með því að verða Islandsmeistarar í railakstri þriðja
árið í röð.
Félagslíf i
Lundi með
miklum blóma
Félagslífið í íslensku námsmanna-
nýlendunni í Lundi hefur verið
óvenju blómlegt í haust. Láta mun
nærri, að 400 Islendingar séu nú bú-
settir í Lundi. Langflestir þeirra eru
námsmenn. Á hverju föstudags-
kvöldi hefur verið opið hús í Bjarkar-
lundi, félagsheimili islendinga hér
og hafa samkomur þessar verið
mjög velsóttar.
Af nýbreytni í starfi félaganna í
haust má nefna að islendingar er
vinna aö rannsóknaverkefnum í
Lundi, er tengjast Íslandi á einhvern
hátt, hafa verið fengnir til að flytja
erindi um rannsóknir sínar. Á fyrri
fundinn sem haldinn var 15. nóv.
mætti Aöalsteinn Ingólfsson og
kynnti doktorsverkefni sitt um lista-
manninn DieterRothog hinn merka
þátt hans í íslenskri nútímalist sl. 25
ár. Fundurinn var mjög f jölsóttur og
var gerður góður rómur að máli
Aðalsteins sem jafnframt sýndi lit-
skyggnur með dæmum úr íslenskri
nútímalist.
Annar fundur þessarar tegundar
verður haldinn 5. des. og þá flytur
Birgir Björn Sigurjónsson, hagfræð-
ingur frá Stokkhólmi, erindi um
frjálshyggjuna.
Fullveldisfagnaður Islendinga-
félagsins veröur haldinn 10. des. Þar
flytur Katrín Friðjónsdóttir, kennari
við háskólann í Lundi ávarp og
Hörður Torfason leikari syngur eigin
lög við ljóð Steins Steinarr.
Vikulega eru útvarpssendingar
hér í samvinnu við Islendinga í
Malmö og íslenska grenndarútvarp-
ið mun senda út á jóladag og annan í
jólum. Þar talar séra Jóhann Hlíðar,
prestur í Kaupmannahöfn, og fluttar
verða kveöjur frá ættingjum og vin-
umáislandi.
Gefiö er út blað á vegum
islendingafélagsins með ýmsu efni
er varðar hagsmuni Islendinga í
Svíþjóö en þar fer þó mest fyrir ljóö-
um eftir ritstjórann Jóhann Árelíuz.
Loks má geta þess að mikil gróska
hefur verið í íþróttalífi islendinga
hér og m.a. verið keppt við landa í
Malmö og Danmörku í knattspyrnu
og körfuknattleik.BestgekkLundar-
liðinu í körfuboltanum, enda með
margreyndan landsliösmann, Gutt-
orm Olafsson, í sínum röðum.
PÁ/GAJ Lundi.