Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1982, Side 7
DV. MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER1982.
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
IELDHUSINU:
Kókósmjöls-
kökur með
súkkulaði
2egg
175 g sykur
200—250 g kókósmjöl
1—2 msk. hveiti
100 g súkkulaði
Eggin eru þeytt vel ásamt sykrin-
um. Hveiti og kókósmjöli blandað
saman og síöan látiö saman við
eggjahræruna. Smjörpappír er lát-
inn á plötu, smurður og á hann látnir
litlir kökutoppar. Ofnhiti skal vera
175—180 gráöur og bökunartími 10—
12 mínútur.
Kökurnar eru síöan látnar kólna
t.d. á bökunarrist. Suðusúkkulaði er
brotiö niður í teninga og brætt yfir
vægum hita. Hverri smáköku er
síöan stungið hálfri i súkkulaöibráö-
ina. Þeim er síöan raöaö á olíu-
smurðan smjörpappír og þær látnar
vera þar óhreyfðar á meöan súkku-
laöiö storknar. Kókósmjölskökur eru
best geymdar á köldum stað, annars
veröa þær linar.
Það er tilbreyting í þvi að hakka
súkkulaði í smáa bita og blanda því
saman viö deigið. Þá ber aö blanda
lyftidufti ca 1/2 teskeið saman viö
hveitiö áöur en því er blandað saman
við deigiö.
Bökunartími veröur þá styttri en
áöur gat um og ofnhiti skal vera um
190—200 gráöur.
Verðlaunin á
Rangárvelli
Verðlaunahafinn í heimilisbókr
haldinu í þetta sinn er Guöfinna
Antonsdóttir, Norðurbæ á Rangár-
völlum. Guöfinna hefur sent okkur
seðla bæði lengi og dyggilega og var
því kominn tími til að seöillinn henn-
ar yröi dreginn út. Hún velur sér ein-
hvem hlut aö upphæö 2500 krónur.
Þess má til gamans geta aö seðill
Guðfinnu var í þetta sinn sá lægsti
sem viö fengum, meðalupphæð á
mann í mat og hreinlætisvöru á
.heimili hennar var aöeins 360
krónur. Seölar Guöfinnu eru alltaf
f ærðir inn meö seölum f rá Hellu.
DS
Varnaðarorð til mígrensjúklinga:
Varist streitu og
breyttar venjur
„Þaö er mjög algengt að mígren-
sjúklingar fái köst einmitt þegar þeir
síst vilja, kannski viö tækifæri sem
þeir hafa hlakkað til og undirbúið vik-
um saman,” _segir í grein sem okkur
var send af samtökum mígrensjúkl-
inga í tilefni af komandi jólum. Greinin
er þýdd og hefur birst í fréttabréfi
migrensamtakanna.
I greininni kemur fram aö þaö er oft
streitan og allur undirbúningur undir
til dæmis stórhátíðir eins og jólin sem
beinlínis veldur mígrenköstunum.
Tíöir kvenna geta einnig haft veruleg
áhrif. Margar matartegundir, svo sem
ostur og súkkulaöi, geta framkallaö
höfuðverkinn svo og áfengir drykkir.
Mígren er sjúkdómur sem breytir
vídd blóöæða og því fylgir sársauki.
Hægt er aö minnka líkumar á kasti
meö réttri hegöun. Þaö fyrsta er aö
reyna aö skipuleggja alla hluti þannig
aö hægt sé að vínna að þeim jafnt og
rólega en ekki í skorpum. Gott er að
skrifa æfinlega niður þaö sem gera
þarf t.d. fyrir hátíöirnar eöa ferða-
iagið. Strika síöan yfir jafnóðum og
verkiö er unniö.
Ef ómögulegt er að vera rólegur er
fólki ráðlagt aö fá róandi lyf hjá lækni.
Kvöldiö áöur en fariö er í ferðalag eöa
áöur en aðal jólaundirbúningurinn er
framkvæmdur er gott aö taka tvær
asperíntöflur í vatni fyrir svefninn.
Sama gildir um morguninn eftir. Ef
ekkert dugar og höfuöverkurinn lætur
samt á sér kræla er um aö gera aö taka
ly fin strax, ekki aö bíða meö þaö.
Mikilvægasta atriðið er samt aö
reyna að gjörbylta ekki öllum venjum.
Vaka ekki margar nætur fram eftir,
láta streituna ekki ná tökum á sér og
bragða ekki áfengi.
DS
Skíðakennari ekki sammála neytendasíðunni:
Barnaskíði eiga að
vera sem styst
I blaöinu á miövikudaginn var birtist
löng grein um skíöabúnaö. Þar voru
meðal annars nokkrir punktar um val
á skíðum. Var í þeim stuöst viö grein í
norska neytendablaðinu. Þorgeir
Daníel Hjatlason skíöakennari haföi
samband viö blaðið og var ekki sam-
mála öllu sem þama kom fram.
Það sem honum fannst verst var aö
fólki var ráölagt aö kaupa sér fremur
löng skíði, allt að 25 sentimetrum
lengri en maöurinn er sjálfur þegar
um karlmenn var að ræða. Þorgeir
sagöi aö löng skíöi væru aö vísu mjög
góö fyrir þjálfaða menn. En megin-
þorri skiðamanna heföi ekkert aö gera
viö svona löng skíði. Best væri aö
skíðin væru ekki miklu lengri en skíöa-
maöurinn sjálfur. Hvaö böm varðaði
væri best aö skíðin væra sem styst til
aö byrja með. Hætt er viö að foreldrar
velji of löng skíði fyrir börn sín. Oft er
það gert með því hugarfari að ekki
þurfi aö kaupa aftur næsta ár. Þetta
veldur því aö börnin geta ekki athafn-
að sig sem skyldi og verða fljótt leið og
þreytt. Þetta getur leitt til þess að
bömin verða andsnúin því aö fara á
skíði. Best er aö láta bömin byrja á
sem stystum skíðum þannig aö þau
geti gengið, snúiö sér, rennt sér dottiö
og yfirleitt gert allt án óþæginda.
Eftirfarandi gæti átt við:
Fyrir almennan skíöamann, karl-
mann 0—15 sentimetrum lengri en
hann. Kvenmann —5 til +5, í sumum
tilfellum +10. Börn 3—6 ára —30 til 0.
Böm 6—12 ára 0—5 sentimetrar. Þó
ber að gæta þess aö erfitt er aö ákveöa
ákveðnar lengdir fyrir skiöafólk al-
mennt því þörfin er mjög mismunandi.
Til dæmis fer þetta einnig eftir þyngd,
hæö, getu og kyni barnanna. Avallt
skal leita ráöa fagmanna við val á
skíöum. Best er að börnin séu meö ef
verið er aö kaupa skíöi handa þeim.
Mismunandi spenna
Varöandi spennuna þá er hún mjög
mismunandi eftir gerðum. Erfitt er að
setja einhver nákvæm mörk um þaö
hver hún á aö vera. Mjúk skíöi láta
betur aö stjórn en stíf og henta því bet-
ur byrjendum og hinum almenna
skíöamanni. I blaöinu var fólki sagt að
þegar hægt væri aö spenna skíðin sam-
an með því aö beita ýtmstu kröftum
væru þau líklega passlega stíf. Þetta er
alrangt. Einmitt á aö vera mjög auð-
velt aö þrýsta skíðunum saman meö
litlu átaki. Ekki er þó gott aö velja
skíði með þessari aöferð. Ennfremur
segir aö spennan þurfi aö vera jöfn alla
leiö. Spennan í skíöum er mjög mis-
munandi eftir geröum, hvort sem um
er að ræöa heildarspennu eöa spennu í
fram- eöa afturhluta. Því er kannski
ekki nauðsynlegt aö fjalla um þaö hér.
Aö f jalla um keppnisskíöi í grein sem
þessari er yfirgripsmeira en svo að
rúmist fyrir í nokkmm línum, aö sögn
Þorgeirs, og væri betur látið ógert.
Keppnisskíði em þaö mismunandi upp-
byggö eftir tegundum, bæöi hvaö varö-
arstifleika og innri gerö.
Þorgeir sagði það alls ekki nauösyn-
legt aö taka bindingamar af skíöunum
til aö hreinsa þær og smyrja. Þó er
hægt aö renna hælnum af. Best er aö
láta vana menn yfirfara skíöi og
bindingar reglulega. Góöar skíöa-
verslanir veita þessa þjónustu. Gott er
aö láta jafna kanta og botn vegna
ójafns slits á þeim. Þetta þarf fag-
maður einnig aö gera. Ef sóUnn hefur
oröiö fyrir miklu hnjaski er nauðsyn-
legt aö láta laga hann.
Skómir eru helsta öryggistæki skíöa-
mannsins. Val á þeim ber því sérstak-
lega aö vanda. Ekki er gott aö venja
sig á þaö aö ganga alltaf í skíöaskón-
um. Þó er allt í lagi að ganga í snjó á
þeim.
Ekki er hægt aö miöa norskan eða
austurrískan staöal hvað varöar lengd
skíða viö íslenskaraöstæður. Aöstæöur
erlendis til skíðaiökana eru mun full-
komnari. Skíöamenn eru einnig betri
og þar af leiöandi er meðallengd skíö-
anna meiri en þekkist hér.
DS
Geföu
tonlistiir-
ájöf
MTABLÁSTURSOFNAR
CA
LL.
með hitastiUi og frostvörn
2 kw fristandandi eða á vegg.
ASTRA SÍÐUMÚLA 32.
Sími 86544.
Thomas
Með gætni
skal um götur aka
y
UMFERÐAR
RÁÐ
TEPPAHÖLLIIM
ÁRMÚLA 22.
SÍiyil 32501.
Ódýr
Berber•
ullarteppi.
Verð frá kl. 280,00.
Litið inn.
Einhell
vandaöar vömr
VERULEIKI
Sigurðar Kar/ssonar.
H/jómp/ata sem vekur
mik/a athyg/i.
Kærkomin gjöf.