Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1982, Side 19

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1982, Side 19
DV. MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER1982. 19 Kolbrún Björgólfsdóttir með einn gripanna sem hún hefur unnið úr íslenskum Daialeir. DV-mynd GVA. Dalaleir til sýnis Skrautvörur úr Dalaleir eftir Kolbrúnu Björgólfsdóttur leirkera- smið eru nú til sýnis í Gallerí Lang- brók. Er hér um að ræða um þrjátíu skálar og vasa sem að líkindum verða einu skrautmunirnir sem unnir verða úr Dalaleirnum, enda þykir hann ekki henta veltil þessara nota. Að sögn Kolbrúnar Björgólfsdóttur, sem unniö hefur að rannsóknum á leirnum fyrir áhugamannafélagið Dalaleir í Búöardal, hafa rannsóknirnar komiö mjög vel út til framleiðslu á flísum og múrsteinum. Rannsóknirnar voru unnar í samvinnu við Rannsóknastofnun byggingar- iðnaðarins. Búið er að leita eftir tilboðum í vélar til framleiöslunnar og mun verk- smiðjan fá um 300 fermetra húsnæði í iöngörðum sem verið er að byggja í Búöardal. Sagðist Kolbrún reikna meö aö hlutafélag yröi stofnaö um fram- leiðsluna þegar tilboö í vélamar lægi fyrir í þessum mánuði en framleiösla myndi þá geta hafist meö vorinu. -ÓEF. r Lögfræðingafélag Islands: Fræðaf undur um endur- skoðun stjórnarskrárinnar Gunnar Thoroddsen verður frummælandi Lögfræðingafélag Islands heldur fræðafund fimmtudaginn 9. desember nk. kl. 17.00 að Borgartúni 6 í Reykja- vík. Fundarefni er: Endurskoðun stjórnarskrárinnar. Frummælandi á fundinum verður dr. Gunnar Thorodd- sen forsætisráðherra, formaður stjómarskrárnefndar. Að loknu framsöguerindi verða frjálsar umræður og gefst þá fundar- mönnum kostur á að beina fyrir- spurnum til frummælanda. Fundurinn er opinn almenningi. -JBH. Stjóra Hússtjóraarkennarafélags Islands. Frá vinstri: Anna Sigurðardóttir gjaid- keri, Gerður H. Jóhannsdóttir formaður, Sigriður Haraldsdóttir varafonnaður, Asdís Magnúsdóttir meðstjóraandi og Elísabet S. Magnúsdóttir ritari. A myndina vantar Guðnýju Jóhannsdóttur deildarstjóra og Hönnu Kjeld meðstjóraanda. HÚSSTJÓRNARKENNARAR SAMEINAST í Ein FÉLAG Hússtjórnarkennarafélag Islands var stofnaö fyrir nokkm. Jafnframt hafa verið lögð niður Félag hús- stjórnarkennara í grunnskólum og Kennarafélagið Hússtjórn. Hússtjórnarkennarafélaginu er ætlað að vera öflugt fagfélag fyrir alla hússtjómarkennara á landinu, sem eru á þriðja hundrað talsins. Markmið félagsins eru meðal annars að gæta hagsmuna félaga sinnarstuöla að auk- inni menntun þeirra, efla fræðslu um heimilishald og taka þátt í norrænu samstarfi um hússtjórnarfræðslu. I fréttatilkynningu frá félaginu segir að fyrirsjáanlegur sé mikill kennaraskortur í hússtjórnargreinum á næsta ári. Eftirspurn eftir kennslu hafi aukist gífurlega, sérstaklega í framhaldsskólum. -KMU. Útgáfu námsgagna fyrir þroskahefta ábótavant „Utgáfa námsgagna fyrir nemendur með sérþarfir hefur verið homreka frá upphafi í íslensku skólakerfi og er enn,” stendur í fréttabréfi frá Náms- gagnastofnun ríkisins. Ottast stjórnin að réttur umræddra nemenda muni enn verða fyrir borð borinn verði fjár- lagafrumvarpið 1983 óbreytt að lögum og sá niðurskurður sem þar kemur fram á fjárlagatillögum Námsgagna- stofnunar að veraleika. Stjórn Landssamtakanna Þroska- hjálpar leggur áherslu á að hafist verði handa um útgáfu á námsgögnum fyrir nemendur meö sérþarfir. Ennfremur tekur Þroskahjálp eindregið undir þá kröfu að Námsgagnastofnun ríkisins verði gert kleift að sinna því hlutverki semhennierætlað. ' -RR 35% AFSLATTUR Þessir pottar eru framleiddir úr 18/10 gæöastáli meö ofnföstum höldum og sérstökum hitaleiðnibotni sem gerður er úr þremur málmlögum. Viö gæðamat hjá framleiðanda voru þessir pottar settir í 2. verðflokk vegna smávægilegra galla. Sendum i póstkröfu Búsáhöld og gjafavörur Glœsibœ, Álfheimum 74 Sími 86440

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.