Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1982, Side 34
38
DV. MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER1982.
í gærkvöldi
í gærkvöldi
Karlakór
Akureyrar
Karlakór Akureyrar færir upp sina 11. Luciu-
hátíö í Akureyrarkirkju þann 10. desember kl.
20.00 ogll.desemberkl. 18.00.
Aö þessu sinni er venju fremur vandað til
hátíðarinnar, m.a. aðstoða konur úr kirkju-
kór Logmannshlíðar og „Hörpu”, kvenfélagi
Karlakórsins ásamt ungum stúlkum úr
Menntaskóla Akureyrar.
Einsöngvarar aö þessu sinni eru þau: Helga
Alfreðsdóttir sópransöngkona og Oskar Pét-
ursson tenórsöngvari. I sönghléi syngur
þekkt sópransöngkona úr Hafnarfirði, Inga
María Eyjólfsdóttir verk eftir Schubert,
I i idel, Strgdella og Adolphe Adam. Einnig
svne,,r hún hlutverk „Glódísar” í raddsetn-
ingu Willian Rees með texta Konráös
Vilhjálmssonar.
Söngstjóri er Guðmundur Jóhannsson og
undirleik annast Ingimar Eydal.
Þessi siður er upprunninn í Svíþjóð og er
fyrst tekinn upp af Karlakór Akureyrar 15.
des. 1946 með samsöng í Nýja bíói að áeggjan
Jónasar Jónssonar frá Brekknakoti og sænsks
söngkennara, sem hér starfaði, Myrgárd að
nafni.
Hefur kórinn fært upp þessa samsöngva alls
10 sinnum og nú hin síöari ár hefur þetta verið
árlegur viðburður.
Ef færi og veður leyfa verður einhig sungið
á sunnudag 12. des. í Skjólbrekku kl. 13.00 og í
Húsavíkurkirkju kl. 17.00.
Væntir kórinn þess að sem flestir sjái sér
fært að sækja þessa samsöngva og býður
hlustendur velkomna.
Kynningarfundur
hjá félaginu
Samhygð
Fundurinn verður haldinn í kvöld, 8. desem-
ber, klukkan 20.30 að Armúla 36 (gengið inn
fráSelmúla).
Félagsfundur
kvennadeildar
Flugbjörgunar-
sveitarinnar
Félagsfundur verður haldinn miövikudags-
kvöld, 8. desember, klukkan 20.30. Muniö jóla-
pakkana.
Eplakökur verða
að myndbandstæki
Laugardaginn 4. nóvember komu konur úr
Kvenfélagasambandi Kópavogs færandi
hendi í Sunnuhlíð, hjúkrunarheimili aldraðra
í Kópavogi.
Eins og hjá öðrum kvenfélögum á landinu
var haldin vinnuvaka helgina 22. dg 23. októ-
ber sl. Konumar bökuðu, saumuðu og unnu
ýmiss konar muni, sem síöan voru seldir.
Ennfremur var selt kaffi og meðlæti allan
timann. Fyrir afrakstur vinnuvökunnar
keyptu þær og gáfu svo heimilinu 1. stk.
myndbandstæki og 1 stk. myndsegulbands-
spólu, 1 stk. rafmagns-kjötskurðarhníf, 15
litla og stóra jóladúka, 15 handavinnutöskur
og matvæli aö andviröi ca kr. 1500,- sem þær
svo afhentu í kaffisamsæti sem SUnnuhiiö
bauðtU.
I Kvenfélagasambandi Kópavogs eru þrjú
kvenfélög, þ.e. Kvenfélag Kópavogs, Sjálf-
stæðiskvennafélagið Edda og Freyja, félag
framsóknarkvenna.
Vistfólk Sunnuhliðar nýtur þess nú að stytta
sér stundir við að horfa á sjónvarpið á þeim
tíma sem ekkert annað er um að vera.
Á morgnana situr vistfólk í Sunnuhliö vi6
handavinnu í setustofu heimilisins og hlustar á
útvarp eða hljóðbók. I hádeginu á fimmtudög-
um koma prestar staðarins og ræða við vist-
fólk og hafa með þeim og starfsfólki heimilis-
ins helgistund. Að afloknu siðdegiskaffi er aft-
ur farið í setustofu og er þar sungið, kveðið og
lesið, hlustað á lifandi tónlist og hafa þar
aldnir orðið til skiptis.
Hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð vill hér með
koma á framfæri þakklæti til þeirra fjöl-
mörgu sem stutt hafa byggingu heimilisins og
sýnt vistmönnum hlýju í verki.
ISLAND
Almanak
1983
ICELAND
Calendar
1983
Snerra sf. í
Mosfellssveit hefur
gefið út
dagatal fyrir áriö 1983.
Dagatal þetta er prýtt 12 völdum landslags-
myndum úr öllum landshlutum, ein fyrir
hvcrn mánuö.
Prentun fór fram í Odda hf. og litgreining
hjá Myndamótum. Benda má á aö dagatalið
er tilvalin gjöf til vina erlendis.
Guðrún Þorkelsdóttir lést 28.
nóvember. Hun var fædd aö Valda-
stööuin í Kjós þann 11. ágúst 1911,
dóttir hjónanna Halldóru Halldors-
dóttur og Þorkels Guömundssonar.
Guörún giftist Jóni Þórarinssyni skip-
stjóra og útgeröarmanni en hann lést
áriö 1967. Þau eignuöust 6 börn. Utför
Guörúnar verður gerö frá Dómkirkj-
unni í dag kl. 15.
Agnes Asta Guömundsdóttir er látin.
Hún var fædd 26. október 1933.
Foreldrar hennar voru hjónin Jenný
Júlíusdóttir og Guömundur Eiríksson.
Agnes giftist Heröi Sumarliöasyni,
eignuðust þau 3 dætur. Þau slitu sam-
vistum. Seinustu árin starfaöi Agnes
hjá Islenskum markaöi á Kefiavíkur-
flugvelli, sem vaktstjóri. Utför hennar
verður gerö frá Utskálakirkju í dag kl.
14.
Guðlaug Katrín Kristjánsdóttir lést aö
Sunnuhlíö hjúkrunarheimili aldraðra,
Kópavogi, þann 5. des. sl.
Björk Jakobsdóttir lést í Landakots-
spítala 5. þessa mánaöar.
Ólafur Bæringsson bátsmaöur, Holts-
búð 18 Garðabæ, sem lést af slysförum
í Portúgal laugardaginn 20. nóvember,
veröur jarösunginn frá Garöakirkju
fimmtudaginn 9. desember kl. 13.30.
Kristín Guðmundsdóttir, Sunnuflöt 20
Garöabæ, veröur jarösungin frá Foss-
vogskirkju fimmtudaginn 9. des. kl. 15.
Snjólaug Guöjohnsen veröur
jarösungin frá Dómkirkjunni í Reykja-
vík fimmtudaginn 9. des. kl. 13.30.
Skagfirska
söngsveitin
heldur jólatónleika í Bústaðakirkju fimmtu-
daginn 9.12. '82, kl. 20.30.
Á efnisskrá eru meðal annars lög eftir Arna
Björnsson, Eyþór Stefánsson, Sigfús Hall-
dórsson, Sigvalda Kaldalóns ug Þórarin
Jónsson. Af erlendum höfundum má nefna
Mozart, Hándel og Bach.
Að þessu sinni koma fram með kórnum fjór-
ir einsöngvarar, þau Halla Jónasdóttir,
Snorri Þórðarson, Steinn Erlingsson og Sverr-
ir Guðmundsson. Söngstjóri er Snæbjörg Snæ-
bjarnardóttir og undirleikari Ámi Arinbjam-
arson.
I tilefni árs aldraðra er sá aldurshópur sér-
staklega velkominn. Kórinn hefur í hyggju að
syngja á elliheimilum og sjúkrahúsum á
næstu dögum. Kórfélagar eru 75 talsins og
starfsemi kórsins í miklum blóma.
Aðgangur að tónleikunum er ókeypis.
Annaö tölublaö Víðförla, málgagns
kirkjunnar, erkomið út.
Meðal efnis í blaöinu að þessu sinni
er grein eftir Þorvald Garðar
Kristjánsson alþingismann, sem ber
yfirskriftina: ,,Má granda lífi?”. Sagt
er frá nýafstöðnu kirkjuþingi og þeim
málum er þar bar hæst svo og öldrun-
arstarfi kirkjunnar. Sr. Valgeir Ást-
ráösson fjallar um aðstööuleysi safn-
aöa í Breiðholti og dr. Sigurbjöm Ein-
arsson ritar grein um bænalif einstakl-
ingsins. Þá má nefna bamaefni og
margvislegar fréttir af því mikla starfi
sem unnið er innan kirkjunnar.
Leiðara ritar hr. Pétur Sigurgeirs-
son biskup.
Víöförli kemur út mánaðarlega fyrst
Kvennatímaritið
Vera er komið
út öðru sinni
Núna beinir Vera athyglinni aö ofbeldi sem
konur á öllum aldri eru beittar. í því sam-
bandi er rætt viö unglingsstúlkur í Reykjavík
um þann oröróm að stelpum sé vart óhætt aö
kvöldi til á höfuöborgarsvæðinu vegna áreitni
karlmanna. Ymislegt annaö er skoöaö í sam-
bandi viö ofbeldi sem of langt mál yröi aö
telja en þó má einnig vekja sérstaka athygli á
grein um þá afstööu og þau viðhorf sem koma
fram í landslögum um líkamsárásir og nauög-
anir.
Margt annað efni er í Veru, t.d. smásaga,
þáttur úr Kvennasögusafni, leikdómar og
borgarmálin. 1 allt er blaðið einar 40 síöur.
Það kostar í lausasölu kr. 40,00 en 35 kr. í
áskrift. Askriftarsíminn er 21500 á milli 15 og
18. Utgefandi Veru er Kvennaframboöiö i
Reykjavík en Hólar prenta.
Fataúthlutun
Hjálpræðishersins
Fatnaði verður úthlutað í sal Hjálpræðishers-
ins frá klukkan 10—16 á morgun, fimmtudag.
Karlakórinn Hreimur
sendir nú frá sér sína fyrstu hljómplötu.
Kórinn er eini starfandi karlakórinn í ÞingJ«
eyjarsýslum, og eru söngmenn úr Aðaldal,
Reykjahverfi, Kinn, og frá Húsavík.
Söngstjóri kórsins er nú Guömundur
Norðdahl.
Allt frá því aö kórinn var stofnaður áriö 1975
hefur hann lagt áherslu á aö flytja lög eftir
þingeyska höfunda, og hefur veriö lögö tals-
verö vinna í aö safna þeirri tónlist.
Arangur þessa starfs kemur nú í ljós á þess-
ari plötu, því aö á annarri plötusíöunni eru
eingöngu lög eftir þingeyska höfunda.
Platan veröur til sölu í Fálkanum og Hljóö-
færahúsi Reykjavíkur og hjá KEA og Tóna-
búöinni á Akureyri, auk nokkurra annarra
staöa úti um land og svo hjá kórmönnum
sjálfum.
Á myndinni eru Þóra Kristjánsdóttir listráöunautur, Alfreö Guðmundsson forstööumaður,
frú Sigríöur G. Benjamin og Einar Hákonarson formaöur stjórnar Kjarvalsstaöa.
Málverkagjöf til
Kjarvalsstaða
Frú Sigríður G. Benjamin hefur gefið Kjar-
valsstöðum málverk eftir Jóhannes S. Kjar-
val til minningar um föður sinn Harald Guð-
berg. Hann var fæddur í Danmörku 1882, flutt-
ist til Islands 1916 og stofnsetti hér fyrsta reið-
hjólaverkstæði landsins, Fálkann, og síðar
örninn.
Málverkið er af Vífilsfelli, 105X150 sm,
málað 1936. Frá 1957 hefur málverkið hangiö
á heimili Sigríðar G. Benjamin í London.
um sinn. Þeir sem hafa áhuga á aö ger-
ast áskrifendur aö blaðinu eru hvattir
til aö hafa samband við Utgáfuna Skál-
holt.ísúna 21386.
Jólafundur Kvenfélags
Kópavogs
veröur haldinn fimmtudaginn 9. des. kl. 20.30 i
félagsheimilinu.
Stjórnin.
Jóladagatalshappdrætti
Kiwanisklúbbsins Heklu
Vinningarkomuáeftirtalinnúmer: .
nr.
1. des. 653,
2. des.1284,
3. des. 2480,
4. des. 680,
5. des. 2008,
6. des. 817,
7. des.1379,
8. des.2665,
9. des. 438,
10. des. 2920,
11. des. 597.
Jóladagatalshappdrætti SUF
— vinningsnúmer:
1. des. 9731,
2. des. 7795,
3. des. 7585,
4. des. 8446,
5. des. 299,
6. des. 5013,
7. des. 4717,
8. des. 1229.
Flóamarkaður
Hjálpræðishersins
verður haldinn í sal Hjálpræðishersins í dag
miðvikudag frá klukkan 10—17. tlthlutun á
fatnaöi verður frá klukkan 10—16 á fimmtu-
dag.
Gullfiskabúðin
Fischersundi
Eigendaskipti hafa nú átt sér stað í Gullfiska-
búðinni Fischersundi. Hinir nýju eigendur,
Emma Holm og Halldór Oskarsson, hafa
breytt búðinni í kjörbúð til hagræðingar fyrir
viðskiptavmina. Sömu vörumerki verða
áfram á boðstólum, en það eru t.d. Tetra
fiskafóður og lyf, Bonnie fugla- og naggrísa-
fóður, Spillers hunda- og kattafóður og Armi-
tages kattasandur. Sú nýjung er tekin upp að
nú eru hreinræktaðir kettlingar teknir í um-
boössölu.
Tilkynningar
Andlát
MEÐ MNGEYINGUM
OG RIKISFJÖLMIÐLUM
Þaö átti svo aö heita aö ég fylgdist
meö dagskrá ríkisfjöbniölanna í
gærkvöldi. Slíkt var þó í erfiðara lagi
enda húsið fullt af Þingeyingum,
einkanlega mývetnskri sérútgáfu af
þeim stofni. Bar hún á borö hinn
ágætasta Mývatnssilung item
rauövín úr Frakkaríki, pizzu
íslenska og flatbrauð reykvískt.
Þetta blandaöist alla vega ágætlega í
mér.
; Einhvers staöar þarna inn á milli
tókst sjónvarpinu aö troöa sér annaö
slagið. I fréttunum var þaö merki-
legast aö Rafmagnsveitan slökkti á
Grindvíkingum. Þaö er aldrei aö
þessi ríkisstofnun ætlar aö fara að
láta til sín taka. Ég vona bara aö
noröur í „dalnum kæra” hafi menn
staðið sig sæmilega viö aö greiöa
reikninga sína svo maður þurfi ekki
aö húka í myrkri og kulda um jól.
Annaö myrkraverk kom frá grænu
eyjunni minni, Irlandi. Því miöur
ætlar hryöjuverkum seint að linna
þar. Nú sýndi INLA klærnar, rétt
einu sinni. Fyrir þá sem fjalla um
málefni Irlands skal þess getiö aö
samtökin eru meö öllu óháð IRA.
Þau urðu til út úr stjómmálahreyf-
ingunni Sinn Fein í einni klofningu
þar af mqrgum. Markmið þessara
tveggja skæruliöasamtaka er þó hið
sama, aö frelsa Irland undan breskri
stjórn. Landiö verður bara ekki
frelsaö meö byssunni einni.
I forsal vinda heitir breskur
myndaflokkur frá Andesfjöllum.
Náttúrulífsþættir Breta eru í einu
oröi sagt frábærir. En ótrúlega var
margt í þessari mynd íslenskt, lands-
lagiö stundum rétt eins og okkar.
Lífið er lotterí, segja Svíar. Þessi
sænski sakamálaflokkur er óendan-
lega vitlaus en á stundum skrambi
fyndinn. Rússneski túlkurinn átti til
dæmis stórleik í gærkvöldi. Fróölegt
veröur aö sjá hvernig vitleysan
veröur til lykta leidd.
Síöast á dagskrá sjónvarps var
þáttur um heilagan Nikuiás, þann
sem varö aö jólasveini. Sjónvarpiö
ætti aö gera meira af slikum fræöslu-
þáttum, af nógu er aö taka. Og þá vil
ég frekar sjá góöa þætti aftur og
aftur en lélega einu sinni. Er ekki
alveg óþarfi aö nefna Félagsheim-
iliö, lágkúmna sem tókst aö komast
niöur fyrir ,,Snorra”, sem var þó
nóguslæmur?
Fyrirgeföu, elskulega gamla gufu-
radíó, þú varöst útundan! Aö Boris
Christof og bókmenntaþætti undan-
skildum var heldur ekki mikið um aö
vera. Fréttir vpm aö vanda hinar
ágætustu. Bestu tíöindin þar vora
þau aö norskir ríkisstarfsmenn hafa
vitkast. Norskum jólum er greini-
lega bjargaö og kaþólskir þar í landi
geta glaðir þambaö blóö Krists
óm'ælt.
Eg heyrði síöustu mínúturnar af
lýsingu Samma á hvemig Júggamir
börðu á vesturbæingum. Oj bara!
Jón Baldvin Halldórsson.