Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1982, Qupperneq 36

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1982, Qupperneq 36
40 DV. MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER1982. Nýjar bækur Nýjar bækur Nýjar bækur Borgfirzk blanda 6. Nýlega er komiö út hjá Hörpuútgáf- unni á Akranesi 6. bindið í safnritinu Borgfirzk blanda. Eins og í fyrri bók- unum er efniö blanda af þjóðlífsþátt- um, persónuþáttum og gamanmálum. Meðal þess má nefna þættina: Þegar „Jónamir” versluðu í Borgamesi — Sjómannskona á Akranesi — Þar mun- aði mjóu — Hrakningar á Kaldadal — Eitt ár í Borgarfirði — Sendur í sveit — Rjómabúiö við Geirsá — Flóðið mikla í Hvítá 1918 — Upphaf sund- kennslu í Borgarfirði — Minningaþætt- ir frá Melum og Innra-Hólmi — Konan sem starfrækti fyrsta „sjúkrahúsið” á Akranesi — Frásagnir af Vigfúsi sterka á Grund — Reimleikar í Reyk- holti — Ekki verður feigum forðaö — Skyggnst í gamlar skræður. Bragi Þórðarson bókaútgefandi á Akranesi hefur safnaö efninu í þessa bók, eins og hinarfyrri. Borgfirzk blanda 6 er 252 bls. í stóru broti. Fjöldi mynda er í bókinni. Hún er prentuð og bundin í Prentverki Akraness hf. Heitur snjór eftir Viktor Arnar Ingólfsson Bókaútgáfan öm og örlygur hf. hefur sent frá sér skáldsöguna Heitur snjór eftir Viktor Amar Ingólfsson og er það önnur skáldsaga höfundarins. Saga Viktors Amars er samtímasaga og gerist aö mestu í Reykjavík, þótt sögusviðið sé reyndar einnig í útlönd- um. I bókinni fæst Viktor Arnar viö mál sem segja má að brenni heitt á mörgum um þessar mundir — eitur- lyfjavandamálið, en heitur snjór er einmitt það fíkniefni kallað sem nú stendur mest ógn af, þ.e. heróínið. Saga Viktors Arnars fjallar um ósköp venjuleg ungmenni í Reykjavík nútímans — ungmenni frá venjulegum heimilum sem búa einnig við aðstæöur sem em síst verri en gengur og gerist. Hún fjallar einnig um mennina á bak við tjöldin sem telja aö tilgangurinn helgi meðalið þegar þeir afla sér auös og hika ekki við aö stíga yfir hvern sem erá leiðsinni. Heitur snjór er sett, umbrotin, filmu- unnin og prentuð í Prentstofu G, Bene- diktssonar en bundin hjá Arnarfelli hf. Kápuhönnun önnuöust Karl Oskarsson og Fanney Valga rösd óttir. Sól ég sá — sjálfsævisaga Steindórs Steindórssonar frá Hlöðum Bókaútgáfan öm og örlygur hf. hef- ur gefiö út bókina Sól ég sá og er hún fyrra bindi sjálfsævisögu Steindórs Steindórssonar, náttúmvísindamanns og fy rrverandi skólameistara f rá Hlöð- um. I bókinni segir Steindór Steindórsson frá uppvexti sínum, námsárum og skólastarfi. Er höfundinum fylgt frá smalaslóðum hans og fjárgötum heima á Hlöðum og þaðan á skólabekk bæði í Gagnfræðaskólanum á Akur- eyri, Menntaskólanum í Reykjavík og í háskólanum í Kaupmannahöfn þar sem Steindór opnar lesendum sýn til skemmtilegs, fjölbreytts og ævintýra- ríks stúdentalífs. Síðan liggur leiöinn aftur heim og í Menntaskólann á Akureyri þar sem Steindór kenndi fræði sín í meira en 40 ár og stjómaði þessum fjölmenna skóla síðustu árin. Eins og gefur aö skiljaerfrámörgu eftirminnilegu að segja og Steindór Steindórsson leysir frá skjóöunni tæpitungulaust eins og búast mátti við af honum. Segir hann frá ýmsu í skólastarfinu — bæði skemmtilegum atvikum og eins þeim sem erfið vom úrlausnar og kostuðu stundumdeilur. Bókin Sól ég sá er sett, umbrotin, filmuunnin, prentuð og bundin hjá Prentsmiðjunni Eddu hf. Kápu hann- aðiEmst Bachmann. í afahúsi eftir Guðrúnu Helgadóttur Iðunn hefur gefið út á ný barnasög- una í afahúsi eftir Guðrúnu Helgadótt- ur. Teikningar í bókina eru eftir Mikael V. Karlsson. Saga þessi kom fyrst út 1975 og hefur verið ófáanleg um skeið. Hún segir frá Tótu litlu sem er ráðsnjöll stelpa og áræðin. Pabbi hennar er skáld og slíkt starf lítur um- hverfið hornauga. Tóta getur þó hjálpað pabba sínum að vinna sér viðurkenningu sem um munar. — Barnasögur Guðrúnar hafa notiö mikilla vinsælda og verið þýddar á all- mörg tungumál. Kunnastar eru sögumar um Jón Odd og Jón Bjarna sem nú hafa verið kvikmyndaðar. I fyrra kom svo ævintýrið Ástarsaga úr fjöllunum sem að undanfömu hefur verið, með myndum Brians Pilking- tons, gefið út á Norðurlöndum, síðast færeysku. — I afahúsi er 95 blaðsíður. Guðrún Helgadóttir í afahúsi Leiksoppur fortíðarinnar eftir Snjólaugu Braga- dóttur f rá Skáldalæk Bókaútgáfan Örn og örlygur hf. hef- ur sent frá sér skáldsöguna Leiksopp- ur fortíðarinnar eftir Snjólaugu Braga- dóttur frá Skáldalæk og er þaö níunda skáldsaga höfundarins. I sögu þessari flytur Snjólaug sögusvið sitt út fyrir landsteinana og gerist sagan að mestu i Skotlandi. Islensk stúlka, Katrín Jónsdóttir, er þó aðalsöguhetjan en hún er háskólanemi í Edinborg. Hún ferðast sumarlangt um Skotland og sinnir starfi sínu og áhugamáli og þá fer ýmislegt að koma í ljós sem vekur spumingar og rifjar upp harmleik frá stríðsbyrjun. I kynningu forlagsins á bókarkápu segir m.a.: ,,Hver sem hún er og hvað sem hún heitir, kemur hún dag einn til Culverd- en House og vekur upp draug haturs og afbrýöi liöinna tíma. Slíkir draugar dafna vel í nútímanum líka og þegar Katrín flýr ættarsetrið eftir að hafa horfst í augu við réttan uppmna sinn, veröur hjarta hennar eftir. ” Bókin Leiksoppur fortíðarinnar er sett, umbrotin, filmuunnin og prentuðí Prentstofu G. Benediktssonar og bund- in hjá Amarfelli hf. Kápuhönnun er eftirKristján Steingrím Jónsson. Þrælaströndin eftir TorkBd Hartsen Þrælaströndin er önnur bókin í bóka- flokki Torkild Hansen um þrælahald og þrælasölu og sú síðasta er kemur væntanlega út á næsta ári ber nafnið Þrælaeyjan. Þessi bókaflokkur hefur vakið mikla athygli og hlaut höfundurinn Bók- menntaverðlaun Noröurlandaráðs fyrir þessar bækur 1971. Torkild Hansen hefur hlotiö einróma lof fyrir bækur sínar, m.a. hlotiö hinn gullna Iárviöarsveig danskra bókaútgefenda og þriggja ára ríkisstarfslaun fyrir vinnu að sögulegum bókmenntaverk- um. Þrælaströndin er vel skrifuð bók og fjallar um merkilegan tíma í sögu þessa heims. Miskunnarleysi hvíta mannsins gegn hinum dökka kynstofni Afríku hefur aldrei verið jafn yfir- gengilegt og á þessum tíma. Utgefandi er Ægisútgáfan. Ómagar og utangarðsfólk Fátækramál Reykjavíkur 1786-1907 eftir Gísla Ágúst Gunnlaugsson XII + 190 bls. og 12 myndasíður, uppdrættir, töflur og skrár. Ritið fjallar um félagsleg vandamál í Reykjavík, málefni hinna fátæku, frá stofnun kaupstaðar árið 1786 til upp- hafs 20. aldar. Höfundur tengir efnið vaxtarsögu Reykjavíkur, sögu atvinnuvega og félagslegra breytinga. Hann birtir fjölmarga kafla úr styrk- beiðnum þurfandi manna og öörum heimildum, sem lýsa vel kjörum hinna fátækustuí Reykjavík.Fátækramálin voru lengi vel umfangsmest og út- gjaldasömust allra mála bæjarfélags- ins. Rit þetta, sem er 5. bindi í ritröðinni Safn til sögu Reykjavíkur, gefur Sögu- félag út í samvinnu við Reykjavíkur- borg. Ætti ég hörpu eftir Friðrik Hanesn Iðunn hefur gefið út Ijóðasafnið Ætti ég hörpu eftir Friðrik Hansen. Hannes Pétursson annaðist útgáfuna og ritar formála um höfundinn og ljóð hans. Hann hefur ennfremur tekið saman skýringaratriði við nokkur ljóöanna. — Friðrik Hansen á Sauðárkróki (1891— 1952) varð víða kunnur fyrir skáld- skap sinn og eru sum kvæði hans raun- ar landfleyg. Ætti ég hörpu hefur að geyma úrval úr ljóðum Friðriks Hansen, liölega fjörutíu ljóð, allt frá æskuárum höfundar til æviloka. Er ljóöunum raðað eftir aldri þeirra „samkvæmt líkum, að nokkru leyti, sumum all- traustum, öðrum lauslegri svo nálgast ágiskun; mun þó hvérgi skeika um ýkja möig ár aftur eða fram,” segir í formála. — Aftast í bókinni eru talin sönglög við ljóö Friðriks, en kunnast þeirra er lagið við ljóð það sem bókin dregur nafn af. — Kápumynd bókar- innar er af málverki eftir Jóhannes Kjarval. Hún er 80 bls., prentuð í Odda. HANSEN HANNES PÉTURSSON MISSKIPT MANNA LÁNI HEIMILDAÞÆTTIR I IÐUNN Misskipt er manna láni eftir Hannes Pétursson Iöunn hefur gefiö út bókina Misskipt er manna láni, fyrsta bindi heimildar- þátta eftir Hannes Pétursson. 1 bókinni eru fimm þættir og f jalla allir um fólk sem bjó í Skagafirði lengur eða skem- ur á síðustu öld og fram á þessa. Tveir varða Bólu-Hjálmar. Segir annar frá Marsibil móður hans og er þar hulunni svipt af æviferli þessarar „förukonu” og „kemur þá nokkuð óvænt í ljós: um skeið var hún í tölu auðugustu kvenna landsins á þeirri tíð!” segir í kynningu forlags á kápubaki. Hinn þátturinn greinir frá síðasta hæli Hjálmars, beit- arhúsunum þar sem hann tók and- vörpin. — Fyrsti þátturinn fjallar um „gleymda konu og geldsauði tvo”, hag- orða konu og harðskeytta sem flæktist inn í brotamál. Þá er sagt frá Pétri Eyjólfssyni, skipara einum sem „sog- aðist inn í róstur Islandssögunnar” í byrjun nítjándu aldar. Loks er svo þáttur af sérkennilegu fólki í Teigakoti í Tungusveit, smábýli sem nú er fallið í eyði. Misskipt er manna láni er prýdd all- mörgum myndum. Bókin er 195 blað- síður. Oddi prentaði. Veröld Busters eftir Bjarne Reuter Hjá MALI OG MENNINGU er komin út ný bók fyrir böm og unglinga sem nefnist Veröld Busters og er hún eftir danska barnabókahöfundinn Bjame Reuter. Olafur Haukur Simonarson þýddi bókina, en hann hefur nú nýlokið við að lesa í morgunstund barnanna þýðingu sína á síðari sögunni sem Mál og menning lét þýða um Buster og nefnist hún Kysstu stjömurnar og mun koma út á næsta ári hjá forlaginu. Veröld Busters er fyrsta bókin um drenginn Buster Oregon Mortensen, sem er töframaður og holræsajóölari og kominn af fjöllistamönnum í beinan karllegg. Pabbi hans er atvinnulaus sjónhverfingamaður og afi hans var fallbyssukóngur. Sjálfur kann Buster eitt og annaö fyrir sér. Veröld Busters er 135 bls. að stærð, prentuð í Prentrúnu hf. og bundin í Bókfelli hf. Mette Svarre gerði kápu- teikninguna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.