Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1982, Side 38
42
Ca
Sviðsljósið
DV. MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER1982.
Sviðsljósið
Ungfrú Noregur í ýmsum gervum
Treystir þú þér til aö líta út eins og Liza
Minelli, Viktoría fyrrum drottning
Englands eöa myndarleg dama frá
barokktímanum? Hugsanlega ekki. En
feguröardrottning Norðmanna, Thilde, fór
þó létt meö þetta á dögunum. Aö vísu meö
örlítilli hjálp annarra, en hvaö er það á milli
vina.
Thilde hefur eins og allar aðrar fegurðar-
drottningar útlitiö meö sér. Þykir hafa
hraustlegt og gott útlit og vera andlitsfríð.
En hún hefur mikinn áhuga á aö læra föröun
viö eitthvert norsku leikhúsanna. Þaö kvaö
þó vera svo um fleiri og því er erfitt aö
komast aö.
Nýlega var hún þó í læri hjá Hanne Revold
förðunarmeistara norska ríkisleikhússins.
Og Thilde var í meira lagi föröuö. Reyndar
var hún óþekkjanleg. Og þaö var þennan
dag sem hún brá sér í gervi frú Minelli,
Viktóríu og barokk-dömunnar.
Og auðvitaö var Thilde ánægö meö árang-
urinn en þó enn ánægöari meö aö geta skolað
af sér fimmtíu árum á nokkrum mínútum.
Láir hénni þaö nokkur?
Glæsilega Barokk-stúlkan hún Thilde. Einhver
myndi segja barmfagur barokk.
i förðunarherbergi norska rikisleikhússins með Hanne Revold förðunarmeistara. Já, segið þið
að ekki sé hægt að breyta útliti undradrottninga.
Sandi Easton hafði — krafdistþrjátíu
milljóna vegna
samband við Sheenu ***»>*"
Sheena Easton er nú ástfangin
upp fyrir haus af Englendingnum
Don Grierson. En þaö getur kostað
hana skildinginn aö fá skilnaö frá
eiginmanni sínum.
Fyrir fjórum árum giftist Sheena
söngvaranum og lagasmiðnum
Sandi Easton. En sambúðin varé
heldur snubbótt því aö aðeins átta
mánuðum síðar var sælan á enda og
þau byrjuöuaöbúa hvortísínulagi.
Sandi Easton hefur á undanförnuir.
árum ekki vegnaö eins vel og
Sheenu. Hann er nú atvinnulaus og í
slæmum fjárhagskröggum. Og hanr.
hefur komist aö þeirri niöurstööu af
lausnin á peningamálunum sé af
krefjast peninga frá Sheenu, sem nú
er margmilljónari. Og upphæöin sem
Sandi fer fram á eru jafngildi lítiila
þrjátíu milljóna íslenskra króna.
Sheena býr í Bandaríkjunum og
hefur, aöeins tuttugu og þriggja ára,
verið meö lag í efsta sæti í nítján
Þessi mynd var tekin af Sheenu í samkvæmi þar sem hún hitti þau Andy Gibb
og Viktoríu nokkra Principal. Viö sjáum þau Sheenu og Andy á myndinni.
Sheena er nú með Englendingnum Don Grierson, en hann vinnur reyndar hjá
„kellu” sinni.
ccco
Sheena söng lagiö „For Your Eyes Only” úr samnefndri kvikmynd um
James Bond. Hér er hún með hinum kunna 007, eða Roger Moore öðru nafni.
löndum. Og henni hefur vegnaö sér-
lega vel í Bandarikjunum þrátt fyrir
aö enskum hljómlistarmönnum hafi
alltaf reynst mjög erfitt aö slá í gegn
þar.
Nýi kærastinn, Don Grierson, er
þrítugur. Ku vera myndarlegur
maður og vinnuveitandi hans er eng-
in önnur en einmitt Sheena Easton.
„Don og ég höfum þaö mjög gott og
okkur líöur vel saman,” segir
Sheena og bætir viö: „En viö höfum
ekki í hyggju aö gifta okkur. Þaö
eina sem ég get sagt er aö ég er
hamingjusamari en nokkru sinni
fyrr. En ég hef brennt mig á hjóna-
bandinu einu sinni og ég vil ekki taka
þá áhættu aftur sem því fýlgir.
Reynslan af hjónabandinu viö Sandi
er slík aö ég treysti ekki eins auðtrúa
áfólkogáöur.”
Við vonum bara aö Sheena haldi
áfram á toppnum og syngi fyrir okk-
ur fleiri falleg lög.
Thilde sem Viktoria, fyrrum drottn-
ing Englands. „ Var fegin þegar ég
skolaði af mér fimmtiu árum,"
segirhún.
John Denver vísnasöngvarinn
frægi.
John
Denverog
Annie
að skilja
Bandaríski vísnasöngvarinn John
Denver var nýlega á fcrð I London.
Fréttamenn spurðu hann hvort hann
væri að skilja við konuna sína, Annie
en þau hafa verið gift í fimmtán ár.
Spumingin þurfti ckki a ð koma söng-
varanum á óvart því að þau Annie
skildu að borði og sæng í júní síðast-
Uðnum.
John svaraði fréttamnnnunum
opinskátt og sagði að síðustu fjögur
árin heföi sambúðin verið erfið og
þau komist að þeirri niðurstöðu að
best væri að skilja. „Við höfum
fjarlægst hvort annað of mikið á síð-
ustu árum,” sagði John.
En mörgum aðdácndum
söngvarans kann að þykja það grát-
legt að hann standi í skUnaðarmáli
þessa dagana því að kappinn sló
fyrst í gegn með laginu „Annie’s
Song” lagi scm var tileinkað Annie.
Hvað um það, vinsældir John
Denver eru alltaf jafnmiklar.