Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1982, Blaðsíða 9
DV. FÖSTUDAGUR10. DESEMBER1982.
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Útlönd
handa starfsfólkinu.
SASsýnir
þakklætisitt
í verki
Þessa dagana er veriö að útbýta
19.000 armbandsúrum á meöal starfs-
fólks SAS. Gjöfum þessum fylgir jóla-
kveðja frá æðsta yfirmanni SAS í
Stokkhólmi, Jan Carlzon, meö þakk-
læti fyrir vel unnin störf á árinu.
— Þetta á aö vera áþreifanleg
sönnun þess að stjórn félagsins kann
vel aö meta alla þá sem lögðu sitt af
mörkum til að reisa viö hag félagsins
og skapa meiri hagnað en nokkurt
annað flugfélag getur státað af, segir
Jan Carlzon.
Murdoch enn
einu blað-
inu ríkari
Blaöakóngurinn Rupert Murdoch er
nú enn einu blaðinu ríkari eftir að hafa
keypt blaðið Herald America, sem
gefið er út í Boston.
Blaðið var áður í eigu Hearst og átti
að koma út í síöasta sinn sL laugardag.
Kaupin fóru fram á síðustu stundu og
voru prentarar tafarlaust kvaddir á
vettvang til að fjarlægja kveðjubréf
ritstjórnar til lesenda sinna úr blaöinu.
Síðan hófu blaöamenn framleiðslu á
efni í næsta blað en því höföu þeir síst
af öllu búist við.
Blaðakóngurinn Rupert Murdoch
keypti Herald America fyrir 14
milljónir króna.
Thomas
HITABLÁSTURSOFNAR
með hitastilli og frostvörn
2 kw fristandandi eða á vegg.
ASTRA SÍÐUMÚLA 32.
Sími 86544.
Græddi vel á
stúlknaleigu
New York búi, sem auglýsti
stúlknaleigu í símaskrám rúmlega
100 borga í Bandaríkjunum og
Kanada, hefur nú verið handtekinn
og sakaöur um aöild aö vændi.
Sagöi lögreglan í gær aö David
Haskel, 58 ára, hefði verið svo önn-
um kafinn við fyrirtæki sitt, sem sá
rúmlega 400 tómstundahórum fyrir
verkefnum, aö hann gat aldrei um
frjálst höfuð strokið. Enda gaf fyrir-
tæki hans af sér 500.000 dali á ári.
Haskel bjó á háalofti nokkru þar
sem hann hafði 14 síma til að bóka
viöskiptavini á stúlkurnar. Fékk
Haskel upphringingar hvaðanæva að
úr heiminum, meira að segja frá
Ástralíu.
Lögreglan segir Haskel vera einn
af umsvifamestu hórmöngurum
Bandaríkjanna. Sjálfur lifði hann þó
ákaflega hófsömu lífi. Hann lifði
mest á grænmeti og vítamínum, átti
nokkur reiðhjól en engan bíl.
Lögreglan telur að Haskel hafi
rekið fyrirtækið einn. Símareikn-
ingur hans hljóðaöi upp á 15000 dali á
ári og máttu viöskiptavinirnir greiða
fyrir sig með kreditkorti.
Haskel var handtekinn sl. mið-
vikudag eftir að sjónvarpsfrétta-
maður nokkur frá Dallas hafði varið
heilu ári í að rannsaka starfsemi
hans. Var unnt að negla á Haskel
aðild að vændi í Indíanafylki.
Barnamorð og
þrælasala í Kína
Kínverjar eiga enn langt í land
með að útrýma ýmsum grimmileg-
um siöum í landinu eins og þrælasölu
og barnamorðum.
Kínversk yfirvöld játa nú opin-
skátt að kommúnisminn hafi ekki
dugaö til að breyta hugarfari og
hegðun landsmanna. Hafa kínversk
blöð á síöustu mánuðum birt greinar
sem sanna að konur og böm ganga
enn kaupum og sölum sem heimilis-
þrælar í Kína og að óæskileg stúlku-
börn eru borin út ískóg tilaðdeyja.
Ein af þessum greinum birtist í
blaðinu Guangming í siöustu viku.
Er þar komið með ótal dæmi þess að
stúlkubömum og ungum konum sé
rænt til að selja þær sem heimilis-
þræla. Þessi siður var algengur i
gamla Kina en yfirvöld héldu á
tímabih að tekist hefði að útrýma
honum.
Eleanor Rigby
sem bronsstytta
Söngvarinn Tommy Steele afhjúp-
aði nýlega bronsstyttu af Eleanor
Rigby i heimaborg Bítlanna, Liver-
pool. Eleanor Rigby er eitt af þekkt-
ustu lögum Bítlanna og fjallar text-
inn um gamla, einmana konu. Notaði
Tommy Steele tækifærið tii að hylla
sköpunarmenn þessa hugarfósturs,
Styttan stendur skammt frá
Cavem Club, þar sem John Iænnon,
Paul McCartney, George Harrison
og Ringo Starr iögðu hornsteininn að
frægð sinni.
> y A. PRJÓNASTOFAN
Udumu.
/ T4- prjónastofan
Uðuntu.
DÖMUPEYSUR.
PRJÓNAKJÓLAR.
PRJÓNABUXUR.
HERRAPEYSUR.
HERRAVESTI.
PRJÓNAJAKKAR.
BARNAPEYSUR
HEILAR OG HNEPPTAR.
BARNAVESTI.
LEGGHLÍFAR.
Skerjabraut 1, Seltjarnarnesi.
NÆG BÍLASTÆÐI.
. OPIÐ MÁNUDAG - FÖSTUDAG KL. 9-6. LAUGARDAG 11. DESEMBER 10-6.