Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1983, Blaðsíða 1
NEYÐARASTAND
á Reykjavíkursvæðinu
Foreldrar beðnir að leita bama sinna
— Glórulaus blindbylur
— Sími lögreglu rauðglóandi
„Þaö er orðið algjört neyðar-
ástand í borginni. Sér ekki handa
sinna skil og margir bílar stopp. Um-
ferð var orðin talsverð þegar bylur-
inn skall á og það hafa nú þegar orðið
nokkrir árekstrar vegna veðursins,”
sagði varðstjóri hjá lögreglunni í
Reykjavík í morgun við DV vegna
blindbylsins sem þá var skollinn á.
Það var laust eftir klukkan átta í
morgun sem bylurinn skall á. Neyð-
arástandiö í borginni og nágrenni
myndaðist strax vegna þess að bílar
stöðvuðust þar sem ekki sá handa
sinna skil, fennt hafði í allar slóöir,
bílar voru illa búnir og þeir bleyttu
sig. Gangandi fólk átti í erfiðleikum
og sóttist ferðin seint vegna færðar-
innar.
Hjá Strætisvögnum Reykjavíkur
fengust þær upplýsingar í morgun að
allir vagnar væru að stöövast þar
sem mikið af smábílum væri stopp
og lokaöi bæði götum og heilu hverf-
unum. Fjöldi vagna væri því fastur í
bílaþvögum hér og þar um bæinn.
Samkvæmt upplýsingum lögreglu-
manna í Hafnarfirði og Kópavogi var
öll umferð að stöðvast þar og þá
mest vegna vanbúinna bíla. Og á
báðum lögreglustöðvunum var sím-
inn rauðglóandi þar sem fólk hringdi
í örvæntingu vegna bylsins.
Vegaeftirlitið gaf þær upplýsingar
að snjóruðningstæki i Reykjavík og
nágrenni hefðu stöðvast þar sem sæi
ekki út úr augum og umferð um
Hvalfjörð, Hellisheiði, Reykjanes-
braut og í borginni væri stöðvuð þar
sem vegir væru lokaðir.
A Selfossi og allt austur undir
Eyjafjöll var kominn glórulaus
blindbylur og mikið rok.
Þá sneri Herjólfur viö en hann var
á leið til lands. Var geysilegur sjó-
gangur.
Allir skólar voru að byrja aftur
eftir jólafrí en kennsla var strax felld
niður í morgun. Þá kom fram að böm
sem voru á leið í skóla hefðu týnst í
fárviðrinu og voru foreldrar beðnir
um að leita þeirra.
Að sögn veðurstofunnar var vind-
hraðinn í morgun níu vindstig. Veð-
ursins gætti á Faxaflóasvæðinu og
Suðurlandi en búast má við að veðriö
færist norður og austur yfir þegar
líðurá daginn en vindhraði verður þó
hvergi eins mikill og í Reykjavík.
JGH/óbg
B/indbylur skall skyndi/ega á í morg-
un um a//t sunnanvert landið og
urðu allir vegir samstundis ófærir.
Margir bílstjórar urðu að yfirgefa bíla
sina, þar á meðal þessi móðir með
barn sitt, sem Ijósmyndari DV hitti
fyrir i hríðarkófinu í Reykjavik i
morgun.
DV-mynd GVA
Reykjavíkerekki
villta vestrið
—- sjá lesendur bls. 16
Lítil bjartsýni
fyrir árið 1983
sjá erl. grein bls. 10
Liverpool
sjábls. 18-19