Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1983, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1983, Blaðsíða 28
28 DV. ÞRIÐJUDAGUR 4. JANUAR1983. í gærkvöldi í gærkvöldi DEÓ...Hið stóra tækifæri Kattavinafélagsins Fréttir fréttir fréttir.... Hækkaö fiskverö-gengisfelling (til að búa til peninga fyrir hækkuninni) — dauösföll — fjársvik og Reagan tók sér reku í hönd og rak í jörö. Veöurfar — þar komst þaö á hreint að Trausti ræöur ekki veörinu þótt hann gjaman vildi. Tommi og Jenni styttu mönnum stundir um hríð. Höföu þeir tvo blóöhunda sér til liös. Er skemmst frá því aö segja aö sjaldan hefur Tómas fengiö aöra eins útreið á skjánum. Ætti Kattavina- félagið skilyröislaust aö hefja upp raustsína. Bjarni var meö íþróttaþáttinn á réttum staö. Kom þar fram aö hinl frækni íþróttakappi Skúli Oskarsson „hefur nú lagt lóöin á hilluna”. Kann svo aö vera aö þetta sé skammgóður vermir fyrir kappann því óvíst er hvort hillumar haldi. Fleksnes ásamt móöur sinni Berit komst í mikinn ævintýraheim. Var þar öllum hlutum er nöfnum tjáöi aö nefna fjarstýrt. Þar vantaöi þó einn hlut, en alveg haföi gleymst að hugsa fyrir fjarstýröu þjófavamakerfi. Var þessi þáttur sem fleiri hinn ágætasti af þvítaginu. Síöast á dagskránni var breskt leikrit, þaö heillaöi mig þó ekki meira en svo aö svefninn náöi yfir- höndinni. Anna Sigmarsdóttir. Sverrir Siguröur Ágústsson flugum- feröarstjóri lést 25. desember. Hann fæddist í Reykjavík 17. mars 1924, son- ur hjónanna Ágústs Jónssonar og Rannveigar Einarsdóttur. Sverrir hóf nám og starf viö flugumferðarstjóm hjá flugmálastjórninni í Reykjavík. Síöar hélt hann til Bandaríkjanna í framhaldsnám. Eftirlifandi kona hans Ágústína Guörún Ágústsdóttir. Þau hjón ólu saman upp 3 böm Ágústínu frá fyrra hjónabandi hennar. Þau eignuö- ust einn son saman en hann lést af slys- förum áriö 1958. Utför Sverris veröur gerö frá Dómkirkjunni í dag kl. 15. Jón Bjami Sigurðsson er látinn. Hann fæddist 6. október 1936. Foreldrar hans voru Sigurður Bjamason og Sigurlín Jónsdóttir. Jón starfaöi lengst af hjá Otgerö Haralds Böðvarssonar co. hf., síöustu árin sem stýrimaöur og skip- stjóri á skuttogaranum Haraldi Böövarssyni. Eftirlifandi kona Jóns er Vilhelmína S. Elísdóttir. Þau hjón eignuðust 4 börn. Utför Jóns veröur gerðfrá Akraneskirkju ídag kl. 13.30. Guörún Olga Benediktsdóttir lést 28. desember. Hún fæddist þann 12. ágúst 1899 í Finnbogabæ við Grjótagötu í Reykjavík. Olga gekk í Kvennaskólann í Reykjavík og lauk þaöan námi og hélt til Danmerkur í húsmæðraskóla. Olga giftist Arna Árnasyni, en hann lést áriö 1969. Þau hjón eignuðust eina dóttur. Otför Guðrúnar Olgu veröur gerö frá Dómkirkjunni í dag kl. 13.30. Guöríður Sigurbjömsdóttir er látin. Sólveig Jónsdóttir, BoOagötu 12, sem lést 23. desember, veröur jarösungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 6. janúarkl. 15. Dr. Cyril Jackson lést í Eastbourne Hospital Sussex Englandi 31. desem- ber sl. Prófessor R.G. Harrison, Department of Anatomy, University of Liverpool, lést 31. desember 1982. Halldór Grétar Sigurðsson skrifstofu- maöur, Laugarnesvegi 49, andaöist á gjörgæsludeild Landspítalans 30. des- ember. Gústaf Adolf Ándersen sýningarmað- ur, Kirkjuvegi 18 Keflavík, sem andað- ist 25. desember sl., verður jarösung- inn frá Keflavíkurkirkju fimmtudag- inn 6. janúar kl. 14. Jarösett veröur á Akureyri. Hólmfríður Jóna Ingvarsdóttir, Karla- götu 1, andaðist að morgni nýársdags. Matthías Waage, Rauöalæk 38, andaö- ist í Borgarspítalanum aðfaranótt 1. janúar. Sigríður Þóra Konráðsdóttir, Alfta- mýri 24, andaðist 31. desember sl. Álfheiður Jóna Jónsdóttir, Bústaöa- vegi 63, veröur jarösungin frá Bústaða- kirkju miövikudaginn 5. jan. kl. 13.30. Hlíf Pálsdóttir frá Kirkjubóii í Korpu- dal, Önundarfiröi, veröur jarösungin frá Fossvogskirkju miövikudaginn 5. janúar kl. 15. Magnús Þórðarson frá Neðradal, Lönguhlíö 23, lést sunnudaginn 2. janú- ar 1983. Sólveig Jóhanna Jónsdóttir frá Laug- arási viö Laugarásveg andaöist 30. desember aö Hrafnistu í Hafnarfirði. Jarðarförin fer fram frá Fossvogs- kirkju föstudaginn 7. janúar kl. 15. Kristjana Guðmundsdóttir frá Hjöllum andaöist 3. janúar að Hrafnistu. Indíana Jónsdóttir, Laugarnesvegi 105, veröur jarösungin frá Fossvogs- kirkju í dag þriðjudaginn 4. jan. kl. 10.30. Þóra J. Hjartar, Háholti 5 Akranesi, andaöist í Sjúkrahúsi Akraness 31. des- ember. Viggó Bjöm Bjarnason, Suöurhólum 16, andaðist í Landspítalanum 1. janú- ar. Gunnar Guðmundsson, Lyngheiöi 6 Selfossi, andaöist í sjúkrahúsi Suöur- lands að kvöldi nýársdags. Kristján Ásgeir Ásgeirsson húsa- smíöameistari, Miövangi 121, lést í Landspítalanum 2. janúar. Sigurður Pétursson prentari Iést af slysförum í Chile á nýársdag. Þórunn Guðmundsdóttir, Otrateig 56, lést í Landspítala Hringsins 2. janúar. Tilkynningar Kvenfélag Hallgrímskirkju Fundur félagsins sem átti að vera fimmtu- daginn 6. janúar fellur niður. B.P.W. klúbburinn í Reykjavík heldur fund þriðjudaginn 4. janúar kl. 20.30 í Leifsbúð hótel Loftleiðum, rædd verða félags- mál og Unnur Ágústsdóttir Schram segir frá bandalagi kvenna í Reykjavík. Nýjar félags- konur velkomnar. Kynningarf undur hjá félaginu Samhygð Fundurmn verður haldrnn miðvikudagskvöld 5. desemberkl. 20.30 að Ármúla 36 (gengið inn fráSelmúla). Kvennaathvarf Opið allan sólarhringinn, sími 21205. Húsa- skjól og aöstoð fyrir konur sem beittar hafa verið ofbeldi í heimahúsum eöa orðið fyrir nauðgun. Vikulegar samkomur Hjálpræðishersins Mánudaga kl. 16: heimilasamband, þriðjudaga kl. 20: bibliulestur og bæn, fimmtudaga kl. 17.30: drengja- og stúlknafundir, fimmtudaga kl. 20.30: almenn samkoma, laugardaga kl. 14: laugardagaskóli í Hóla- 'brekkuskóla, sunnudagakl. 10.30: sunnudagasskóli, sunnudaga kl. 20: bæn, sunnudagakl. 20.30: hjálpræðissamkoma. Verið ætíð velkomin. Út er komin hljómplata er ber yfirskriftina Ljóðakvöld Olöf K. Harðardóttir syngur við undirleik Eriks Werba lög eftir Shubert, Shumann, Brahms, Sibeiius, Mozart og Beethoven. Hér er um að ræða nokkrar perlur úr heúni klassískrar ljóðatónlistar, m.a. 10 lög við ljóð Goethes er saman gætu borið heitið Konur í ljóðum Goethes, þar sem konur syngja um líf sitt og ástina. Olöfu K. Harðardóttur er óþarft að kynna íslenskum tónlistarunnendum því hún hefur haslað sér völl meðal okkar kunnustu tón- listarmanna. Erik Werba er austurríkis- maður og eúin kunnasti undirleikari við ljóða- söng sem nú er uppi og á fáa sér líka. Hann er einnig prófessor við Tónlistarháskólana í Vúi og Munchen og kennir þar túlkun sönglaga. Hann hefur og haldið námskeið fyrir ljóða- söngvara og undirleikara víða um lönd og á síðustu árum m.a. komið reglulega til Islands og haldið námskeið við Söngskólann í Reykja- vik. Hljómplata þessi var tekrn upp af Ríkisút- varpinu í september 1981 en er gefin út af Islensku óperunni til styrktar Islensku óperunni að frumkvæði listamannanna tveggja sem gefið hafa alla vúinu sína. Platan fæst í flestum hljómplötuverslunum landsins en um dreifingu hennar sér tslenska óperan. JC Reykjavík Fyrsti félagsfundur ársins veröur haldinn í kvöld, þriðjudaginn 4. janúar kl. 20 í félags- heimilinu aö Laugavegi 178. Á fundinum veröur fjaUaö um ungUngana og fíkniefnin. Kaffiveitingar, mætum ÖU stundvíslega. Stjórn JCR. Frá Sjálfsbjörgu í Reykjavík og nágrenni Litlu jólin verða haldin laugardagúm 8. janúar kl. 15.00 í Sjálfsbjargarhúsinu, Hátúni 12,). hæð. Féiögum er bent á að hafa með sér sm íjólapakka. Fréttatilkynning f(á ríkisstjórninni Ríkisstjórnúi ákvað á fundi sínum í morgun að skipa nefnd til þess að vúma að mörkun opinberra stefnu í áfengismálum. Með starfi nefndarúmar er stefnt að því að leggja grunn að markvissara starfi að áfengisvömum. Gert er ráð fyrir því að nefndúi skipti starfi smu í áfanga og skili innan þriggja mánaða tillögum um sérstakt átak, sem hrinda mætti i framkvæmd þá þegar á þeim sviðum, sem brýnust eru talin. Ennfremur er nefndinni gert að skila úrnan þriggja mánaða áliti til ríkisstjórnarúmar á því hvernig standa skuli að stefnumótun varöandi önnur vúnuefni en áfengi og hvort tengja skuli starf að áfengis- málum við baráttu gegn ólöglegum vímu- efnum. Nefndin hefur þrjú ár til að ljúka starfi súiu en henni er gert að skila á sex mánaða fresti tillögum til ríkisstjórnarinnar um átak og stefnumótun á hinum ýmsu sviðum þessara mála. I nefndmni munu eiga sæti fulltrúar þmg- flokka á Alþingi, einn fulltrúi frá hverju þeirra ráðuneyta, sem með áfengismál fara, þ.e. heilbrigðisráðuneyti, menntamálaráðu- neyti, dómsmálaráðuneyti og fjármálaráðu- neyti, einn fulltrúi frá forsætisráðuneyti og fuUtrúar tilnefndir af landlækni, áfengis- varnarráði, meðferðarstofnunum rikisúis og Samtökum áhugamanna um áfengismál. Nefndúi mun i starfi sínu hafa víðtækt samráð við alla þá aðila sem þessum málum tengjast og að þeún vinna. Þá er nefndinni gert að fylgjast sérstaklega með starfi Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarúinar á sviði áfengismála og að miða tillögur sínar við að um frambúðarúrræði sé að ræða. Ríkisstjórnm mun í heild fylgjast með og bera ábyrgð á framgangi þessa starfs en vinna á vegum nefndarinnar verður á vegum heilbrigðisráðuneytisúis. Ríkisstjómin mun beita sér fyrir sérstakri fjárveitingu næstu þrjú árúi til að standa straum af kostnaði við þetta starf. 30 desember 1982.' Forsætisráðuneytið. Nýlega voru gefin saman í hjónaband í Fríkirkjunni i Reykjavík, af séra Bernharöi Guömundssyni, Jóhanna B. Júlíusdóttir og Kristján Jóhannsson. Heimili þeirra er aö Ástúni 4, Kópa- vogi. 80 ára afmæli á í dag, hinn 4. janúar, Guðmundur Þérðarson, fyrrum skip- stjóri og fiskmatsmaöur, Hringbraut 111 hér í Rvik. Afmælisbamið veröur í kvöld, eftir kl. 20, staddur í Hörgslundi 5 í Garöabæ. 70 ára er i dag 4. janúar, Magnús Baldvinsson múrarameistari, Grænu- hlíð 7 Rvík. Eiginkona hans er Bjamey Finnbogadóttir. Afmælisbamiö tekur á móti gestum í dag milli kl. 17 og 19 i samkomusal múrara, Síöumúla 25, hér í bænum. Utför mannsins míns, föður okkar, tengdaföður og afa, GÚSTAFS ADOLFS ANDERSEN sýningarmanns, Kirkjuvegi 18 Keflavík, sem andaðist 25. des. sl., fer fram frá Keflavíkurkirkju fimmtudaginn 6. janúar kl. 14. Jarösett verður á Akureyri. Blóm afþökkuö en þeir sem vildu minnast hans er bent á Hjartavemd. Sveinlaug Halldórsdóttir Rósa Andersen Reynir Jónsson Ásta Spafford Frank Spaff ord Carol Andersen og baraaböra. Leiklistarskóli Sigrúnar Björnsdóttur auglýsir: Nýtt byrjendanámskeiö hefst miðvikudaginn 12. janúar. Innritun daglega milli kl. 17 og 19 í síma 31357.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.