Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1983, Blaðsíða 31
DV. ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR1983.
31
Sandkorn
Sandkorn
Sandkorn
Konfekt frá
útibússtjóra
Á fimmtudaginn milli jóla
og nýárs sagði ég frá þvi að
Iðnaðarbankinn hcfði gefið
starfsmönnum sinum norskt
konfekt í jólagjöf. Nú hefur
komið í ljós að þessi frásögn
var röng. Bankastórnin skýr-
ir svo frá að útibússtjórinn í
Háaleitisútibúi hafi gefið
starfsfóiki þar norskt konfekt
á eigin kostnað.
Broste opnar
útibú
Þeir sem hafa heyrt getið
um bjartsýnisverðlaun
Broste, síðan forseti Isiands
heimsótti Danmörku fyrir
tveim árum, vita sjálfsagt
minna um að þetta danska
fyrirtæki rekur veruleg við-
skipti við okkur skeggja.
Það selur okkur hráefni og
hjálparefni til iðnaðar og
ætlar nú að hasla sér vöil á
fleiri sviðum, sérstaklega er
viðkoma aðföngum fisk-
iðnaöarins.
Þessa dagana er Breste -
umboðið hf. að opna kontór
við Siðumúlann í höfuðborg-
inni, en framkvæmdastjóri
þess er Sigurður Hannesson.
Hann hefur starfað að sölu-
málum hjá Hildu hf. árum
saman, en auk þess hefur
hann lagt gjörva hönd á þjálf-
un og dómgæslu í knatt-
spyrnu og handknattleik.
Vill aftur
á þing
Það hefur kitlað ýmsa fyrr-
verandi þingmenn i Alþýðu-
flokknum að reyna aftur að
brjóta þingmúrinn. Eða svo
hefur heyrst í tengslum við
prófkjör flokksins.
Gunnlaugur Stefánsson hefur
hug á að verma á ný stól á Al-
þingi.
Bjarni Guðnason hefur náð
lengst, í 3. sæti á lista fiokks-
ins í Reykjavik, sem nú er
uppbótarsæti.
Jón Ármann Héöinsson
lýsti áhuga á prófkjörsþátt-
töku á Norðurlandi eystra, en
skilaði ekki framboði. Hann
var um tíma uppbótarmaður
af Reykjanesi.
Arftaki hans í uppbótarsæt-
inu þar, Gunnlaugur Stefáns-
son guðfræðingur, sem sat í
því um skamma hríð, ætlar
hins vegar að standa við
hótanir sínar um að taka nú
þátt í prófkjöri Alþýðuflokks-
ins þará Nesinu.
Nú um miðjan vetur eru
fleiri að búa sig undir pylsu-
vagnarekstur. Einn sækir um
leyfi fyrir vagni við Kjörgarð
á Laugavegi. Annar vill fá
leyf i fyrir að hafa vagn hér og
þar, ýmist á Laugavegi 21, á
Miklatorgi eða hinum og
þessum stöðum öðrum.
Hann hiýtur eiginlega að
vera á hjólum.
Vaxandi stétt
á gangstétt
Stétt pyisusala í Reykjavík
er ört vaxandi og ekki vonum :
fyrr, því einfaldari og
auðveldari bissness er víst
ekki til en að kaupa lager að |
morgni og ieggja gróðann inn
að kvöldi.
Eftir bestu vitund eru
pylsuvagnar í höfuðborginni
nú að minnsta kosti sjö. Að
vísu er hæpið að þeir séu allir
vagnar, þótt þeir séu vagnar, ,
því undir suma vantarhjólin.
Do-remifaso
Loksins hefur Sjónvarpið
eða LSD fundið upp á efnis-
gerð fyrir alþjóðlega keppni
þar sem við hljótum að sigra.
Það á að efna tii einsöngvara-
keppni og hún á að tengjast
fjölþjóðlegri einsöngvara-
keppni í Skotlandi. Ekki
vantar okkur hljóðin.
Þá er ætlunin að efna aftur
til sönglagakeppni í svipuð-
um dúr og í hittifyrra, þó eitt-
hvað f rábrugðinnar.
Konur fram á
Norðurlandi
vestra?
Þótt líklega séu konur á
Akureyri því fráhverfar að
hella sér sérstaklega út í
landsmálapólitíkina eins og
bæjarmálapólitikina, að
sinni, cru aðrar norðlenskar
konur sagðar heitar. Þær eru
reyndar á Norðurlandi
vestra, nánar til tekið í
Skagafiröi.
Skagfirsku konurnar voru
ekki jafnherskáar og þær
j akureyrsku við sveitar-
I stjórnarkosningarnar í fyrra.
| Og pólitísk ábyrgð hvilir þvi
ekki eins þungt á þeim cnn
sem komíö cr. Sumnm
þeirra, að minnsta kosti, þyk-
ir sem það megi gjaman
breytast og cra til í slaginn
nú.
Umsjón:
Herbert Guðmundsson
Kvikmyndir Kvikmyndir
Bíóhöllin — Sá sigrar sem þorir
Hrifningaróður til SAS
Heiti: Sá sigrar sem þorir (Who Dares Wins)
Leikstjóri: lan Sharp.
Handrit: Reginald Rose, eftir sögu George
Markstein.
Kvikmyndun: Phil Meheux.
Tónlist Roy Budd og fleiri.
Aðalhlutverk: Lewis Collins, Judy Davis, Rich-
ard Widmark, Edward Woodward og Robert
Webber.
Það þarf ekki að vera með miklar
getgátur um hvar höfundar Who
Dares Wins hafa fengið hugmyndina að
efnivið þessarar myndar. Fyrir um
það bil tveimur árum tókst breskri
sérsveit að freisa gísla úr höndum
hryðjuverkamanna í íranska sendi-
ráðinu í London. Varð þessi sérsveit
breskra hermanna fræg fyrir
árangurinn og nafn hennar SAS
(Special Air Service) þekkt um allan
heim og eru Bretar að sjálfsögðu
mjög ánægðir með tilurð hennar og
árangur.
En til að gera kvikmynd um atburð
er likist raunveruleikanum verður
að krydda myndina miklum skáld-
skap í leiðinni og þar fer allt í vit-
leysu í Who Dares Wins. Söguþráður-
inn er um töku ameríska sendiráðs-
ins og lýsing á þeim persónum sem
koma fram í myndinni er óskaplega
þunnur þrettánai og j rauninni er allt
gert til að þáttur SAS í aðgerðinni líti
nógu vel út í augum áhorfandans,
þar sem miklu ofbeldi er beitt, og allt
gert til að sverta hryðjuverkamenn-
ina sem mest og gera þá í rauninni
að krakkabjálfum sem vita ekkert
hvað þeir eru að gera, heldur láta að
stjórn erlendra ríkja sem sjá hag
sinn í því að styrkja þá með peninga-
gjöfum.
Fengur hryðjuverkahópsins í
ameríska sendiráðinu er ekki af lak-
ara taginu, bandarískir ráðherrar og
hershöfðingjar, sem allt í einu eru
orönir miklir friðarsinnar og skilja
ekkert í þeirri vitleysu krakkanna að
halda að þeir muni nota kjarnorku-
vopn til stríðsátaka, jafn friðelsk-
andi menn og þeir eru.
En endir myndarinnar kemur ekki
á óvart eftir því sem á undan er
gengið. Allir hryðjuverkamennirnir
eru drepnir og finnst öllum sjálfsagt
að svo sé farið með þá, en þaö furðu-
lega skeði að þrátt fyrir innrás SAS -
sendiráðið, þar sem hryðjuverka-
menn héldu hóp af fólki í gíslingu og
voru vel vopnum búnir, tókst þeim
ekki að fella neinn gísl eða hermann
aö ég gæti komið auga á fyrir utan
einn, sem féll fyrr í myndinni. Og
þegar hlutirnir eru einfaldaöir svo
fyrir hinn almenna áhorfanda er ekki
að sökum að spyrja að dýrðarljómi
SAS eykst enn með slíkri mynd og
þótt herdeildir sem slíkar eigi sjálf-
sagt rétt á sér finnst mér óþarfi að
gera einhverja dýriinga úr þeim eins
og gert er í Who Dares Wins.
Aðalhlutverk myndarinnar er í
höndum tveggja mjög svo ólíkra
leikara. Lewie Collinsleikurforingja
í SAS. sem smyglar sér í raðir
hryöjuverkahópsins og mætti halda,
að hans lærdómur í leiklist hafi veriö
að best sé að sýna engin svipbrigði
og nýtir hann sér þennan lærdóm
einkar vel. Judy Davis leikur einn af
foringjum hryðjuverkahópsins og er
hún eina persónan í myndinni sem
eitthvað varið var í að fylgjast með.
Þrátt fyrir að ágætir leikarar eru í
öðrum hlutverkum, náðu þeir aldrei
að gera sér neinn mat úr efniviðn-
um, enda engin furða, því að allt púð-
ur í myndinni fór í að sýna hversu
stórkostlega hermenn Bretar fram-
leiða þegar þeir taka sig til.
Fyrir þá sem hafa gaman af stríðs-
leikjum og spekúlera lítið í hvort eitt-
hvert vit sé í handriti myndar, er
Who Dares Wins kannski ágæt
afþreying, en aðrir ættu að láta hana
eigasig.
Hilmar Karlsson.
Kvikmyndir Kvikmyndir
DV ÖV DV IDV DV DV DV DV
IMauðungaruppboð
sem auglýst var í 76., 79. og 85. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1982 á
eigninni Holtsgata 6 Hafnarfirði, þingl. eign Jóns Haraldssonar, fer
fram eftir kröfu Hafnarfjarðarbæjar á eigninni sjálfri föstudaginn 7.
janúar 1983 kl. 16.00.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
sem augiýst var i 76., 79. og 85, iölublaði Lögbirtingablaðsina 1982 á
eigninni Kelduhvammur 2, 1. næð, Hafnarfirði, þingl. eign Hinriks
Hansen, fer fram eftir kröfu Tryggingastofnunar ríkisins á eigninni
sjálfri f östudaginn 7. janúar 1983 kl. 15.30.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 76., 79. og 85. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1982 á
eigninni Hraunbrún 49 Hafnarfirði, þingl. eign Eggerts Hannessonar,
fer fram eftir kröfu Hafnarfjarðarbæjar á eigninni sjálfri föstudaginn
7. janúar 1983 kl. 15.00.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 76., 79. og 85 tölublaði Lögbirtingablaðsins 1982 á
eigninni Suðurvangur 12, 3. hæð, Hafnarfirði, þingl. eign Sigriðar
Araadóttur, fer fram eftir kröfu Hafnarf jarðarbæjar og Guðjóns Stein-
grimssonar hrl. á eigninni sjálfri föstudaginn 7. janúar 1983 kl. 14.00.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 4., 8. og 12. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1982 á eign-
inni Norðurvangur 24 Hafnarfirði, þingi. eign Eyglóar Hauksdóttur,
fer fram eftir kröfu Tryggingastofnunar ríkisins og Innheimtu ríkis-
sjóðs á eigninni sjálfri föstudaginn 7. janúar 1983 kl. 13.00.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.