Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1983, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1983, Blaðsíða 32
32 DV. ÞRIÐJUDAGUR 4. JANUAR1983. DÆGRAD7ÖL DÆGRADVÖL DÆGRADVÖL Vel búið skrautfiskaker er stofudjásn sem á fáan sinn lika, og búriO hór ó myndinniá ekki mar^a jafningja hérlendis. ÞaO rúmer eina 430 litra og er á stærö viö sæmilegt baðker. Á myndinni er fjölskyldan á Lauga- bóli 2, Mosfellssveit, samankomin fyrir framan stofudjásnið. Fró vinstri: Auður Eiriksdóttir með Kristínu, Una Björk, Hlynur, Ásdis, Lilja, Ómar Runólfsson og irski setjarinn Spóla. MyndBH. Mjúklega bifast sverðplantan Mjúklega bifast sverðplantan fyrir hægum straumi, dökkrauöur kuðungur skríður hratt upp þverhníptan gler- vegginn — hverra erinda veit enginn nema hann sjálfur. Það slær að ofan björtu skini yfir hinn græna kynjaskóg kabombunnar og gesturinn starir bergnuminn á þessa austrænu furðu- veröld vatnsins. Hann veit sem er að þetta fagra fiskabúr er brot úr fram- andi heimsálfu, hitastigið, gróðurinn og fiskarnir sver sig í ætt við skóga og síki Thailands og Kína. En hingað er það komiö þetta örlitla brot hins aust- ræna heims og gesturinn fyllist aðdáun og gleði andspænis allri þessari undur- samlegu fegurð og þokka. Svo hlýtur hann umbun áhuga síns: gullrauður sverðdragi líður ofurhægt, eins og and- vari á vorkvöldi, út úr kjarri kabomb- unnar, hann skimar í kring um sig og augasteinarnir smáu glitra eins og perlur úr rafi. Hóglega dregur hann svartan brandinn eins og einmana farandriddari á leið til burtreiða. Þetta er varkár einstaklingur, kannski er hann aö gæta afkvæma sinna í grennd- inni. r Og hver birtist nú þama ofan til í vatninu? Blásvartur fiskur klýfur strauminn, afrenndur eins og thai- lenskur hnefaleikamaður, djöf ullegur í framan eins og leigumoröingi í Hong Kong. Búinn er hann íburðarmiklum sporði og uggum, sem hann ber eins og voldugan kjólfald. Hreyfingamar eru fjaðurmagnaðar og ógnvekjandi — þetta er Betta Splendens, sá veraldar frægi omstufiskur Austurlandabúa, hvarvetna hafður í hávegum sakir grimmdar og fegurðar. Þetta fiskabúr er til húsa uppi í Mos- fellssveit, vistkerfi úr fjarlægri heims- álfu varið af þykkum glerjum og um- vafið alúð eigandans, Ömars Runólfs- sonar. Ekki kastaði ég tölu á fiskabúr hans, en fyrsta tuginn losa þau áreiðanlega og nálgast kannski þann næsta. Stærsta búrið tekur 430 lítra. Það er á stærð við baðker og eiginlega er varla við hæfi að kalla það búr — ker væri nær sanni. Þetta er traustlega frágeng- ið ker og það er víst eins gott, vegna þess að því er fyrir komiö í stofunni, og trúlega þætti húsfreyju lakara að fá innihaldiö flóandi út yfir ábreiðuna. Kerið er fallegt á að líta, sandurinn hreinn og gróðurinn rótfestur þannig að hann byrgir ekki sýn. Kuðungar eru þama á flækingi þótt þeir fari sér flest- ir hægt og sjálfir höfðingjar kersins, skrautfiskarair, synda í makindum eins og austurlenskir furstar. Sumir em hárauðir, aðrir gulir og bláir. Líf- ríki kersins bragar í litskrúði og fjöl- breytni svo unun er á að horfa. En þó ai fiskamir séu taldir höfðingjakyns í þessu vistkerfi, þá era aðrir þegnar þess ekki síður mikilvæg- ir. Jurtaskógurinn skapar þá dýpt og fjarvídd sem áhorfendur njóta og fylgsni sem fiskarair sækjast eftir. „Já, ég hef aUtaf haft sérstakan áhuga á plöntunum,” segir Ómar, æðsta yfirvald kersins, hvaö sem fiskarair kynnu að segja um það. „Mér finnst plönturaar alveg ómissandi þáttur og í rauninni lítið varið í aö hafa búr í stofum án þeirra. Ég hef líka fengist viö ýmiss konar tilraunir í þá átt að fá þær tU að þrífast betur, en kranavatniö sem við höfum hér er að sumu Ieyti óhentugt bæði fyrir fiska og plöntur. Það er svo snautt af efnum. Þessar lífverar þurfa ákveðið um- hverfi við sitt hæfi, og það er auðvitað ekki við því að búast að kranavatnið uppfyUi ÖU þau skUyrði. Þó myndu margir útlendingar öfunda okkur af vatninu, því það er sérstaklega mjúkt og margar tegundir er erfitt að fá til að f jölga sér nema í svona mjúku vatni.” Ömar Runólfsson ræktaði skraut- fiska í búrum þegar á barasaldri. Á unglingsárunum héldu hestarnir inn- reiö sína í líf hans, og f iskarnir urðu að þoka. En timarair liðu, Ómar festi ráð sitt og fór að koma þaki yfir sig og sína, og þá urðu hestarair að víkja. Ómari fór eins og mörgum þeim sem HaUgrímur P. Helgason minnist á hér annprs staðar í opnunni: einn daginn kom hann arkandi í skrautfiskabúðina með frú sér við arm og krakka sér við hönd og bað um að fá að skoöa nokkra laglega fiska. Nú eru börain orðin fimm, fiskabúrin nærri fimmtán, fiskarair mörg hundruð. Skrautfiskarækt er skemmtUeg dægradvöl ungum böraum, en þeir timar era horfnir þegar íslendingar töldu að hún hentaði böraum eingöngu. Hún hæfir hverjum sem er, ungum sem öldnum, háum sem lágum. Hún opnar iðkanda sínum guUinn veg inn í heUIandi heima liffræöinnar og síðast en ekki síst: skynsamlega útbúið fiska- ker er stofudjásn sem á fáan sinn líka. „Hængarnir varast fram- hjáhalcT — segir Ómar Runólfsson Ég haUaði dollunni í lófa mér og horfði á kraumandi, rauögult mauk- iö renna til, eins og urmul af örsmá- um spriklandi sildum í nót. — Þetta er alveg stórfurðulegt. Hvaðerþetta eiginlega? spyr ég. „Þetta er nú Artemia Salina, eða saltvatnsrækja, eins og við köUum hana stundum. Þetta er krabbadýr og getur náö aUt að hálfum öörum sentimetra á lengd ef hún fær að dafna við bestu skilyrði, en hér er hún varla nema brot úr millimetra. Erlendis lifir hún villt í söltum stöðu- vötnum, til dæmis í Júta. Eggin eru svo harðger aö þau þrauka af þurrk og hita þegar sumarsóhn þurrkar upp stöðuvötnin, en svo taka þau við sér og klekjast út þegar regntíminn byrjar,” sagði Omar Runólfsson. Hann heUti gætilega úr doUunni í eitt búrið. Kvikt maukið seig tU botns og greiddist sundur og varð fýrst eins og rauögulur skýflóki, þar næst eins og rauðgult haglél yfir blárri eyði- mörk, að lokum birtust einstak- lingamir út úr skýjaflókanum og skutust sitt á hvað, trúlega frelsinu fegnir. „En þeir verða nú ekki fegnir lengi,” sagði Omar, ,,því að þetta er uppáhaldsfæða fiskanna. Lifandi fæða af þessu tæi er nauðsynleg fyrir seiði hrognafiskanna ef vel á að tak- ast til, með örfáum undantekningum þó sem nærast á grænþörungum. Hún er líka mjög góð fyrir gotfisk- ana. Aö minum dómi fær maöur miklu betri fiska með svona fæði, stærri og fallegri; það virðist vera svo mikil næring samþjöppuö í þess- um litlu kvikindum.’ ’ — Afsakaöu fáfræðina, en þú nefndir gotfiska og hrognaf iska ?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.