Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1983, Side 1
Viltuverapúkó?
— sjá Dægradvöl
bls. 32-33
Öveðursraunir
— sjábls.2
Það hefur komiö fram í blaöinu að
björgunaraðgerðir við Vífilsfell, er
tveir menn fórust þar á nýársdag í
fjallgöngu, voru mjög erfiðar. Til
marks um það má nefna að rúma tvo
tíma tók að flytja mennina frá slysstað
til borgarinnar. Komið var á slysstað
um klukkan 13.15, en þyrla landhelgis-
gæslunnar komst ekki á staöinn fyrr en
15.20.
Ástæða þessarar tafat að sögn þyrlu-
flugmanns gæslunnar, Sigurðar Árna-
sonar, er einkum sú að mikill skaf-
renningur var á svæðinu og var því
áhættan of mikil að senda þyrluna á
slysstað fyrr en á áðurnefndum tíma.
Veðrið var þó ekki betra þegar þyrlan
kom að Vífilsfelli en þaö að mótorar
þyrlunnar rétt höfðu að hafa vélina á
loft að aflokinni björgun mannanna
vegna mikillar ísingar.
Allan þann tima frá því vart varð við
slysiö og þar til að þyrlan komst á
slysstað beið hún í viðbragðsstööu á
Reykjavíkurflugvelli.
-SER.
»*k3
ur versnar
fturídag
Lögreglanf viðbragösstööu
Skafarastjórinn eða
og það heitir á máii fuiiorðinna, beitir
inum af mikiiii lagni í ófærðinni. Bílalestin
hinkrar róleg og á allt sitt undir þessum
manni. DV-mynd: GVA.
Suöur- og Suðvesturland:
Lögreglumenn á Reykjavíkur-
svæðinu eru nú í mikilli viöbragðsstöðu
vegna versnandi veöurs á höfuð-
borgarsvæðinu í dag.
Lögreglan í Reykjavík er meö fimm
jeppa á leigu og þá hefur aukalið
lögreglumanna verið kallaö út.
Auk þess verður hún með tvo vélsleða í
förum.
Veðurstofan spáði í morgun hvass-
viðri, sjö til átta vindstigum, á Suður-
og Suðvesturlandi í dag og að upp úr
hádeginu yrði einnig komin snjókoma
og slydda.
I morgun fengust þær upplýsingar
hjá Vegaeftirlitinu að helstu vegir frá
Reykjavík væru illfærir vegna skaf-
rennings. Mjög vont veður væri á
Suðuriandsvegi og Þrengslavegi og
aðeins fært jeppum og stórum bílum.
Snjóruðningstæki munu þó eitthvað
reyna að ryðja. I Ámes- og Rangár-
vallasýslu var kominn skafbylur í
morgun og útlit fyrir að vegir yrðu
ófærir fólksbílum.
Búist er við að í nótt gangi í norð-
austanátt og létti til í fyrramálið
sunnanlands en hríðarveöur verður
fyrir norðan.
-JGH.
Hverjirfara
ábiðlista
Flugleiða?
— sjá neytendur
bls.6
i tvo tíma
Þettaereins
ogá vitlausra-
spftala
— DV fylgist með
starfi lögreglu
íófærðinni
-sjábls.4
Fara togarar BUH út í vikulokin?
„Við stefnum að því aö geta farið
út með skip fyrir næstu helgi,” sagði
Björn Ölafsson, framkvæmdastjóri
Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar, í
samtali við DV í morgun. Eins og
kunnugt er liggur öll starfsemí í
frystihúsi fyrirtækisins niöri eins og
er og þrír togarar þess hafa legið
bundnir við bryggju frá því fyrir jól.
Björn sagði aö útgerðarráð
Bæjarútgerðarinnar hefði komið
saman í gær og rætt stöðuna eftir að
nýtt fiskverð hefði verið ákveðið, en
ljóst væri að það hefði lagað stöðu
fyrirtækisins nokkuð. Var á fund-
inum skipaöur vinnuhópur til að
undirbúa aö fyrirtækið gæti aftur
hafiö starfsemi og til að afla upp-
lýsinga til að leggja fyrir næsta
útgerðarráðsfund, sem verður á
laugardaginn. Þá verður tekin
ákvörðun um hvort senda eigi tog-
aranaútaftur.
Bjöm Olafsson sagði að full
pólitísk samstaða væri um það í
útgeröarráði að gera allt til að halda
rekstrinum áfram. Fyrirtækið hefur
enn ekki fengið neina opinbera
fjárhagsfyrirgreiðslu en það mun
kannaðfrekaríþessariviku. -ÓEF.