Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1983, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1983, Blaðsíða 3
DV.FIMMTUDAGUR 27. JANUAR1983. 3 Ný útvarpsrás fyrir áramót? „Það er mjög ofarlega í hugum manna hér að reyna aö hefja sending- ar á rás tvö síðari hluta ársins,” sagði Andrés Bjömsscm útvarpsstjóri í sam- taliviðDV. „Undirbúningur er í gangi. Það er verið að ræða þetta í útvarpsráði og innan stofnunarinnar. Nefnd var sett á stofn til að vinna aö þessu. Hún hefur nú skilað af sér skýrslu, við getum sagt grundvallarskýrslu, vinnuplaggi sem notað er mikið í umræðum um þetta,” upplýsti Andrés. Utvarpsstjóri sagði að rás tvö væri hugsuð sem mjög einföld stöð. Hún myndi, að minnsta kosti fyrst um sinn, senda út nær eingöngu tónlist. „Það er ætlast til að þetta verði rekið á eins einfaldan hátt og hægt er. Meiningin er að láta auglýsingar standa undir þessu,” sagði Andrés. Hann taldi þó erfitt að spá í fyrirfram hvort það tækist en sagði það mjög æskilegt. Eins og áður hefur komiö fram í fréttum er ætlunin að auglýsingar á rás tvö verði með öðrum hætti en þær sem nú eru í útvarpinu. Þar verði tilbúnar auglýsingar sem auglýsendur kæmu sjálfir með. Auglýsingamar myndu þá hljóma svipað og sjónvarps- auglýsingar og verða skotið inn hér og þar. Hlutfall auglýsinga í dagskránni yrði liklega um tíu af hundraði. Hug- myndir eru uppi um að verð mínútunn- ar verði um helmingur af verði auglýsingamínútu í sjónvarpi. Þegar fyrst var farið að ræða af alvöru um rás tvö virtist vera mestur áhugi á því að hún sendi út allan sólar- hringinn. Utvarpsstjóri kvaðst hins vegar ekki búast við að af því yrði. „Það hafa verið ýmsar hugmyndir á lofti. Þetta er mál sem ekki er búið að ganga frá, á hvaða tímum verður sent út. Þetta er í rauninni mál sem snertir útvarpsráð talsvert 'mikið,” sagði út- varpsstjóri. 1 skýrslu sinni leggur undirbúningsnefndin til að útvarpað verði til klukkan eitt að nóttu og til klukkan tvö um helgar. Auk tónlistar verður að sjálfsögðu fréttum útvarpað á rás tvö. Ætlunin er að þær verði sameiginlegar aðalrás- inni. Þegar fréttú- eru á rás eitt verður rás tvö einfaldlega stillt inn á rás eitt. Hugmyndir eru uppi um að hafa stutt viötöl, gjarnan tengd tónlist, á rás tvö, einnig jafnvel stutta þætti sem ekki kosta mikiö í framleiðslu. Búast má við að stuttum veðurfregnum, upplýsingum um færð á vegum og fleiru í slíkum dúr verði ennfremur skotið inn í dagskrána. Andrés Bjömsson sagði að rás tvö yrði til að byrja með líklega til húsa í nýja útvarpshúsinu við Háaleitisbraut en hægt verður að taka hluta af því í notkun næsta sumar. Undirbúnings- nefndin telur að 400 fermetra gólfflöt þurfi undir starfsemina. Sú sama nefnd telur tvísýht að starfsemi beggja rásanna geti í framtíðinni rúmast í nýja útvarpshúsinu. Telur hún að veruleg þrengsli yrðu. Undirbúningsnefndin hefur komist að þeirri niðurstöðu að ný útvarpsrás þurfi um tuttugu starfsmenn, þar af yrði tæpur helmingur lausráðnú- dag- skrármenn. -KMU. Snjóflóðavamir: Fundað í gær í félagsmálaráðuncytinu um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum. DV-mynd GVA. LÖGGJÖF EÐA REGLUGERÐ í BÍGERÐ I félagsmálaráðuneytinu var í gær haldrnn fundur um varnir gegn snjó- flóðum og skriðuföUum. Fundur þessi var haldinn í framhaldi af sam- þykkt Alþúigis frá 1981 um þessi mál sem skýrt var frá í DV í gær. Þess ber þó að geta að boðað var til fundarins fyrir atburðúia á Patreks- firði. Fundinn sátu fuUtrúar ýmissa stofnana og að sögn Þórarins Magnússonar verkfræðmgs, eúis þeúra er sat fundinn, var ákveðið að koma innan tíðar á fót starfshópi sem f engi það hlutverk að semja lög- gjöf eða reglugerð varðandi þessi mál. Sagðist Þórarinn að vonum vera ánægður með að þessi mál skyldu loks vera komúi á rekspöl. Á fundinum voru máUn rædd al- mennt og bent á mikilvægi þess að finna leið til að fjármagna vamarað- gerðir. Þá var lögð fram greinargerð frá Hallgrími Dalberg ráöuneytis- stjóra um þróun mála á sviði snjóflóðavama hér á landi frá at- burðunum í Neskaupstað í desember bestu inniskórnir 21051. Leikfimiskór með hæl, leður. Verð kr. 288. Stærðir frá 36. 22030. Fimleikaskór, leður m /hrágúmmisóla. Verð ftá kr. 180. Stærðir frá 31. Póstsendum. Sportvöruverzlun Ingólfs Óskarssonar Klapparstig 44. Simi 11783. Lúxemborgarhátíðin hófst á Esju í gær — Buffalo Wayne og fleiri komnir til landsins vegna hátíðarinnar Hljómsveitin Buffalo Wayne spilaði á Hótel Esju i gær, þegar Lúxemborgarhá- tíðin gekk í garð. Hljómsveitin er kunn í Lúxemborg fyrir góða sveitasöngva. Lúxemborg er miðsvæðis í Evrópu og þaðan „liggja vegir tU ailra átta”. Hver veit nema hljómsveitin taki lagið On the road again á bátíðinni. DV-mynd GVA. Lúxemborgarhátíð Flugleiða, Ur- vals, Hótel Esju og Broadway hófst í gær á Hótel Esju og mun standa til 3. febrúar næstkomandi. Gestir hátíðarmnar eru frá Lúxem- borg. Það er hljómsveitúi Buffalo Wayne sem er „countryrock” hljóm- sveit og mjög þekkt í heimalandi sínu ogvíðar. Þá er kominn til landsins í tUefni hátiðarúinar Valgeir Sigurðsson, veitingamaður á The Cockpit Inn í Lúxemborg. Auk þess kemur Anne Cerf, sölustjóri Flugleiða í Lúxem- borg, á hátíöina og mun hún veita upplýsingar um Lúxemborg. Hljómsveitin Buffalo Wayne spUar næstu kvöld á Esjubergi og í Skála- feUi, hljómsveitin mun einnig koma fram í Hollywood og Broadway á meðan á hátíðúmi stendur. Þá má geta þess að sérstakur mat- reiðslumeistari, Gérard Mathes, er kominn frá Lúxemborg og vígir hann svokaUaö .dielgarhom” í Esjubergi á morgun, föstudaginn 28. janúar. t „helgarhommu” verður þjónað til borðs og lagt kapp á að hafa eitthvaö nýstáriegt hverja helgi. Verður höfðað til ýmissa borga um víða veröld, sem og til einstakra staöa hér innanlands. -JGH BILUTVORP — TON- JAFNARAR — HÁTALARAR Gunnar Ásgeirsson hf. Suóurlandsbraut 16 Sími 9135200 JENSEN S()l 'NI) I \B()K AIOKIFS HALTU ÞÉR Á VEGINUM MEÐ JENSEN

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.