Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1983, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1983, Blaðsíða 19
DV. FIMMTUDAGUR 27. JANUAR1983. 19 GUÐMUNDUR BIRKIR ÞORKELSSON: Sækist ekki eftir pólitískum frama „Ég vil taka það fram að ég er einn þeirra sem eru á listanum nánast til uppfyllingar, við stefnum ekki til neinna mannviröinga. Eg hef sjálfur engan sérstakan áhuga á pólitískum frama í þessari lotu,” sagði Guðmund- ur Birkir Þorkelsson, kennari og bóndi á Miödal í Laugardal. „En svo ég nefni einhvem málaflokk sem mikiö er ræddur hér fyrir austan, þá eru það atvinnumál. Atvinnutæki- færi eru ekki nægilega mörg. Svo eru ýmis önnur smámál, sem tengjast kjördæminu, sem allir myndu vilja leysa, hvar í flokki sem þeir standa. Um þau er enginn ágreiningur í kjör- dæminu. Hvað stefnumál varðar vil ég aðeins geta þess aö ég mundi vilja vinna að framgangi sósíalismans hvenær sem ég gæti. Það nægir mér,” sagði Guðmundur. Guðmundur Birkir Þorkelsson er fæddur í Reykjavík 21. desember 1948. Hann lauk BA-prófi í þjóðfélags- fræðum frá Háskóla Islands árið 1975 og hefur verið kennari viö Héraðsskól- ann á Laugarvatni í um tíu ár. Búskap stundar Guðmundur einnig á bænum Miðdal í Laugardal. Hann hefur starf- að mikið meö Alþýöubandalaginu í Suöurlandskjördæmi. Eiginkona Guðmundar er Bryndís Guðlaugsdóttir og eiga þau eitt barn. -PÁ HANSÍNA A. STEFÁNSDÓTTIR: Mikilvægast að atvinnu- málin verði leyst „Ég held aö allir geti verið sammála um það að atvinnumálin séu þau mál sem mikilvægast er að verði leyst. Hér á Selfossi hefur til dæmis ekki verið jafnmikið atvinnuleysi í mörg ár þannig að þetta brennur mjög á fólki,” sagði Hansína Á. Stefánsdóttir, skrif- stofumaður á Selfossi. „Atvinnumálunum tengist síðan margt, til dæmis búsetumál og orku- mál. Eg hef annars áhuga á öllu því sem til heilla horfir fyrir kjördæmið. Varöandi landsmál önnur vil ég bara vísa til stefnu Alþýðubandalagsins í þeim efnum,” sagði Hansína. Hansína Á. Stefánsdóttir er fædd á Selfossi 2. desember 1949. Hún lauk stúdentsprófi frá öldungadeild Menntaskólans við Hamrahlíð og starfar sem skrifstofumaöur hjá Fé- lagi byggingariðnaðarmanna og Verslunarmannafélagi Ámessýslu. Eiginmaður Hansínu er Gissur Jensen og eiga þautvo syni. -pa ÞÓR VIGFÚSSON: Brúun Ölfusár nauðsynleg ,JSrúun Ölfusár er til dæmis eitt af mikilvægustu málunum hér í k jördæm- inu,” segir Þór Vigfússon mennta- skólakennari, Straumum, Ölfusi. „ Annað dæmi sem ég get nefnt um þaö, sem þeir þingmenn sem kosnir verða í kjördæminu verða að berjast fyrir, er aö því sem við fáum fyrir þá fáu þorska sem eftir eru í sjónum við land- iö verði ekki eytt í vitleysu, eins og að flytja inn einingahús. Við getum fram- leitt þau hér og gerum og það miklu betur. Stjórnvöld verða að styðja þá framleiðslu sem er fyrir, en flytja ekki inn þá hluti sem við framleiðum í land- inu. Eg nefni þessi tvö dæmi um það sem þingmannsefni okkar verður aö berjast fyrir. Ég sækist sjálfur ekki eftir efstu sætunum, það gera aðrir. Eg er félagi í þessum flokki og tek því þátt í forvalinu en sækist ekki eftir neinum metorðum.” Þór Vigfússon er fæddur áriö 1936. Hann hefur hagfræðipróf frá háskóla í Þýskalandi og hefur starfað við kennslu. Hann er nú kennari viö Menntaskólann við Sund. Hann var borgarfulltrúi í Reykjavík árin 78— ’80. Þór er kvæntur Hildi Hákonardótt- ur. ás GUNNAR STEFÁNSSON: Þjóðin losi sig við erlent hernám „Stefnumál og störf Alþýöubanda- lagsins hafa alltaf verið meira í sam- ræmi viö þjóðfélagshugsjónir þær sem ég ber í brjósti en annarra flokka,” segir Gunnar Stefánsson bóndi. ,,Eg vil berjast fyrir þjóðfrelsi í reynd gagnvart öðrum þjóðum og jafnrétti allra landsmanna — þjóðfélagslega og menningarlega. Að þessum málum tel ég Alþýðubandalagið eitt allra flokka vinna óskipt. Eg tel brýnast að þjóðin losi sig úr fjötrum erlends hemáms, að setja fram jákvæða og virka land- búnaðarstefnu og að þjóðin afsegi að ganga lengra í niðurgreiðslu á raforku til erlendra aðila. Ég tel stöðuna í þessum þremur fyrrgreindu málum vera ógnvekjandi og ólíðandi fyrir líf þjóðarinnar og legg áherslu á að á næsta kjörtímabili verði þeim komið í réttan farveg.” Gunnar Stefánsson er fæddur árið 1915 að Litla-Hvammi í Dyrhólahreppi. Hann hefur stundað sjó og unnið sem verka- og verslunarmaður en er nú bóndi á Vatnsskarðshólum. Hann sat í hreppsnefnd Dyrhólahrepps um ára- bil. -ás „Helstu hugðarefni mín eru atvinnu- mál og byggðamál hér í héraðinu, ekki síst atvinnumál í landbúnaði og í kring- um hann,” segir Gunnar Sverrisson, bóndi í Hrosshaga í Biskupstungum. , JUvinnumál hér standa að mörgu leyti nokkuð tæpt, við teljum að lítið megi út af bera, bæði vegna vissrar stöðnunar í landbúnaði og sjávarút- vegi. Raunverulegur samdráttur hefur orðiö í landbúnaði, aö minnsta kosti á vissum svæðum. Það er ljóst að það gengur ekki lengi þannig, án þess að fólksfækkun verði. Af þeim sökum veröum við að standa vörð um okkar hlut.” Gunnar Sverrisson er fæddur 16. október 1953 í Hrosshaga og er bú- fræðingur að mennt. Hann hefur verið bóndi síðan 1974 og býr félagsbúi ásamt foreldrum sínum. Gunnar er kvæntur Sigríði J. Sigurfinnsdóttur. -PA DÓRA KRISTÍN HALLDORS- DÓTTIR: Menntunar- málin til umræðu „Það eru helst landbúnaöarmál og atvinnumál sem rædd eru hér manna á meðal,” sagði Dóra Kristín Halldórs- dóttir, kennari á Snjallsteinshöföa í Landsveit. „Menntunarmál eru líka til um- ræðu vegna þess mikla aðstööumunar sem er í skólum hér fyrir austan og í bænum. Hérna vantar svo margt sem hinir skólarnir hafa. Atvinnumál eru ekki í góðu ástandi, það þyrftu að koma til fleiri og fjöl- breyttari atvinnutækifæri.” Dóra Kristín Halldórsdóttir er fædd 2. september 1953 í Reykjavík. Hún út- skrifaðist teiknikennari frá Myndlista- og handíðaskóla Islands, hefur búið í sveit í nær níu ár og kennir við barna- skólann að Laugalandi í Holtum. Dóra er gift Hrafnkeh Oðinssyni og eiga þau eitt barn. -PÁ KOLBRÚN GUÐNADÓTTIR: Atvinnumálin brenna á Sunnlend- ingum „Ástæðan fyrir því að ég tek þátt í forvali Alþýöubandalagsins er aö ég hef setið sem varabæjarfulltrúi hér á Selfossi frá því í síðustu kosningum og hef því áhuga á þessum málum,” segir Kolbrún Guðnadóttir, kennari á Sel- fossi. „Eitt mál brennur sérstaklega á Sunnlendingum, en þaö eru atvinnu- málin, ég ber þau mjög fyrir brjósti. Ég styð Alþýðubandalagið vegna þeirra málaflokka sem þaö byggist á, sem eru jafnréttismál í víðasta skiln- ingi, friöarmál ogafvopnunarmál.” Kolbrún Guðnadóttir er fædd 20. nóvember 1951 í Reykjavík, en er Árnesingur að uppruna. Hún hefur bú- ið á Selfossi frá unglingsaldri og starf- ar sem kennari viö barnaskólann. Kol- brún er gift Sigurði Randver Sigurðs- syni og eiga þau þrjú böm. -PÁ EDDA TEGEDER: Alfarið á móti stóriðju „Mitt helsta áhugamál er að losna við herinn úr landi, ég hef mestu and- styggð á öllu hernaðarbrölti,” sagði Edda Tegeder, bréfberi í Vestmanna- eyjum. „Ég er mjög fylgjandi náttúruvemd og því alfarið á móti stóriðju. Ég vil að við íslendingar virkjum þá orku sem við þurfum nauðsynlega að nota sjálf- ir, en bruðlum ekki með fallvötnin og aðrar auölindir og seljum þau út- lendingum. Island á að vera algerlega sjálfstætt, án allra útlendra áhrifa,” sagöi Edda. Edda Tegeder er fædd í Bremer- haven í Þýskalandi 7. apríl 1939. Hún er uppalin í Vestmannaeyjum og tók þar gagnfræðapróf. Hún er bréfberi og húsmóðir að atvinnu. Eiginmaður Eddu er Haraldur Traustason og eiga þau f jögur böm. -PÁ ÞORVARÐUR HJALTASON: Vantar stoðir undir atvinnulífið „Helstu áhugamál min em atvinnu- málin, þau brenna heitast á Sunn- lendingum um þessar mundir og þar þyrfti eflingar við,” sagði Þorvarður Hjaltason, kennari á Selfossi. „Það má einnig nefna atriöi eins og fullvinnslu landbúnaðarafurða. Yfir- leitt má segja að fleiri stoðir vanti undir atvinnulífið, til dæmis iðnaöinn. Það væri mikiö unnið, ef Sunnlending- ar fengju að njóta orkunnar sem fram- leidd er á Suðurlandsundirlendi, en nýtist þó ekki nema að litlu leyti. ” Þorvarður Hjaltason er fæddur 21. ágúst 1951 á Selfossi og hefur verið kennari við Gagnfræðaskólann þar frá árinu 1974. Hann er kvæntur Olafíu Sigurðardóttur og eiga þau þrjú börn. -PÁ ÚLFUR BJÖRNSSON: Sunn- lendingar afskiptir í orkumálum „Þau mál sem eru efst á baugi eru orkumál og atvinnumál,” segir Ulfur Björnsson. „Sunnlendingar eru af- skiptir um orkumál, það em aðeins örfá prósent sem em nýtt innan hér- aðsins og fólki finnst að því þyrfti aö breyta. Svo má nefna þá gífurlega miklu orku sem fólgin er í jöröu kring- um Hveragerði, en er ónýtt. Orkumálin hafa verið mikiö rædd á fundum, bæði hjá Alþýðubandalaginu og öðram samtökum. Sunnlendingar hafa verið afskiptir í atvinnumálum. Lítiö hefur verið um yfirvinnu almennt og kaup er heldur lágt,”sagðiUlfur. Ulfur Bjömsson er fæddur 23. nóvember 1951 á Grenivík. Hann lauk BS-prófi frá Háskóla Islands í landa- fræði, uppeldis- og kennslufræöi og starfar sem kennari viö Fjölbrauta- skólann á Selfossi. Ulfur er ókvæntur. -PÁ GARÐAR SIGURÐSSON: Gef engar yfirlýsingar „Áróður í svona forvölum vill oft veröa svo yfirborðskenndur að ég vil ekki gefa neinar yfirlýsingar,” sagði Garðar Sigurðsson. ,,Ég vil aðeins vona að menn reyni að vinna vel að málefnum landsins og kjördæmisins og séu heiðarlegir í öll- um vinnubrögðum. Aðalatriöiö er að menn reyni að standa sig,” sagði Garðar. Garðar Sigurðsson er fæddur í Reykjavík 20. nóvember 1933, búsettur í Vestmannaeyjum frá 1941. Hann var kennari í Neskaupstaö í fjögur ár og í Vestmannaeyjum í tólf ár. Hann var kjörinn á Alþingi árið 1971 og átti sæti í stjórn Viðlagasjóös meðan hann starf- aði. Garðar er kvæntur Bergþóm Oskarsdóttur. -PÁ GUÐMUNDUR J. ALBERTSSON: Vil breyta skattalög- gjöfinni „Við búum á landshluta þar sem raf- orkumál eru í miklum ólestri,” segir Guðmundur J. Albertsson, kennari á Hellu. „Eg tel brýnast að ná eðlilegu veröi frá Alusuisse með góðu eða illu, svo íslenskir neytendur þurfi ekki að greiða niður raforkuna. Ef eðlilegt orkuverð næðist gæti það lækkaö verð til neytenda um 60%. Ég hef einnig áhuga á að ná fram töluverðum breytingum á skattalög- gjöfinni og helst í þá veru að fjölga skattþrepum svo meiri kjarajöfnun næðist í gegnrnn skattakerfið. Sem húsbygg jandi vil ég svo beita mér fyrir því að lánskjaravísitala vaxta fari ekki upp fyrir lánskjaravísitölu launa. Raunin hefur hingað til verið á hinn veginn, vísitala vaxta hefur hækkaö hraðar en vísitala launa, og er það mjög bagalegt.” Guðmundur J. Albertsson er fæddur 13. október 1951 á Siglufirði og uppal- inn þar. Hann hefur veriö kennari á Hellu frá 1974. Eiginkona Guömundar er Þórdís Þórðardóttir og eiga þau þrjúböm. -PÁ PANTANIR Sími 13010 HÁRGREIÐSLU- STOFAN KLAPPARSTÍG 29 «9 Ryóvarnarskálinn Sigtúni 5 — sími 19400 býður bifreiðaeigendum upp á: Vélaþvott Undirvagnsþvott Undirvagnsryðvörn Endurryðvörn Ryðvörn í gólf Venjulega ryðvörn Ryövörn á vörubíla og rútur Ryðvörn á strætisvagna Góð aðstaða tryggir góða vinnu. Pantiðtíma. s# Ryóvarnarskálinn «9 Sigtúni5 Sími 19400

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.