Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1983, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1983, Blaðsíða 21
íþrótti • JIM BETT - er talrnn arspilurum Brettands- eyja. Hér er hdnn á fullri ferö meö knöttinn. „Þetta var sigur liðsheildarinnar” — sagði Hilmar Bjömsson eftir f rábæran sigur íslands yfir Danmörku í Kaupmannahöfn í gærkvöldi „Ég get ekki verið annaö en ánægö- ur. Það hefur aöeins gerst tvisvar áður að við höfum unnið Dani í landsleik í handknattleik karla á þeirra heima- velli. Það er líka alltaf gaman að sigra í landsleik, sama við hvem hann er, svo ég hlýt að vera lukkulegur núna,” sagði Hilmar Bjömsson landsliðsþjálf- ari er við náðum tali af honum í Kaup- mannahöfn í gærkvöldi. Þá var hann að koma heim á hótel með liðið sitt eft- ir 19—18 sigur íslands yfir Danmörku. „Þetta var sigur liösheildarinnar. Menn unnu vel saman bæði í vöm og sókn. Þaö var hugsað um samherjann — stundum jafnvel um of, því menn voru að gefa boltann á næsta mann þótt þeir væru sjálfir í dauðafæri,” sagði Hilmar. „Það komu að sjálfsögðu í ljós gallar en þá á að vera hægt að laga. Við fór- um í þessa ferö til þess að finna það sem væri að og gera við þaö fyrir B- heimsmeistarakeppnina. Þaö var margt mjög jákvætt við þennan leik hjá okkur en við ofmetn- umst nú ekkert þótt við höfum sigrað þá í þetta sinn,” sagöi Hilmar. íslenska liðið yfirvegað Islenska liðiö byrjaði mjög vel í leiknum og var þrem mörkum yfir í hálfleik, 11—8. Kom yfirvegaður leikur Einar Þorvarðarson var frábær í markinu í leiknum við Dani í gær- kvöldi. iiirinn” LORD JIM ísti knattspymumaður Skotlands Bett að komast þangaö aftur,” segir Jóhannes Eðvaldsson um þennan and- stæðing sinn á vellinum. „Hann á tvö ár eftir hjá Rangers og þeir halda. honum í svo háu verði til að missa hann ekki aö félögin á meginlandinu geta ekki keypt hann. Hann er afburðamaður í liði Rangers og hefur átt mjög góða leiki með skoska landsliðinu þegar hann hefur fengið tækifæri þar. Það eru fleiri þjálfarar og knatt- spymumenn en Jóhannes Eðvaldsson sem hafa mikið álit á Jim Bett. „Eg held að það sé ekki til betri miðjuleikmaður á öllu Bretlandi en hann,” segir John Greig, fram- kvæmdastjóri Rangers. „Hann hefur sýnt það í leikjum sínum með okkur og þá sérstaklega í leikjum okkar gegn liðum á meginlandinu. Þar sýnir hann virkilega sitt rétta andlit.” Jim Bett lék sinn fyrsta A-landsleik fyrir Skotland gegn Hollandi á Hampden Park í Glasgow í mars sl. Þótti hann standa sig vel þar en samt valdi Jock Stein hann ekki í HM-hóp Skota fyrir heimsmeistarakeppnina á Spáni. Var hann síðasti maðurinn sem Stein setti út úr hópnum fyrir endanlegt val — og voru ekki allir sáttir viö það. 0 Jim Bett ásamt sonum sínum sem bera skosk- íslensku nöfnin Jim Baldur og Calum Þór. „Jim Bett er framtíðarleikmaður Skotlands og hann á eftir að vera fastur maöur í landsliðinu á komandi árum. Hann verður alltaf góður full- trúi Skotlands,” segir Jock Stein. tsland hans annað heimaland En Jim Bett er lika góður fulltrúi Islands. Það hefur hann margoft sýnt og sannað. Hann er ófeiminn við að segja að Island sé sitt annað heimaland og á Islandi ætii hann aö búa þegar hann hafi lokiö sínum knatt- spyrnuferli. Hefur það vakið mikla undrun því að frægt fólk eins og hann leggur venjulega ekki leið sína til eld- f jallaeyjunnar í norðri. Jim Bett er giftur íslenskri konu, Auði Rafnsdóttur, og eiga þau tvo syni. Bera þeir báðir skosk/íslensk nöfn en þeir heita Jim Baldur og Calum Þór. Fjölskyldan býr í Glasgow en gerir sér tíðar ferðir til Islands, þar sem Jim Bett segist kunna best við sig af öllum stööum í heiminum. Leikmaður ársins hjá aðdáendunum Þessi aödáun hans á Islandi hefur vakið mikla athygli í Skotlandi og víða. Það hefur þó langt frá því skemmt fyrir honum því að Skotum þykir yfir- leitt vænt um Island og Islendinga og hreinskilni Jim Bett varðandi þetta litla land og þjóð vekur aödáun þeirra. Jim Bett er í sérflokki í augum Rangersaðdáenda og þeir kalla hann „Lord Jim” sín á milli. Á síðasta ári kusu á milli 15 og 20 aðdáendaklúbbar Rangers í Skotlandi og víðar hann „leik- mann ársins” og í ár má búast við að það verði enn fleiri slíkir klúbbar sem veljihann. Það er gaman að fylgjast meö þessum „tengdasyni Islands” á knatt- spymuvellinum. „Hann er alveg eins og islensku knattspyrnumennirnir þar,” sagði skoskur blaðamaður um hann. „Hann er mjög harður og fylginn sér og gefur aldrei neitt eftir ”... -klp- liðsins Dönunum sýnilega í opna skjöldu og vissu þeir ekki almennilega hvaðan á þá stóð veðrið. Höfðu þeir sagt eftir leikina hér heima, á milli jóla og nýárs, að íslenska liðið væri óagað og áttu sjálfsagt von á að þar hefði orðið lítil breyting á á þrem vikum eða svo. Islenska liðið hélt sinu striki í síðari hálfleiknum og komust Danimir aldrei almennilega í gang gegn því. íslend- ingamir komust í f jögra marka forskot um miðjan siðari hálfleikinn en Danir náöu að minnka muninn í eitt mark. Island svaraði strax með marki, 19— 17, en Danir skoruðu svo síðasta mark leikins, 19—18. Einar varði þrjú víti Enginn einn bar af útispilurunum í íslenska liöinu. Einar Þorvarðarson stóö í markinu allan timann og átti þar mjög góöan leik. Allir nema þrír leik- menn skomðu mark í leiknum en mörkin skiptust þannig: Hans Guðmundsson 6, Alfreð Gíslason 4, Þorgils Ottar Mathíesen 4, Krístján Arason 2, Bjarni Guðmundsson 1, Olaf- ur Jónsson 1 og Sigurður Sveinsson 1 mark. Danir fengu fjölmörg víti í leiknum en Einar varði þrjú þeirra. Það virtist heldur ekki bita neitt á Islendingana þótt þeir væru 8 sinnum einum færri á vellinum. Hinir vestur-þýsku dómarar leiksins ráku aftur á móti aðeins 2 Dani út af í tvær minútur. Danir óhressir með tapið Danirnir voru mjög óhressir með tapið. Þeir urðu jú í fjórða sæti í síð- ustu heimsmeistarakeppni og það þykir ekkert sérstaklega fínt í þeirra herbúðum að tapa fyrir Islandi — hvað þá heldur á eigin heimavelli. Þeir viðurkenndu þó að Islending- arnir hefðu verið betri en þeir í þessum leik og þakka hinum fræga markverði sinum, Mogens Jeppesen, fyrir að ekki fór verr. Varði hann oft mjög vel í leiknum. Markahæstur þeirra varð Nils-Erik Wunther með 6 mörk en síðan kom Michael Ström sem leikur meö spánska liðinu Teenerife með 4 mörk. Við vorum einfaldlega betri „Eg er hræddur um að þeir reyni að hefna ófaranna í síðari leiknum í kvöld,” sagði Bjami Guðmundsson, er við töluðum við hann. „Þeir sætta sig ekki við tvo tapleiki gegn Islandi á heimavelli sinum. Sigur okkar í þess- um leik var sanngjam — við vorum einfaldlega betri en þeir og það ætlum viðlikaaðveraísíðarileiknum.” -klp- Einarí mikilli Einar Einarsson úr Vikingi varð sigurvegari í punktamóti í borðtennis, sem Víkingur hélt nú á dögunum. Einar vann öruggan sigur 21—19 og 21—11 yfir Jóhanni Emi Sigurjónssyni úr Erninum, i úrslitaleik. Bergur Konráðsson úr Víkingi lenti í þriðja sæti — lagði Gunnar Birkisson úr Erninum að velli 21—,J8 og 21—19. Þá vann Sigurbjöm Bragason úr KR sigur í 2. flokki — vann Kjartan Briem úr KR í úrslitaleik 21—15 og 21— 17. Þorsteinn Bachmann úr Víkingi varð í þriðja sæti — vann Valdimar Hannesson úr KR 21—13 og 21—14. -sos Sigurður hlaut Ámabikarinn Skíðakappinn Sigurður H. Jónsson frá tsafirði hlaut Ámabikarinn, sem er afhentur þeím skíðamanni á isafirði er skarað hefur fram úr í alpagreinum eða göngu. Sigurður tryggði sér glæsilegan sigur í alpagreinum 1982 og varð bikar- meistari íslands með fullu húsi stiga, eða- 150. Sigurður vann sigur í sjö bikarmótum á vegum SKÍ og varð sigurvegari í flestum mótum, sem hann tók þátt í á Ísafirði. Ároabikarinn er gefinn af Guðbjaraa Þorvaldssyni og konu hans til minningar um son sinn Áraa, sem var mikill skíða- áhugamaður og félagi i Skíðafélagi tsa- fjarðar. Sigurður H. Jónsson er nú aðalþjálfari ísfirðinga i alpagreinum og hyggst hann einnig keppa í vetur. VJ —ísafirði. Fimm strákar f rá Keflavík — í unglingalandsliðinu f körfuknattleik sem erfarið til Hollands Unglingalandsliðið í körfuknattleik er fariö í keppnisferð til Hollands, þar sem Uðið leikur fjóra landsleiki gegn HoUend- ingum. Þessi keppnisferð er liður í undir- búningi Uðsins fyrir Evrópukeppni drengja, en einn riðill EM verður leikinn hér á landi 2.-4. aprU. Þá elgast við lands- Uð frá islandi, Svíþjóð, Belgíu og Spáni. Einar BoUason er þjálfari strákanna og byggir hann lið sitt mest upp á strákum frá Suðumesjum. Fimm leikmenn eru frá Keflavík, tveir frá Grindavík og einn frá Njarðvik. Ellefu leikmenn fóru tU HoUands. Þeir em: ^ Sævar Guöbergsson, Keflavík Matti 0. Stefánsson, Keflavík Siguröurlngimundarson, Keflavik SkarphéðinnHéðinsson, Keflavík Guðjón Skúlason, Keflavik Karl Guðlaugsson, IR OmarScheving, KR Jóhannes K. Sveinsson, Grindavik Hjálmar Hallgrímsson, Grindavik HreiðarHreiðarsson, Njarövík Heimir Jónasson, Val. Aöstoðarþjálfari Einars er landsliðs- maöurinnTorfiMagnússonúrVal. -SOS Hermanns- mótið á Akureyri Hermannsmótið á skíðum — fyrsta punktamót vetrarins, mun að öUum líkind- um fara fram hér á Akureyri um næstu helgi og verður keppt í stórsvigi og svigi — karla og kvenna. Hermannsmótið er fyrsta punktamót vetrarins á skíðum. Það verður fátt um aðkomumenn á mót- inu, en þó er vitað að Ísfirðingurinn Sigurður H. Jónsson verður á meðal kepp- enda, en hann var mjög sigursæU á punktamótum SKÍ sl. vetur. AB, Akureyri. Fjaðraboltinn á fullri ferð — ífyrirtækja- og stofnanakeppni BÍ Hin árlega fyrirtækja- og stofnana- keppni Badmintonsambands tslands fer fram nk. sunnudag, þ. 30. janúar og hefst kl. 13.30. Keppnin er frábragðln firma- keppni að því leyti tU að reglur gera ráð fyrir að einn keppandi sé a.m.k. frá hverju fyrirtæki eöa stofnun en megi hins vegar leika með utanaðkomandi aðUa. Þó ekki hverjum sem er. T.d. mega ckki tveir meistaraflokksmenn leika saman og sé annar aðilinn kona verður hún að vera neðar en i öðru sæti á styrkleikalistanum og er þetta gert tU að jafna getu liðanna sem taka þátt i keppninni. FuUtrúar þeirra fyrirtækja og stofnana, sem ábuga hafa á að taka þátt í keppninni, eru beðnir um að skrá sig í símum: 44962, 33577 og 37855 fyrir 29. janúar. AUar nánari upplýsingar verða einnig veittar ef óskaö er. íþróttir íþróttir íþróttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.