Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1983, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1983, Blaðsíða 34
34 DV. FIMMTUDAGUR 27. JANUAR1983. Sviðsljósið Sviðsljósið Sviðsljósið Skrautleg skríft —■ rabbað við Ásgeir Bergmann skraut skrifara „Eg byrjaði á skrautskrift fyrir ári þegar ég fékk sett frá systur minni,” sagði Asgeir Bergmann, 22 ára gamall Reykvíkingur, sem vakið hefur mikla athygli að undanförnu fyrir skrautskrift sína, er viö röbbuðum viö hann. „Eg hef alltaf skrifað vel en skrautskriftin er þó mjög frábrugðin , venjulegri skrift,” segir Asgeir og bætti því viö að hann væri ekki læröur í skrautskriftinni. Ásgeir Bergmann skrifar her nokkur sannleikskorn meO skraut- skriftarletri. ° v'm Vnt>: G VA • Asgeir vinnur í Karnabæ sem lagermaður. Hann sagöist hafa talsvert að gera við skrautskriftina og oft kæmi þaö fyrir að hann ynni langt fram eftir nóttu við aö skrifa. En það er ekki aðeins að Asgeir skrifi með sérstökum pennum heldur notar hann líka fjaöurpenna, tálgaöar spýtur og bambusa. Hversu mörg skrautskriftarstafróf skyldi Asgeir nota? „Þau eru um þrjátíu og þá er ég með um þrjú hundruð gerðir af stöf um. ’ ’ Asgeir skrifaði nöfn veislugesta á nýársfagnaðí, sem haldinn var í Naustinu, á sérstök skjöl. Þetta voru um 130 nöfn og þau þóttu taka sig vel út á skjölunum. Hvaö um framtíðina hjá Asgeiri? „Markmiðið er nú að geta snúið sér að skrautskriftinni af fullum krafti. Nægur er áhuginn að minnsta kosti. Þá hefur mig líka alltaf langað til að læra auglýsingateiknun, en ég held aö það verði að bíða að sinni. ’ ’ Já, stundum geta gjafir frá ættingjum haft áhrif á áhugamálin. Það sýnir dæmið um gjöfina sem Asgeir fékk. Hún hefur komið í góðar þarfir. Við vonum að mörg skjöl eigi eftir að koma skrautrituð af honum fram í sviðsljósið í næstu framtíð. Þaö er líka örugglega bókað og skrifaðmál. -JGH. Travolta spenntur — fyrir nýju vinkonunni, henni Donnu Pescow Þá hefur John Travolta náð sér í nýja vinkonu. Það er engin önnur en Donna Pescow, sú sem hann lék á móti í myndinni „Saturday Night Fever” fyrir nokkrum árum. John varð frægur af þessari mynd og má segja aö danssporin, sem hann steig, hafi gert allar stúlkur bálskotnar í honum. I myndinni lék Donna unga og saklausa stúlku sem sá ekki sólina fyrir Travolta. Hún var reiöubúin að gera hvað sem var fyrir hann og það var meö henni sem hann æfði sig fyrir danskeppnina miklu. Leikar fóru þó svo að önnur hnáta kom í spilið og hreinlega rændi pilti áður en í danskeppnina var komið. En þau hafa sem sagt fundið hvort annað og ku vera lukkuleg þessa stundina. Travolta og Pescow. Gárungarnir segja að það liggi Ijúfir straumar á milli„ Volta"og Pescow. Leikaraskapur flugfélagsins — leyfir f rægum að f Ijúga f rítt Leikkonan Joan Collins greindi nýlega frá sérréttindum sínum og annarra leikara hjá breska flug- félaginu British Airways. Hún sagöi nefnilega að flugfélagiö leyfði henni og fleiri leikurum eins og til dæmis Tony Curtis og Omar Shariff aö fljúga á milli Bandarikj- anna og Englands frítt. Joan bætti því við að flugfélagið heföi fram til þessa litiö á það sem góða auglýsingu að þekktir leikarar feröuðust með félaginu. Það hefur þó kvisast út að undanförnu, eftir uppljóstrun leik- konunnar, að aörir farþegar og sölufólk hjá flugfélaginu líti þetta fyrirkomulag hornauga. 4C Leikkonan Joan Collins. Pam-Gibb parið, Andy og Pam, með bros á vör á meðan allt lók i lyndi. Ástarsorg Andys eftír að þau skildu hefur leitt tíl þess að honum hefur verið sagt upp starfisinu sem teikara hjá einu Broadwayleikhúsanna. Handy Andy — fleiri en Pam hafa gert hreint fyrir sínum dyrum Það á ekki af tónlistargarpinum honum Andy Gibb að ganga. Fyrst kom uppsagnarbréfið frá stórskutl- unni Pam og fyrir skömmu var hann beðinn um að taka pokann sinn hjá einu Broadwayleikhúsinu. Leikritið, sem Andy lék í, heitir Joseph and the Amazing Technicolor Dreamcoat. Og í þessu leikriti lék hann aðalhlutverkiö. Andy er bróðir hinna frægu Bee Gees-bræðra og hefur getið sér gott orð fyrir skemmtileg tilþrif í tónlistar- lífinu. Þegar Pam sagði honum upp eins og það er kallaö varð hann fyrir mikilli ástarsorg. Vissi í raun ekki hvemig hann átti að haga sér. Og í framhaldi af þessu fór honum að ganga illa á leiksviöinu. Mætti illa og þess háttar. Þaö var því ekkert annað að gera en biöja hann að yfirgefa lefldiúsið því að svona gengi þetta ekki lengur. Og Andy er hættur. Það er því af sem áður var hjá honum þegar allt gekk eins og í sögu. En eigum við ekki að segja aö það hljóti aö koma betri tíð meö „nýja Pam” í haga hjá Andy ? ER RAINIER ÁSTFANGINN — af Cheryl Ladd? Þær Caroline og Stephanie eru ekki alveg „dús” við nýjasta orðróminn um hann karl föður þeirra, Rainier fursta af Monaco. Sú saga gengur nefnilega fjöllunum hærra að Rainier líti hýru auga leik- konuna Cheryl Ladd, sem leikur Grace KeUy í nýrri mynd um ævi fyrrum furstafrúarinnar. Þær eru engan veginn sáttar við þennan orðróm og segja að móðir þeirra hafi verið mjög á móti umræddri mynd og það sé faðir þeirra líka. Þær neita því þó ekki að leikkonan Cheryl Ladd sé lík móður þeirra. Og ekki eru þær systur einar um að hafa þá skoðun því að það er staðreynd að þær Cheryl og Grace eru ótrúlega líkar. Systrunum er annt um minningu móður sinnar og bæta því viö að það hafi aöeins veriö ein Grace Kelly, en það megi finna margar stúlkur eins og Cheryl Ladd. Leikkonan Cheryl Ladd minnir óneitanlega á Grace Kelly á yngri árum. hlú er orðrómur um að Rainier furstí sé orðinn hrifinn af þessari þokkafullu leikkonu. Systurnar Caroline og Stephanie eru ekki sáttar viðþennan orðróm.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.