Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1983, Page 8
DV. FIMMTUDAGUR 27. JANUAR1983.
8
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Hosni Mubarak: Öttast að Reagan
missi áhugann á vandamálum Austur-
landa nær vegna iorsetakosninganna.
Mubarak og
Reagan þinga
um vandamál
Austurlanda
nær
Reagan Bandaríkjaforseti og Hosnu
Mubarak, forseti Egyptalands, hittast
í dag í Washington til að ræða daufar
friðarhorfur í Austurlöndum nær.
Skrifa báðar stjómirnar það á reikn-
ing Israelsmanna.
Þetta er önnur heimsókn Mubaraks
til Bandaríkjanna á tæpu ári. Hann
hefur lýst því yfir að ísraelsmenn vilji
draga sem lengst á langinn að flytja
herliö sitt á brott frá Líbanon og vonast
hann til að Reagan forseti geti leyst
máliö.
Bæði Mubarak og sumir bandarískir
embættismenn óttast aö væntanlegar
forsetakosningar í Bandaríkjunum
veröi til þess aö vandamál Austur-
landa nær hverfi í skuggann.
— Allir þeir sem nokkurt vit hafa á
bandarískum stjórnmálum gera sér
fulla grein fyrir að 1984 er á næsta leiti,
var haft eftir ráöuneytisstarfsmanni í
síöustu viku.
Mubarak hefur veitt friöarumleitun-
um Reagans mestan stuðning af öllum
þjóöhöföingjum araba en í þeim felst
aö Palestína verði ekki sjálfstætt land
heldur fái Palestínumenn heimastjóm
fyrir vesturbakkann og Gazasvæöið
undir eftirliti Jórdaníu, en þessi svæöi
voru hernumin af Israelsmönnum.
En sumir háttsettir Egyptar vitna í
stefnu Dwights Eisenhowers forseta í
deilunni um Suezskuröinn 1956 og
hvt tja Bandaríkjamenn til aö sýna
Israelsmönnum hörku, t.d. meö því aö
hóta að hætta fjárhagslegri og
hemaðarlegri aöstoö viö þá.
Viðræður um takmörkun kjarnorkuvopna hef jast aftur:
AUKINN VIUITIL
AÐ NÁ SAMKOMULAGI
Ur því að viðræðurnar eru hvort eð er gagnslausar, hvemig væri þá að taka
eina skák.
— ríki Vestur-Evrópu kref jast
meiri sveigjanleika
Viöræöur Sovétríkjanna og Banda-
rikjanna um takmörkun meðal-
drægra kjamorkuvopna munu
hefjast aftur í dag í Genf eftir
tveggja mánaöa hlé. Er búist viö aö
fulltrúar Bandaríkjanna muni nú
reiöubúnir til aö ganga lengra í
samkomulagsátt og ekki halda fast
við svonefnda núll-lausn sem
Atlantshafsbandalagið haföi áður
samþykkt sem einu viðunandi niður-
stööu samnmgaviðræönanna.
Núll-lausnin gerir ráö fyrir aö
Sovétmenn eyöi öllum SS-20 kjam-
orkuflugskeytum sínum gegn því aö
bandaríkjamenn hætti við áætlaöa
staösetningu 572 nýrra flugskeyta í
Evrópu. Er haft eftir bandariskum
embættismönnum aö samninga-
mönnum Bandaríkjanna hafi verið
faliö aö sýna meiri sveigjanleika
vegna þrýstings frá stjómum ríkja
Atlantshafsbandalagsins í Vestur-
Evrópu, sem hafi taliö aö þessi
stefna myndi leiða til þess aö viðræö-
urnarströnduöu.
Aöalsamningamaöur Bandaríkj-
anna, Paul Nitze, hefur látiö hafa
eftir sér aö Bandaríkjastjóm væri
opin fyrir öörum lausnum en núll-
lausninni. Leiðtogar Bretlands,
Frakklands, Vestur-Þýskalands og
Italíu hafa á undanfömum vikum
gefið út yfirlýsingar um aö Vestur-
lönd ættu aö koma til móts við
sjónarmið Sovétmanna ef þeir
höfnuöu alfarið núll-lausninni.
Nitze og Kvitsinsky, aöal-
samningamaöur Sovétríkjanna,
munu koma saman til funda tvisvar í
viku í húsi Sameinuöu þjóöanna í
Genf og halda áfram viöræðunum
sem hafa staðið meö hléum frá því í
nóvember 1981.
Samningaviðræður milli Atlants-
hafsbandalagsins og Varsjárbanda-
lagsins um samdrátt í herafla í Miö-
Evrópu munu einnig hefjast í dag í
Vín. Þá munu í næstu viku hefjast
aftur viöræöur stórveldanna tveggja
um takmörkun langdrægra kjam-
orkuvopna, sem einnig fara fram í
Genf.
FLUGRÆNINGI
LÉT LÍFIÐ
Glen Kurt Tripp, 20 ára, var skotinn
til bana er hann geröi aöra tilraun sína
til flugráns í Seattle í Bandaríkjunum.
Var hér meira að segja um sama
flug aö ræöa, eöa flug 608 Northwest
Airlines frá Seattle til Portland
Framdi Tripp fyrra rániö 11. júlí 1980
en var síðar látinn laus til reynslu, aö
sögn yfirvalda. Viö réttarhöldin í sam-
bandi viö fyrra rániö töldu sérfræöing-
ar Jripp vangefinn.
Viö seinna rániö hélt Tripp þotunni
frá Northwest Airlines í tvær og hálfa
klukkustund en engan af þeim 41 far-
þegar sem meö þotunni var sakaöi.
Var hann svo skotinn af alríkislög-
reglumanni, en alríkislögreglan segir
aö enginn hafi vitaö um andlegt ástand
Trippsfyrren ölluvarlokiö.
Gíen Kurt Tripp við réttarhöldin í júlí 1980.
Óánægður
meðgeð-
veikis-
stimpil-
inn sinn
Michael Fagan, sem braust inn í
dyngju Elísabetar Bretadrottningar í
Buckinghamhöll til þess aö þylja yfir
henni raunir sínar, segist ekki lengur
muna eftir atvikum. Voru þetta þó at-
buröir sem komu bresku þjóöinni til
þess aö standa á öndinni þegar uppvíst
varö.
,,Eg veit ekki hvort ég fór inn í svefn-
herbergi drottningar,” sagöi hann í
viðtali viö sjónvarpsfréttamann í
fyrrakvöld. — „Eg fór inn í eitthvert
herbergi og ég man að ég sá einhverja
konu. En ég get ekki sagt hvort þaö var
drottningin.”
Fagan hefur nú gengið laus í viku,
eftir aö hafa sætt geörannsókn og
dvalið á geðspítala frá því í október, en
þá var hann dæmdur skilorösbundið
fyrir bílstuld. — Hann segist nú hafa
náðfullumbata.
Hann var aldrei sóttur til saka fyrir
innbrotið í Buckinghamhöll, þar sem
hann sat í tíu mínútur á rúmstokki
hennar hátignar, áöur en hún gat
kallaö á hjálp til að losna við hann.
Fagan gagnrýndi dómsniöurstöðuna
sem gerði honum aö sæta geösjúkra-
húsvist. Honum finnst hann hafa veriö
með því stimplaður „bilaður”. — ,,Þaö
hljómar einhvern veginn falskt. Eg
held að það sé ekkert nema tilraun
breska báknsins til þess að skáka mér
til hliöar og afgreiða með því aö seg ja:
„Gaurinn er snargeggjaöur,” segir
hann.
Tyggur gras
á máltíðum
Kínverskur landbúnaöarverkamaö-
ur, Gong Qinqiao, er oröinn ávana-
bundinn grasáti. Hann tyggur þaö dag
hvem á máltíðum og fær dúndrandi
hausverk ef hann sleppir úr máltíð,
eftir því sem Dagblað alþýöunnar seg-
ir.
Fréttamaöur sem hitti Gong aö máli
heima hjá honum í eystra Sichuan
taldi Gong fullkomlega heilbrigöan á
sinni þótt hann hins vegar þrifist auö-
sjáanlega ekki vel á þessari fæöu.
Gong tók upp á grasátinu fyrir sex
árum og nú er grasiö tveir þriðju dag-
legrar fæöu hans. Hann kýs helst
grængresi en á veturna lætur hann sér
lyndahey og trjábrum.
Læknar segjast alveg úrræöalausir
til aö lækna Gong, sem býr í góöu sam-
lyndi við konu sína og dóttur, en þær
vinna meö honum á ökrunum.
Nýr ein-
kennis-
búningur
Kvenlögreglukonur í New York
þurfa nú ekki lengur að hverfa til skrif-
stofustarfa þegar þær taka aö þykkna
undir belti og einkennisbúningurinn
verður of þröngur. Þær fá þá bara
nýjan einkennisbúning sem passar
betur undir þessum kringumstæöum.
Á myndinni sjáum við hönnuðinn, Judy
Loeb, máta einn slikan á Susan
McKenna sem er í götulögreglu New
York borgar. Hún getur því haldið
áfram aö tryggja öryggi borgaranna á
götum úti þar til fjölgunarinnar er von,
en þaö mun vera eftir 3 mánuði.
Myrtur
á götu úti
Einn af leiötogum stéttarfélags
bandarískra vöruflutningamanna,
Allen Dorfmann: Fékk ekkert tskltært
til að kjafta frá.
Allen Dorfmann, var nýlega skotinn til
bana á götu í Chicago.
I desember var Dorfmann og fleiri
leiötogar stéttarfélagsins dæmdir fyrir
mútuþægni og áttu þeir aö byrja aö af-
plána dóma sína 10. febrúar. Þar á
meðal er formaður félagsins, Roy
Williams.
Moröiö á Dorfmann þykir undir-
strika aö stéttarfélag þetta, The Team-
sters, starfar í náinni samvinnu viö
skipulagða glæpahópa í Bandaríkjun-
um.
Dorfmann var einn af aðalráð-
gjöfum The Teamsters og hafði hann
grætt milljónir dala á tryggingarmál-
um. Hann átti yfir höfði sér lífstíöar-
fangelsi og er taliö aö glæpafélagar
hans hafi óttast aö hann kynni aö tala
af sér í því skyni aö fá fangelsisdóminn
styttan.