Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1983, Blaðsíða 36
DV. FIMMTUDAGUR 27. JANUAR1983.
Texti: Árni Snævarr
Myndir: Einar Pálsson, Jóakim Reynisson, Loftur Reimar Gissurarson, Ásgeir Gestsson
„HELT HANN ÆTLAÐIAÐ
HÖGGVA AF MÉR HÖFUÐIÐ"
— spjallað víð Loft Reimar Gissurarson og Ásgeir Gestsson, ferðalanga
Loftur Reimar Gissurarson og As-
geir Gestsson eru menn nefndir.
Hinn fyrrnefndi nemur sálfræði við
Háskóla Islands og hinn síðarnefndi
verkfræði. En ekki hafa þessir ágætu
menn einvörðungu slitið skóm sínum
á götum höfuöborgarinnar. öðru
nær. Dægradvali hafði spumir af því
að þeir hefðu farið í eitt merkilegt
feröalag fyrir nokkrum árum, mælti
sér mót við þá og fékk góðfúslegt
leyfi til að rekja úr þeim gamirnar
og skrá niður brot af þeim ævin-
týmmsem þeir lentu í á ferð sinni.”
Fyrsta stopp
Ólafsvík
„Við höfðum lengi ætlað að fara í
eitthvertverulega spennandi ferða-
lag. Við reyndum að komast með
Rauða krossinum til Afríku, síöan
var planið að fara sem skiptinemar
til Mexíkó, en á endanum ákváðum
við að halda til Asíu. Fyrsta stopp á
þeirri leiö var Olafsvík. Við unnum
þar eins og berserkir frá jólum '79
fram á sumar 1980. Og eyddum varla
krónu á þeim tíma. Það var líka eins
gott því að þarna vom líka tveir
menn að vinna sér inn fyrir ferð til
Suður-Ameríku. Annar þeirra komst
til Köben en hinn lengst til
Reykjavíkur. 1 sumarbyrjun '80
höfðum við aflað okkur farareyris.
Aætlunin var að fara á fáa staöi en
kynnast þeim vel. Við höfðum í huga
Indiand og Israel,. einkum vegna
þess að við höfðúm mikinn áhuga á
trúmálum óg vildum kynnast ýmsu
nánar. Leið okkarlá fyrsttil Hafnar,
svo til Gautaborgar af sérstökum
ástæðum og því næst til Lundúna.
Þar keyptum við rútumiða alla leið
frá London til Aþenu á Grikklandi, í
gegnum Frakkland, Norður-ltalíu og
Júgóslavíu. Ferðin var vitaskuld
mjög erfið og keyrt stanslaust í 3
sólarhringa. Við eyddum nokkrum
dögum í Aþenu en keyptum svo far
til ísraels. Dvöldumst i Jerúsalem,
syntum í Dauðahafinu, fórum til
Betlehem og þræddum slóðir Krists.
Eftir hálfan mánuð í Israel fórum við
að hugsa okkur til hreyfings. Við
höfðum báöir safnað hári og skeggi
til að lita út eins og bláfátækir náms-
menn en urðum að láta hvort tveggja
fjúka áður en við fórum til Indlands.
SUkur var hitinn. Við flugum frá
Israel tU Aþenu og skoðuðum í þetta
sinn borgina, Akrópólis og allt hitt.
En svo var flogið tU Bombay á
Indiandi, með óvæntri viðkomu í
Saudi-Arabíu. Hótað hafði verið að
sprengja vélina í loft upp!!
Bombay: Eymd
Nú, til Bombay komumst við á end-
anum og átti þriggja vikna dvöl þar
eftir að veröasöguleg. Við bjuggum
þarna á Hjálpræðishernum, sem var
hrein dýrð, miðaö við umhverfið. Við
skoðuöum þama fátækrahverfi og ég
held að ekki sé hægt að lýsa
eymdinni í orðum.,Rúsin” oft bara
prik niður í jörðina og teppi hengt
yfir. Engin salemi og saur úti um
aUar götur.
Þarna sáum við fótalausan mann
renna sér á hjólabretti og draga sig
áfram á höndunum, við sáum mann
með fílaveiki, grindhoruð börn sem
lifðu á betli og við gætum haldíð lengi
áfram. Þetta var allt mjög sérkenni-
legt og haföi mikil áhril á mann. En
tvennt gerðist þó minnisstæðast: Við
veiktumst og vorum rændir.” —
Rændir?: „Já, það er ótrúleg saga.
Segðu frá þessu, Reimar.” „Já, viö
kynntumst tveimur mönnum. Annar
var Indverji og hinn Kani. Ind-
verjinn sagðist þurfa aðstoö til aö
geta flutt til Kanada. Átti ég að
aðstoða hann með því að skipta fyrir
hann tékkum og braska með gjald-
eyri. Kvað hann Indverja’ ekki geta
fengið eins hagstæð kjör og útlend-
ingar. Kaninn hjálpaði honum og
sagðist oft hafa gert þetta fyrir
Indverja. Nú, ég átti að fá góða
þóknun fyrir; en átti að láta ferða-
tékka í pant. Indverjinn fór inn í
banka og við Kaninn biðum fyrir
utan. Ætlaði hann að athuga hvort
tékkamir minir væru ekta áður en ég
tæki viö hans fé.
En fyrr en varði missti ég sjónar á
Kananumoglndverjanum! Þúgetur
ímyndað þér hvemig mér leið, búinn
að týna farareyrinum næstum
öllum! En þó ótrúlegt megi virðast
sá ég Kanann tvívegis eftir þetta. I
annað sinn sá ég hann á götu, elti
hann uppi og gat stokkið inn í bíl sem
hann sté inn i! Bíllinn var pakkfuilur
af Indverjum og Kaninn sagði mér
að drulla mér út ella hlyti ég verra
af. Hann slapp þá, en nokkram
dögum síðar sé ég hvar hann er í
handalögmálum við mann. Eg fór og
hjálpaöi andstæðingi hans. Kom í
ljós að sá var Pólverji og hafði
Kaninn reynt að ieika sama leikinn
viö hann. Við Pólverjinn gátum
drösiað Kananum inn á lögreglustoð,
en þar lágu löggumar sofandi upp á
borðum og engin stjóm á neinu.
Kaninn sleppur —
Veikindi
Teknar voru skýrslur af okkur, en
fyrr en varði labbaði Kaninn sér út
án þess að Indverjamir hreyfðu legg
né liö til að koma í veg fyrir það.
Hrakfarirnar tóku þó enda því að
þótt saga okkar væri ótrúleg tókst
okkur að fá tékkana endurgreidda
frá bankanum. En ekki var raunum
okkar lokið því að veikindi herjuöuá
okkur. Við vitum ekki hvað var að en
allavega spiluöu hitinn og rakinn
stóra rullu í því. Við eyddum því
allnokkram tíma á sömu slóðum,
enda hálflasnir og kynntumst
kannski lífinu þama betur en eila.
Við lærðum tai-chi leikfimi af
Kínverja, drakkum hrísgrjóna-
brennivín með kaupmanni á horninu
og svo framvegis. Þannig að það var
alls ekki allt leiöinlegt! En við ætl-
uðum okkur að ferðast víðar þannig
að viö hugðum að brottför.
Flug var furðu dýrt frá Indlandi
þannig að við tókum lest til Madras á
Suðaustur-Indlandi og héldum
þaðan með skipi til Malasíu. I
Madras vorum við í viku.
Etið og
laxerað
Við höfðum sparað í hvívetna alla
ferðina og er við sáum flottan
matsölustað í Madras ákváðum við
að dekra við sjálfa okkur og fá okkur
það fínasta á matseölinum. Þarna
vora glæsilega klæddir þjónar og'
unaðslegir réttir. Sem breytti því að
vísu ekki að rottur spígsporuðu um
tröppur og ganga! Dýrasti rétturinn
kostaði ekki nema 1 krónu og tuttugu
aura íslenska!! Viö átum með góöri
lyst, en ætíð er við kláraðum fengum
við meira á „diskinn”, við héldum að
þetta væri góð þjónusta en er fimmti
eða sjötti skammturinn kom, var
brúnin á þjónunum farin aö
þyngjast. Það var sem sé siður á
þessum stað að leifa er maginn var
orðinn mettur! Við komumst lifandi
Loftur Roimar og Asgeir komnir é stuttbuxna
lega braiddargráðu.