Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1983, Side 8
DV.FIMMTUDAGUR 3. FEBRUAR1983.
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Mannskaöaveður
hjáBretum
Stormar sem gengu yfir Bret-
land í fyrradag kostuðu fimm
mannslíf og f jöldi manna slasaðist.
Þök rifnuðu af húsum, bílar fuku á
veggi og háspennulínur slitnuðu.
I Noröur-Englandi dó fjögurra
ára gömul stúlka og nítján ára
karlmaður þegar tré féllu á bíla og
annar bíll fauk í veg fyrir vöru-
flutningabíl með þeim afleiðingum
aö bílstjóri fólksbílsins lést. I
Suöur-Englandi dó maður nokkur
þegar bíll hans rakst á fallið tré og
roskinn maður lést þegar
gróðurhús í garöi hans hrundi yfir
hann.
1 Norövestur-Englandi flæddi
sjór inn í tugi húsa og 27 eldri
manneskjur meiddust þegar þær
fuku í storminum. Um tíma reis
vatnsborð Thamesár nærri hættu-
mörkum við London.
Mafíuformgií
vellystingum
ífangelsinu
Raffaele Cutolo, foringi einnar
voldugustu mafíuklíkunnar á
Italíu, hefur nú verið eitt ár í fang-
elsi og á þeim tíma eytt um 30
milljón lírum í kampavín og annan
lúxus.
Kampavínið var efst á óskalista
Don Raffaele þegar hann pantaði
innkaup en við leit í klefa hans ein-
hvern tíma fundust 33 milljónir
líra, auk þess sem í ljós kom að
hann átti aðrar 22 milljónir í vörslu
trúnaðarfanga.
Hann afplánar 24 ára fangelsis-
dóm fyrir ýmsa glæpi og á eftir að
koma fyrir rétt ásamt 150 meintum
félögum úr mafíunni, sem í fjölda-
réttarhöldum eiga að svara til saka
fyrir félagsaöild aö ólögmætum
samtökum, líkamsárásir og fleiri
glæpi.
Getrauna-
hneykslií
Ungverjalandi
Tuttugu og sex hafa veriö hand-
teknir í Búdapest, höfuðborg Ung-
verjalands, grunaðir um að hafa
svikiö fé af fótboltagetraununum í
Ungverjalandi. Þeir eru ákærðir
fyrir að hafa mútað leikmönnum og
dómurum til að ákveða úrslit leikja
fyrirfram.
I hálfopinberu stjórnarmál-
gagni, Magyar Hirlap, segir að
mennimir hafi hagnast um u.þ.b.
tvær milljónir króna með því að
spá rétt fyrir um úrslit leikja í
annarri deild, sem teknir eru meö í
getraununum. I blaðinu sagði
einnig aö mennirnir hefðu verið
kæröir fyrir mútur, voru mennirnir
nafngreindir og sagöir hafa kom-
iö frá Búdapest og víðar.
Dagblaðið sagði að hand-
tökurnar hefðu komið í kjölfar
kvartana frá almenningi vegna ó-
væntra úrslita. Því var bætt við
frásögnina að margir hefðu reynd-
ar grunaö stærsta banka Ungverja-
lands um að eiga þátt í hneykslinu,
en það er bankinn sem skipuleggur
getraunastarfsemina.
Sjóslysundan
Hollandi
Fimm áhafnarmeölimir á
dönsku skútunni Activ fórust þegar
skipið sökk í ofsastormi úti fyrir
hollensku ströndinni í fyrradag. I
áhöfn skútunnar var átta manns og
er þriggja enn saknað.
Tilkynnt var aö þyrla heföi náö
einu líki úr sjónum og að fjögur
önnur lík hefðu sést eftir að skútan
sökk, um 22 sjómílur norðvestur af
Den Helder. Mikil ölduhæð og
stormur komu í veg fyrir aö
hollenska freigátan Evertsen eða
þyrlur næðu líkunum upp. Freigát-
an og önnur björgunarskip leita nú
mannanna.
UM 400 ÞUSUNDIR
FLÚNAR TIL GHANA
— óskað aðstoðar erlendis f rá vegna neyðar f lóttafólks f rá Nígeríu
Ghana hefur nú óskaö aöstoðar er-
lendra ríkja til þess að fæða, klæöa og
skjóta skjólshúsi yfir hundruö þúsunda.
Ghanamanna, sem hrakin voru á ver-
gang frá Nígeríu og streyma til síns
gamla heimalands.
Velferöarstofnanir í Ghana rísa ekki
undir því hrikalega verkefni sem fylgir
því að reyna að sjá fyrir nauöþurftum
þessa veglausa fólks, er hrakið var
með tveggja vikna fyrirvara burt frá
Nígeríu, þegar atvinna dróst saman í
olíuiðnaðinum.
Það er talið að um 400 þúsund manns
hafi komið til Ghana eöa sé á leiöinni,
landveg, sjóleiðis eða fljúgandi. Sumir
jafnvel í eintrjáningum, sem þeir hafa
holað úr tr jábolum.
Fyrst og fremst vantar Ghana mat-
væli og lyf til þess að sjá fyrir brýnustu
þörfum aökomuf ólksins.
Þama er um að ræða fólk sem leitaði
til Nígeríu þegar velmegun olíuiðnaö-
arins var hvað mest, en þá var nokkur
skortur á vinnuafli. Eftir að dregiö hef-
ur úr olíusölu hefur atvinna minnkað
og Nígeríustjóm hefur vísað fólkinu úr
landi, enda margt af því skilríkjalaust
og hefur aldrei fengið dvalar- eða at-
vinnuleyfi.
BLAÐAMENN
MYRTIR í PERÚ
Átta blaðamenn voru myrtir í Perú
fyrir nokkru þegar indíánar í þorpi
einu hátt í Andesfjöllum misskildu
blaöamennina og héldu þá vera
hryðjuverkamenn. Einn þorpsbúa,
Saturnino Ayala, sagði að blaðamönn-
unum hefði verið gerð fyrirsát og
þorpsbúar hefðu drepið þá með grjót-
kasti, öxum og hnífum.
Þegar blaöamennimir urðu fyrir
árásinni reyndu þeir að komast undan
og hrópuðu að þeir væm blaöamenn,
en indíánarnir héldu þá vera skæm-
liða. öryggissveitir stjórnarinnar
höfðu varað indíánana við skæruliðum.
Þorpið þar sem þetta gerðist er ekki
aðgengilegt nema eftir einni slóð, sem
aðeins er fær ríöandi fólki, og indíán-
unum hafði verið sagt að allir þeir sem
kæmu landveg að þorpinu væm óvinir.
Þessar upplýsingar fengu þorpsbúar
frá öryggissveitunum, sem fara allra
sinna ferða með þyrlum.
Blaöamennimir höfðu einmitt verið
á ferð um fjöllin til þess aö fá fréttir af
skæruliðahreyfingunni „Sendero lumi-
noso” (Upplýsti vegurinn), en þaö er
hreyfing maóískra skæmliða sem hafa
haft sig nokkuð í frammi í Ayacucho
héraði. Þar sem þorpsbúamir töluðu
aðeins mál Quechua indíána fór sem
fór.
Baráttan gegn skæruliöum er rekin
af fullri hörku í Perú. Blaða-
mennirnir voru ólánsamir en þeir
vora einmitt á ferð í leit að fréttum
af skæruliðum.
Stærsti peningaþjófnaður í Bandaríkjunum:
VÖRÐURINN
HANDTEKINN OG
ANNARRA LEITAÐ
Stærsti peningaþjófnaður sem fram-
inn hefur verið í sögu Bandaríkjanna
virðist á leið aö upplýsast. Tveir menn
hafa verið handteknir, grunaðir um
aðild að þjófnaðinum. Ekki hefur enn
fundist svo mikið sem cent af þýfinu,
11 milljónum dollara.
I gær var vöröurinn sem var einn á
vakt í öryggisgeymslu varðgæslufyrir-
tækisins sem peningunum var stolið
frá handtekinn á baðströnd í Puerto
Rico. Meö honum var einnig handtek-
innvinurhans.
Vörðurinn, Christos Potamitis að
nafni, hafði sagt að þjófamir hefðu
laumast að honum meö því aö gera gat
á þak fyrirtækisins, skríöa í gegn og
yfirbuga hann. Lögregluforinginn sem
hefur rannsókn málsins á hendi segir
þessa sögu vera uppspuna.
Alríkislögreglan vinnur einnig að
rannsókn málsins og leitinni að
peningunum en jafnframt er leitað
tveggja manna til viðbótar sem granur
hefurfalliðá.
Þegar þjófamir yfirgáfu varðgæslu-
fyrírtækið skildu þeir eftir um 20
milljónir dollara í reiðufé, því að þeir
höföu ekki rúm fyrir meira í bif reiðinni
sem þeir flúðu á. — Fyrirtækinu hefur
nú veriö lokað og lýst gjaldþrota. Þrír
af forráöamönnum þess vom hand-
teknir fyrir tveim vikum, sakaðir um
aö hafa stoliö 100 þúsund dollumm frá
viðskiptavini.
Stærsti peningaþjófnaöur í
Bandaríkjunum til þessa var innbrotið
í geymslu Lufthansa á Kennedy-flug-
velli 1979, þegar stolið var 5,5 milljón-
um dollara, en það mál upplýstist að
fullu um síðir.
Deilt um
fjölda at-
vinnulausra
Leiðtogi v-þýsku stjórnarand-
stöðunnar, Hans-Jochen Vogel,
hefur lýst því yfir að fjöldi at-
vinnulausra væri kominn yfir tvær
og hálfa milljón. Vogel greindi ekki
frá því hvaðan hann hefði þessar
upplýsingar en þær komu fram í
skriflegri yfirlýsingu hans til fjöl-
miðla.
Vinnumálastofnun V-Þýska-
lands, sem mun gera nýjustu tölur
um atvinnuleysi opinberar nú í vik-
unni, hefur lýst því yfir að tölur
væru ekki enn tilbúnar og lokatala
atvinnulausra fyrir janúarmánuð
ekkifengin.
Forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar
hafa oft varað við því að fjöldi at-
vinnulausra myndi ná tveim og
hálfri milljón á þessuári, áður en
atvinnuástand batnaöi, en efna-
hagsmálaráðherrann, Otto Lambs-
dorf greifi, sagöi að svo gæti farið
að þeirri tölu yrði ekki náð í janúar
vegna þess hversu mildur veturinn
hefurverið.
r r
OANÆGÐIR MEÐ AÐ VINNA
FYRIR KAUPINU SÍNU
Um þaö bil tvær milljónir opin-
berra starfsmanna á Spáni tóku
þeim tíðindum gleðilaust að hér eftir
skyldu þeir vinna sinn fulla vinnu-
tíma. Þau boð lét ríkisstjórn sósíal-
ista á Spáni ganga út fyrir nokkru.
Samkvæmt reglum skulu opinberir
starfsmenn á Spáni mæta til vinnu
klukkan átta og vera þar til klukkan
þrjú. Nú hafa verið settar upp
stimpUklukkur tU þess að ganga eftir
því að reglunum veröi hlýtt.
Þessi vinnutími hefur samkvæmt
kenningunni veriö í gUdi lengi en í
raun er þetta bylting. Ein skrifstofu-
stúlka í spænsku ráöuneyti viður-
kenndi að hún mætti venjulega ekki
til vinnu fyrr en hálf tíu og færi
venjulega upp úr hádegi. Hún hélt
því fram að hún þyrfti ekki lengri
tíma til að vinna störf sín.
AUir yfirmenn kunna aö notfæra
sér „jakkabragðið”, sem felst í því
að þeir geyma gamlan jakka á skrif-
stofunni, sem þeir hengja á stólbak
eftir að þeir eru mættir og fara síðan
burt.
Þeir opinberir starfsmenn sem sjá'
um sambönd við borgarana vinna
frá níu til tvö og síðan frá fjögur tU
sex, samkvæmt nýju tUskipuninni,
sem hefur vakið mikla óánægju hjá
opinberum starfsmönnum. Oánægj-
an stafar meöal annars af því
aö margir þeirra hafa annaö starf,
sem þeir vinna á vinnutíma sínum
hjá hinu opinbera. Og fyrsta daginn
eftir tilskipunina gerðist nokkuð
ófyrúséö. Gangar ráðuneyta fyUtust
af börnum, því mæður þeirra, sem
vinna hjá ráðuneytunum, urðu að
taka þau með í vinnu. Skólar byrja
ekki fyrr en klukkan níu.