Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1983, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1983, Blaðsíða 17
DV. FIMMTUDAGUR3.FEBRUAR1983. Lesendur Lesendur Lesendur Þátturinn Á hraðbergi: RÚSKINNSSTÍGVÉL 17 BREIÐHOLTI SÍMI 7622S MIKLATORGI SÍMI 22622 Fersk blóm daglega. Vangavelta um hótelverö og helgarferö Notaðir lyftarar í mikiu úrvaii Á hraðbergi: Furðu lostinn á f ramkomu spyrjenda Margrét Auðunsdóttir hringdi: Það er ekkert vafamál að fjölmiðlar hafa mikil áhrif á skoðanir fólks, enda kemst sú stétt manna, sem þá atvinnu stundar, fljótt til áhrifa í þjóðfélaginu, svo sem í stjórnmálum. Því varð ég furðu lostin á framkomu Guðmundar Áma Stefánssonar og Ingva Hrafns Jónssonar í sjónvarps- þættinum Á hraðbergi, þar sem Vilmundur Gylfason sat fyrir svörum um stefnu Bandalags jafnaðarmanna. Það leyndi sér ekki í hinni grófu fram- komu spyrjenda að nú var ekki verið að ræða við foringja úr samtrygginga- kerfi gömlu flokkanna. I ljósi þess, sem tíðkast hefur í okkar þjóðmálum í seinni tíð, þá bið ég Guð gefi að þeir tveir fjölmiðlafugl- ar, sem þarna spurðu, fljúgi ekki inn á Alþingi okkar tslendinga. Hroki og dónaskapur cnmttníergsCrteiw Laugavegi 71. Sími 13604. 2. t raf/m. snúningi 2.5 t raf 1.5 t pakkhúslyftarar 2.5 t dlsil 3.2 t disil 4.3 t disil 4.3 t dlsil 5.0 t dísil m/húsi 6.0 t disil m/húsi K. JÓNSSON &CO: HF. : — ekki við hæfi þar sem spyrlareigaíhlut Magnús Ævarsson skrifar: I þættinum Á hraðbergi, þann 26. janúar sl., var rætt við formann ný- stofnaðs stjórnmálaflokks; Bandalags jafnaðarmanna, Vilmund Gylfason. Spyrlarnir voru tveir, þeir Ingvi Hrafn Jónsson og Guðmundur Stefánsson. Miðað við þær reglur, sem ég og fleiri héldum að tíðkuðust meðal spyrla sjónvarpsins, þá er varla hægt að segja að þessir menn hafi staðið undir þeim vonum, sem venjulegt fólk gerir til manna, er koma fram í opin- berum fjölmiðli. Eg minnist þess varla að hafa orðið vitni að jafn mikilli ósvífni og óskamm- feilni og þessir spyrlar sjónvarpsins höfðu í frammi gagnvart formanni Bandalags jafnaðarmanna. Til dæmis má nefna það að Guðmundur skyldi leyfa sér að lýsa því yfir að við- mælandi hans væri að ljúga, þegar til umræðu var hvort Vilmundur hefði boðið mönnum sæti á lista sínum. Og að segja menn fara með ósannindi, án þess að hafa skriflegan vitnisburö eða vitni, þykir mér vera óhæfa og alls ekki sæmandi mönnum í stöðum sem þessum. Það að grípa jafnframt fram í tal gestsins, án þess að til komi svo mikið sem afsökunarbeiðni, finnst mér vera hrein og klár ósvífni. Það versta er þó að mega nú héðan í frá jafnvel eiga á hættu að horfa upp á slíka framkomu gagnvart fleiri gest- um. Maður veltir fyrir sér hvort menn, sem þessir spyrlar, séu yfirleitt færir um að sjá um þætti á borð við A hrað- bergi. Ef hægt heföi verið að snúa meira út úr fyrir Vilmundi, þá heföi það vafa- laust veriö gert. Spumingamar vom auk þess bæði heimskulegar og barna- legar — og virðingarvert að Vilmund- ur skyldi ekki rjúka upp undir þessum kringumstæðum. Virtist sem spyrlarnir teldu sig vita allt um hinn nýja flokk mun betur en viömælandinn og gáfu í skyn að þjóð- málin hefðu þeir nú heldur betur í koll- GuOmundur Árni Stafánsson, ritstjóri Alþýðub/aðsins. ,,Guðmund Árna vonast ég til að sjá aldrei aftur á skjánum " — segir Magnús Ævarsson. inum — þótt ýmislegt hafi skotið að manni vafa. Pólitískir voru síðan báðir spyrlarnir og greinilega ekki á sama báti og Vilmundur — allt of greinilega að mínu mati: Alls ekki hlutlausir. Vona ég innilega aö Ingvi Hrafn Jónsson bregðist ekki vonum minum (og fleiri) um fyrirmyndar spyril í framtíðinni. Guömund Árna vonast ég til að sjá aldrei aftur á skjánum. Mér finnst slíkur hroki og dónaskapur alls ekki vera við hæfi þar sem spyrlar eiga í hlut. Litir: Svart og gulbrúnt Stærðir: 36—41 Verð kr. 775,-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.